Bændablaðið - 24.08.2023, Síða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023
STEINHELLA 4, HAFNARFJÖRÐUR SÍMI: 837 7750 INFO@BILXTRA.IS
kr425,000
KERRUR Á HAGSTÆÐUM VERÐUM!
BILXTRA.IS
kr950,000
kr,000
kr1,450,000
HAFÐU SAMBAND VIÐ OKKUR
YGGDRASILL
CARBON
yggcarbon@yggcarbon.com
555-0944
Áttu land sem hentar til skógræktar?
Goðanes 16 • 603 Akureyri • Sími 5191800 • rafos@rafos.is
Opið virka daga milli 08:00 – 16:00
RAFÓS
r a f v e r k t a k a r / h e i m i l i s t æ k j a v i ð g e r ð i r
RAFÓS
Sími 519 1800 rafos@rafos.is
Þjónustum allt landið - Verið velkomin
Raflagnir - viðhald og nýlagnir
Hleðslustöðvar fyrir rafbíla
Uppsetning og sala
Viðgerðir og sala
á öllum gerðum heimilistækja
Varmadælur - uppsetning og sala
Þá voru ekki margar eignir í boði
sem hentuðu okkur í Vesturbænum
og enduðum þess vegna á nesinu.
Þetta reyndist okkur algjört
gæfuskref því við erum afar ánægð
í húsinu okkar og eigum dásamlega
nágranna. Seltjarnarnesið er hálfgerð
sveit í borg sem er alveg yndislegt
og sú stemning á vel við okkur. Ekki
skemmir líka fyrir að mér tókst með
einhverjum hætti að selja foreldrum
mínum hugmyndina að flytja frá
Hafnarfirðinum til okkar á nesið,
en þau búa nú í um fimm mínútna
göngufjarlægð frá okkur,“ segir Vala.
Stórir og verðmætir sæsniglar
sem borða þara
Blaðamaður neyðist til að afhjúpa
fákunnáttu sína og spyrja Völu hvað
sæeyru eiginlega séu.
„Sæeyru eru stór sæsnigill.
Nafngiftin á íslensku er afar
áhugaverð en sæeyru kallast abalone
á ensku. Þetta eru ylsjávardýr sem
þrífast best í heitu loftslagi, þau lifa á
grýttu svæði þar sem mikið er af þara
sem er þeirra helsta fæða. Sæeyru má
finna við strendur Ástralíu, Nýja-
Sjálands, Suður-Afríku, Norður-
Ameríku og í Japan.
Margar tegundir eru til af sæeyrum
en við hjá Sæbýli leggjum áherslu
á að rækta japanska afbrigðið er
nefnist Ezo, sem er ein verðmætasta
eldistegund heims. Sæeyru eru um
það bil fimmfalt verðmætari afurð
en eldislax,“ segir Vala.
Dýrasti rétturinn á veitingastöðum
Aðspurð um það hver sé helsti
markaðurinn fyrir sæeyru segir Vala
félagið stefna á erlenda markaði.
„Þótt Íslendingar séu enn ekki
kunnugir sæeyrum þykja þeir
hið mesta hnossgæti úti í heimi,
sérstaklega í Asíu. Þetta eru afar
eftirsótt matvæli og það er mikil
menningararfleifð í kringum
sæeyrun í matargerð. Sæeyru eru
alltaf dýrasti sushi-rétturinn á fínum
sushi-veitingastöðum erlendis. Þá er
sæeyrað borið fram hrátt í fallegri
sæeyrnaskelinni.
Við hyggjumst því flytja vöruna á
erlenda markaði, þá helst N-Ameríku
og Evrópu til að byrja með. Afurðir
Sæbýlis eru seldar undir vörumerkinu
Aurora Abalone,“ segir Vala.
Metnaðarfullar áætlanir
Sæbýli er eldisfyrirtæki sem hefur
á síðastliðnum 15 árum þróað eigin
klakstofn, tækni og framleiðsluaðferð
við eldi á sæeyrum á Íslandi. Sæbýli
er í eigu Ásgeirs Guðnasonar,
stofnanda Sæbýlis, Eyris Invest og
fleiri fjárfesta. Stjórnarformaður
félagsins er Sigurður Pétursson,
stofnandi Novo Food í Frakklandi
og laxeldisfyrirtækisins Arctic Fish
á Vestfjörðum.
