Bændablaðið - 24.08.2023, Qupperneq 26

Bændablaðið - 24.08.2023, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023 LÍF&STARF Finnafjörður: Unnendur sjósunds boðnir velkomnir Byggð hefur verið upp aðstaða til sjóbaða við bæinn Fell í Finnafirði. Við vík í firðinum, skammt sunnan við Fell, hefur Reimar Sigurjónsson bóndi komið upp skýli til fataskipta auk þess að koma fyrir kari þar sem fólk getur skolað af sér eftir sjóbaðið. „Aðgengi er gott fyrir þá sem vilja fara í sjóinn,“ segir Reimar. „Það eru ekki varasamir straumar þarna. Ég hef svo sem ekki yfirsýn yfir hversu aðstaðan er mikið notuð en eitthvað er nú skrifað í gesta- bókina.“ Reimar segir stíg niður að Skelinni, þ.e.a.s. skiptiaðstöðunni, gerðan úr rekavið, og stígur frá henni og langleiðina að víkinni hafi verið hellulagður með náttúruhellum og reki haldi við að neðanverðu. Svo sé gengið eftir gömlum vegi alveg niður í fjöruna. Kaðalhandrið sé með stígnum endilöngum. „Það er rennandi vatn að pallinum sem er við Skelina og fer það í gamlan sturtubotn, hugsað til þess að geta skolað sand af fótunum og mögulega einhverju fleiru,“ segir Reimar. Ekkert gjald sé tekið fyrir notkun aðstöðunnar. Hann fékk styrk frá Brothættum byggðum til verkefnisins á grunni þess að auka við afþreyingu fyrir ferðamenn og fá þá til að staðnæmast meira en eina nótt á svæðinu. Skelin er að miklu leyti byggð úr rekavið úr fjörunni. Reimar segi reka mjög mis munandi milli ára. „Sum ár rekur lítið og önnur nokkuð mikið,“ segir hann. „Ég fékk jafn framt styrk frá Brot hættum byggðum til að gera mér aðstöðu til að fram leiða vörur úr rekavið, t.d. ljós, borð, hillur og bara það sem mér dettur í hug og fólk getur líka beðið um eitthvað sérstakt og þá reyni ég að verða við því. Ég er með stóra og mikla bandsög og fletti bolum í henni sem ég framleiði síðan vörur úr. Ég nota svo rekavið til að kynda hjá mér íbúðarhúsið að hluta. Hugmyndin er að gera mun meira af því. Þar fyrir utan eru flestar girðingar á jörðinni gerðar með rekaviðarstaurum,“ segir Fellsbóndi að lokum. /sá Snoturt og snyrtilegt hús til fataskipta fyrir þá sem vilja bregða sér í sjóinn við Fell í Finnafirði. Myndir / Reimar Sigurjónsson Svarfaðardalur: Gangnamaðurinn hylltur – Hundrað ára afmæli elstu steinsteyptu réttar landsins Við Tungurétt í Svarfaðardal verður senn afhjúpaður minnis­ varði gangnamannsins, hinn fyrsti á Íslandi. Tungurétt er við mynni Skíðadals inn af Svarfaðardal og verður haldið upp á hundrað ára afmæli hennar með afhjúpun gangnamanns- minnisvarðans, laugardaginn 26. ágúst. Jón Þórarinsson á Hnjúki í Skíðadal segist hafa gengið með hugmyndina um slíkan minnisvarða í kollinum í hartnær tvo áratugi. Fyrir mörgum árum hafi bjarg verið fjarlægt úr vegstæði upp úr Skíðadalnum og sett í bakkvörn til að bægja Skíðadalsá frá. Bjargið hafi lokið sínu hlutverki í þeim efnum og verði nú undirstaða fyrir minnisvarðann. „Þetta er stór steinn, um 7 tonn að þyngd, dálítið eins og fjall í laginu,“ segir Jón. „Ofan á hann koma listaverk: nokkrar lausar kindur, gangnamaður með prik í hendi á eftir kindunum og hundur á eftir manninum, allt skrúfað ofan á steininn.“ Verkið er unnið úr ryðfríu stáli, af hagleikssmiðnum og listamanninum Jóhannesi Hafsteinssyni á Dalvík. Helstu styrktaraðilar verkefnisins eru Norðurorka Akureyri og Menningarsjóður Dalvíkurbyggðar. Jón segist ekki hafa spurnir af að áður hafi verið reistur minnisvarði til heiðurs gangnamönnum, honum finnist þetta ekki ósvipað og minnisvarði sjómannsins, svo dæmi sé tekið, og alveg tímabært. „Með tilkomu minnisvarða gangnamanns eiga allir Íslendingar tilkall til minnisvarða þar sem helmingur Íslendinga á ættir sínar að rekja til sjómannastéttar og hinn helmingurinn til bændastéttar.