Bændablaðið - 06.07.2023, Blaðsíða 39

Bændablaðið - 06.07.2023, Blaðsíða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 6. júlí 2023 LANDBÚNAÐUR Í SKÁLDSKAP Orðsins list kemur að þessu sinni frá Hjálmari Jónssyni, kenndum við Bólu. Hann fæddist á Hallandi í Eyjafirði árið 1796. Hjálmar ólst upp hjá vandalausum og síðar föður sínum, fluttist 1920 að Silfrastöðum í Skagafirði og kynntist þar konu sinni, Guðnýju Ólafsdóttur, en þau voru systrabörn. Eftir viðkomu á Bakka í Öxnadal og Nýjabæ í Austurdal, Skagafirði, fluttu hjónin árið 1829 að Bólu (Bólstaðargerði) í Blönduhlíð, hjáleigu frá Uppsölum. Var Hjálmar eftir það kenndur við Bólu en fór þaðan laust fyrir 1840 eftir ákæru, og sýknu, um sauðaþjófnað. Hann var í húsmennsku eftir að Guðný lést 1845, lengst í Minni-Akragerði í Blönduhlíð og síðar í Grundargerði í nágrenninu. Hjálmar var ágætlega sjálfmenntaður, ekki síst í fornfræðum. Hann var hefðbundið rímnaskáld, fljúgandi hagorður og myndvís, en orti einnig hvassyrt og af íþrótt um eigið líf, samtíð sína og samferðamenn, stjórnvaldið og almættið. Skáldskapur hans var mjög á skjön við þann róman- tíska þjóð- f r e l s i s a n d a sem samtíma- skáld hans sum iðkuðu. Listfengur var hann og oddhagur og hafa varð- veist eftir hann fagrir útskurðar- gripir. Hann var jafnan bláfátækur og stóð í stöðugu stríði við allt og alla, jafnt guð og menn. Hann lést í beitarhúsum frá Brekku í Seyluhreppi í júlímánuði 1875. Gröf hans er á Miklabæ, við hlið Guðnýjar. Minnismerki er um Bólu-Hjálmar í minningarlundi við Bólu, frá árinu 1955. /sá Beinróa Beinróa heitir partur af túninu á Ökrum. Þar var Hjálmar að slá í sólskini og þurrk, og beit illa. Beinróa, þú grýtt og glær, gnagi þig djöfla tennur. Bölvi þér allt, sem andað fær, einkanlega sá þig slær, þar til stálhörð þú til kola brennur. Raupsaldurinn 1875 Kveðið til gamans í ellinni til að hlæja að. Lífið, bæði blítt og strangt, ber nú menjar sínar; upp að telja ei er langt íþróttirnar mínar. Telgdi eg forðum tré með egg, teygði járn og skírði, Fjölnis brúðar skóf af skegg, skeið á vatni stýrði. Tætti eg ull og bjó úr band, beitti hjörð um vetur, heitum kopar hellti í sand, hjó á fjalir letur. Dró eg fisk úr veiðivök, vanur að keipa færi, streitti oft við steinatök, þó sterkur ekki væri. Sneið úr jörðu þarfleg þök, þrýsti veggjum saman, ýmsra sagna rakti rök, rekkum þótti gaman. ... Kælandi innlegg í sumarblíðuna þegar smjör drýpur af hverju strái: Hestarnir í harðindum Jarpur fyllir svangan sarp, setur höm í norðanhret, skarpur drifta veikir varp, vetur sig ei buga lét. Hringur lötrar húsin kring, hanga lætur tóman svang, bringustór með bógnasting bangar fold á uslagang. Hastur fær af hungri köst, hristir af sér élin byrst, kastar hóf um klakaröst, kvistar hjarn af matarlyst. Skjóni jörkum skefur frón, skeinum flumbrar brædda hlein, hrjónur mylur hófa ljón, hrein í svellum dauðakvein. Fífill skafla kannar kaf, krofið er sem grindahrof, dýfir sér í dauðans haf, dofinn stendur upp í klof. Rauður klaka rastir hrauð, riðar út á fellis hlið, dauðans vök er orðin auð, iðar fjör við takmarkið. Ljáðu, faðir, lýðum ráð, leiðin bjargar verði greið, gáðu að þörfin brauðs er bráð, breiðist móti landi neyð. Heimild: Sýnisbók íslenskra bókmennta frá 1550 til 1900, Kristján Eiríksson tók saman, Reykjavík 2003. Hjálmar Jónsson frá Bólu, Ritsafn I, Ljóðmæli, Ísafoldarprentsmiðja, 1965. Lífið, bæði blítt og strangt ... Smiðjuvellir 9 300 Akranes 430 6600 akur@akur.is AKURShús - timbureiningahús íslensk hönnun & framleiðsla Afhent uppsett á byggingarstað eða í einingum – Við allra hæfi – „ Kynntu þér húsabæklinginn okkar á akur.is og fáðu verðáætlun í húsið þitt Margar gerðir og stærðir Lífræn hreinsistöð • Fyrirferðalítil fullkomin sambyggð skolphreinsistöð • Uppfyllir ýtrustu kröfur um gæði hreinsunar • Engin rotþró eða siturlögn 25 ára ábyrgð • Tæming seyru á þriggja til fimm ára fresti • Engir hreyfanlegir hlutir • Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík Sími 517 2220 - petur@idnver.is G ra fik a 19 „Það er ótrúlegt að finna hvað þessi ACTIVE JOINTS hefur gert mikið fyrir mig. Nánast öll óþægindi eru farin í hnénu og ég er með vellíðunar tilfinningu innra með mér sem ég hef ekki fundið fyrir lengi. Ég er sannfærður um að ACTIVE JOINTS er að gera mikið gagn fyrir mig. Ég mæli svo sannarlega með ACTIVE JOINTS frá Eylíf.“ Árni Pétur Aðalsteinsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.