Bændablaðið - 24.08.2023, Page 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023
LÁGAFELL VERSLUN OG BYGGINGAR EHF
VÖLUTEIGUR 4, 270 MOSFELLSBÆR
WWW.LAGAFELLVERSLUN.IS
846 7014 – 895 4152
Sérstyrkt fyrir íslenskar aðstæður - 24 ára reynsla á Íslandi
SERRALUX
Gróðurhús og yndisreitir í miklu úrvali
Ánægja með framkvæmd mótsins
Talið er að um 11.000 manns hafi verið
saman komin á Heimsmeistaramótinu,
þar af um 1.500 Íslendingar. Þetta
er í þriðja sinn sem mótið er haldið á
þessum stað og af þessum móts-
höldurum og hefur alltaf verið gífurleg
ánægja með mótin.
Að þessu sinni stóð mótið undir
væntingum hvað varðar umgjörð og
aðstöðu, hvort sem það var fyrir hesta,
knapa eða áhorfendur en ef eitthvað
ætti að gagnrýna þá var það helst
matarúrvalið á svæðinu sem var ekki
upp á marga fiska.
Keppendur voru 162 talsins frá 17
löndum og voru skráð 39 kynbóta-
hross á mótinu. Að þessu sinni fór
liðsbikarinn til Danmerkur og er það
í fyrsta sinn sem Danmörk hlýtur þau
verðlaun. Ísland endaði í þriðja sæti
í liðakeppninni sem verður að teljast
vonbrigði.
Þrátt fyrir að hafa unnið langflest
verðlaun á mótinu þá varð sú staðreynd
að einungis einn knapi keppti í
slaktaumatölti fyrir Íslands hönd til
þess að liðið vann ekki liðakeppnina
þetta árið. Ísland hefur unnið bikarinn
frá því að hann varð fyrst veittur fyrir
utan árið 2015 og nú árið 2023.
Benedikt Ólafsson og Leira-Björk frá Naustum III eru heimsmeistarar í
gæðingaskeiði og samanlögðum fimmgangsgreinum í ungmennaflokki.
Mynd / Bert Collet
Glódís Rún Sigurðardóttir og Salka frá Efri-Brú, heimsmeistarar í fimmgangi
í ungmennaflokki. Mynd / Bert Collet
Heimsmeistarar í fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum í
ungmennaflokki, Jón Ársæll Bergmann og Frár frá Sandhól. Mynd / Bert Collet