„Þrautseig vinna stofnandans í
að byggja upp klakstofn er í raun
grunnurinn að því að Sæbýli geti
vaxið. Það er tímafrekt ferli að
þróa eldisdýrin en Ásgeir fór í
fjölmargar ferðir til Japans til að
fullkomna stofninn sem er í raun
okkar verðmætasta og dýrmætasta
eign. Á þessum sterka grunni sem
Ásgeir hefur byggt ætlum að skrifa
næstu kafla í sögu fyrirtækisins,“
segir Vala.
„Við rekum klakstöð í Grindavík
þar sem við erum að rækta upp
ungviði en ætlum að byggja upp
áframeldi í Auðlindagarði HS Orku.
Sú staðsetning gerir okkur kleift
að nýta græna raforku og varma á
Reykjanesi. Fyrstu áætlanir gera
ráð fyrir uppbyggingu 200 tonna
eldis sem verður svo mögulegt að
fimmfalda á næstu 10 árum,“ bætir
Vala við. „Af þessu má sjá að við
erum með mjög metnaðarfullar
áætlanir. Undanfarið höfum við verið
að bæta við og styrkja teymið til að
gera þessar áætlanir að veruleika. Í
dag starfar fjölbreyttur og sterkur
hópur fólks hjá Sæbýli, en alls erum
við um ellefu manns.
Ég er mjög stolt að vera orðin hluti
af Sæbýlisteyminu og afskaplega
spennt fyrir komandi tímum sem
verða án efa mjög dýnamískir,“ segir
Vala Valþórsdóttir, nýráðinn forstjóri
Sæbýlis.
/ÞBA
Við höfum því mikla möguleika á
því sviði líka hér á landi.“
Stór nöfn úr geiranum
Eins og fyrr segir er von á mörgum
stórum nöfnum úr geiranum á Arctic
Algae-ráðstefnuna.
„Það er einstakur heiður fyrir okkur
að Vincent Doumeizel, framkvæmda-
stjóri þörungasviðs Sameinuðu
þjóðanna, er einn af ræðumönnum
og þátttakendum á ráðstefnunni,“
segir Sigurður.
„Einnig hefur verið mikil áhersla
á þörungaframleiðslu í tengslum við
aðgerðir í umhverfismálum og verkefni
tengd lækkun kolefnisspors og er
stór hluti umfjöllunar á Arctic Algae
ráðstefnunni,“ bætir Sigurður við.
Stærstu umhverfis samtök í heimi,
World Wildlife Fund, hafa á undan-
förnum árum lagt sér staka áherslu
á uppbyggingu þörungaframleiðslu
á heimsvísu og eru samtökin
styrktaraðilar að ráðstefnunni.
Auk þess mætir Paul Dobbins,
sem stýrir málefnum hafsins hjá
samtökunum, og mun flytja erindi og
leiða umhverfishluta ráðstefnunnar
sem tekur stóran hluta síðari
ráðstefnudags ráðstefnunnar.
„Á heimsvísu er langstærstan
hluta þörungaframleiðslunnar
að finna í Asíu en hún er hratt
vaxandi í hinum vestræna heimi
og aukin áhersla á hana lögð bæði
út frá sjónarmiðum um sjálfbæra
matvælaframleiðslu og jákvæðum
umhverfisáhrifum framleiðslunnar.
Daginn fyrir ráðstefnuna verður
ráðstefngestum boðið upp á þátttöku
í utandagskrárferð að heimsækja
Isea-þörungavinnslu í Stykkishólmi
og Running Tide á Akranesi. Daginn
eftir ráðstefnuna verður síðan farið í
Algalíf og Bláa lónið.
„Það er okkur einkar ánægjulegt
hvað margir erlendir aðilar hafa sýnt
ráðstefnunni áhuga sem og að bæði
matvæla- og umhverfisráðherra skuli
taka þátt í ráðstefnunni. Þá studdi
matvælaráðuneytið þessa fyrstu
alþjóðaráðstefnu um smáþörunga
hér á landi, og fyrir veittan
stuðning erum við mjög þakklát,“
segir Sigurður.
„Nýting sjávarþörunga hefur
verið hluti af sögu Íslands
frá landnámi og gert ráð fyrir
áframhaldi og aukningu hennar í
nýrri matvælastefnu sem kynnt
verður síðar á árinu,“ segir Sigurður
Pétursson, formaður Samtaka
þörungafélaga á Íslandi.
Allar frekari upplýsingar um
Artic Algae 2023 er að finna á
vefsvæði ráðstefnunnar, www.
arcticalgae.is.
Algalíf er eitt fremsta fyrirtækið á
Íslandi og á heimsvísu í framleiðslu
smáþörunga. Mynd / Algalíf