“ Hann bætir við að minnisvarði gangnamannsins sé öllu gangnafólki til heiðurs, hvers kyns sem það sé. Þótt Jón á Hnjúki sé upphafsmaður verkefnisins eru þeir fjórir sem standa að framkvæmdinni: auk Jóns þeir Atli Þór Friðriksson í Koti í Svarfaðardal, Þórarinn Hjartarson frá Tjörn í sömu sveit en brottfluttur og býr á Akureyri og Jón Bjarki Hjálmarsson á Tjörn. Elsta steinsteypta réttin Tungurétt er elsta rétt á Íslandi sem steypt er úr steinsteypu, frá 1923. „Við endurbyggðum réttina árin 2010 til 2014, styrktum hana og steyptum alla upp,“ segir Jón og bætir við að gömlu veggirnir frá 1923 sjáist þó í flestum dilkunum að innanverðu. „Við létum þá gömlu halda sér og steyptum bara utan um þá á annan veginn þannig að hægt er að sjá mosagróna steypta veggi frá 1923 inni í réttinni. Þetta er í okkar huga merkilegt og við vildum gjarnan koma því á framfæri.“ Yfirsmiður endurbótanna var Rúnar Búason, húsasmíðameistari á Dalvík. Þegar afmælinu verður fagnað og minnisvarðinn afhjúpaður mun fólk safnast saman í réttinni og gleðjast. „Uppistaðan verður mikið til að allir gangnamenn taka þátt í söng,“ segir Jón. „Oddur Bjarni Þorkelsson, prestur á Möðruvöllum, verður með okkur, Þórarinn á Tjörn mun fara yfir sögu réttarinnar, við afhjúpum minnisvarðann og bjóðum svo í kaffi með gamla laginu, upp á fjórar hundrað ára gamlar brauðtegundir; kleinur og þess háttar.“ Í tengslum við afmælið stendur til að gefa út 120 bls. fræðslu- og menningarrit sem hefði að geyma sögu fortíðarinnar hvað varðar fjárréttir, smalakofa, stekki og kvíar frá fjallaskiladeildunum þremur sem enn eru í óbreyttu formi eftir sameiningu þriggja sveitarfélaga fyrir rúmum 20 árum. Félag til að auðvelda göngur Svarfaðardalur tilheyrir sveitar- félaginu Dalvíkurbyggð á Norðurlandi eystra. Þar er við lýði sérstakt gangna- mannafélag sem sett var á laggirnar eftir að allt fé var skorið árið 1988 á öllum bæjum í Svarfaðardal og hjá hobbíbændum á Dalvík. Þó hafi níu bæir í dalnum verið riðulausir, að sögn Jóns og voru menn síður en svo sáttir við heildarniðurskurðinn á svæðinu. „1989 sáum við fram á að engar göngur yrðu en samt varð að smala svæðið. Þá stofnuðu menn félagið. Það komu ekki kindur á nálægt alla bæi aftur og æ erfiðara var að fá fólk í göngur,“ segir Jón og heldur áfram: „Þá var þetta félag stofnað og sér um göngur hér á svæðunum sem tilheyra sveitarfélaginu. Það er að segja afréttinni sem tilheyrir sveitarfélaginu. Þetta eru á bilinu 30-40 menn. Mér finnst svo mikils virði fyrir tilhögun á göngum að halda uppi gamla mátanum sem við höfum alist upp við, það er svo víða þar sem göngur eru ekkert orðnar göngur eins og þær voru. Það þykir hvorki sport né eftirsóknarvert að fara í göngur á sumum svæðum á landinu að því er maður heyrir. Hér er bara gamla hefðin enn við lýði, sem betur fer, og svolítið strangt tekið á því ef menn svíkjast um að fara í göngur. Ekki er beitt fésektum en þykir frekar niðurlægjandi heldur en hitt að fara ekki,“ segir hann. Á árunum 1975-1985 var um 17.000 kindum smalað til rétta í Svarfaðardal en árið 2020 voru þær um 6.500 talsins. Stemningin í Tungurétt einkennist af hlátri, samsöng og taumlausri gleði, segir á upplýsingaskilti við réttina. Ekki eru allar jarðir í dalnum setnar. Að sögn Jóns var gangnamannafélagið stofnað þegar bæir voru mikið orðnir setnir af eldra fólki og búskapur farinn að dragast saman. „Þá gat þetta fólk ekki farið í göngur og því var gangnamannafélagið líka hugsað til að auðvelda hlutina. Af þeim sem eru í félaginu er sjálfsagt um helmingur búsettur í þéttbýli; brottfluttir og tengdir,“ segir Jón að lokum. /sá Tungurétt er hundrað ára, elsta steinsteypta rétt landsins. Afmælisnefndin: F.v. Jón Bjarki Hjálmarsson, Tjörn, Atli Þór Friðriksson, Koti, Þórarinn Hjartarson frá Tjörn og Jón Þórarinsson, Hnjúki. Mynd / Jóhann Snær Arnaldsson Þegar Tungurétt var gerð upp fyrir áratug voru 100 ára gömlu steyptu veggir dilkanna látnir halda sér til að varðveita söguna. Mynd / Jón Bjarki Hjálmarsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.