Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 63

Bændablaðið - 24.08.2023, Blaðsíða 63
63Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2023 Orðsins list kemur að þessu sinni frá Gyrði Elíassyni. Gyrðir er Austfirðingur að ætt og uppruna, fæddur árið 1961 og ólst upp á Sauðárkróki en er nú búsettur í Garði. Gyrðir er virtur og mikilvirkur rithöfundur sem hefur sent frá sér tugi verka; smásögur, ljóð, skáldsögur, ritgerðir og sagna- og ljóðaþýðingar. Hann hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir ritstörf sín, m.a. Bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs, Íslensku bókmennta- verðlaunin og Íslensku þýðingar- verðlaunin. Verk Gyrðis hafa verið þýdd og gefin út á fjölda tungumála og hann sem dæmi verið tilnefndur til bæði frönsku Jean Monnet- og Prix Médicis verðlaunanna. /sá --- Heyskapur Notalegt að liggja á heyvagni frænda og hossast á hlassinu eftir djúpum moldartroðningi áleiðis til hlöðunnar. Við komum ofan af túni sem var uppundir fjallinu, og þar hafði ég staðið með hrífu ásamt frænku. Síðan settumst við í teiginn með mjólkurflösku og kaffiflöskuna góðu í ullarsokknum, og í fáðum blikkstauk sem upphaflega var fagurmálaður liljum vallarins, voru kleinur og vöfflur með rabarbarasultu. Hundurinn lá lafmóður við fætur okkar og beið þess að fá bita. Ég henti stundum í hann kleinu, en frænka sagði: „Hann fær nóg, hundræfillinn, þegar hann er heima.“ Núna lá ég á hlassinu, heyrði glamrið í dráttarvélarbeislinu og vonaði að pinninn hrykki ekki upp úr, því ekki vildi ég vera á vagninum ef hann losnaði aftan úr vélinni. Það var sólskin og næstum logn og himinninn blárri en timburloftið í kirkjunni á Moldarstöðum. Frændi minn í ullarnærfötum þrátt fyrir hitann, alveg hreint að springa en lét einsog ekkert væri, og ég vissi að hann mundi hamast og djöflast við heykvíslina og sleppa kannski naumlega við að stinga gat á svörtu slönguskóna sína. Ég hafði litla kvísl og reyndi að hamast líka, en honum þótti ég alltaf heldur linur til verka. „Hvað er þetta drengur,“ sagði hann oft. „Geturðu ekkert?“ Við vorum komnir að hliðinu efst í heimatúninu og það glampaði á hlöðuþakið tilsýndar. Ég beið þar til traktorinn stöðvaðist alveg, þá stökk ég ofan af ækinu og opnaði hliðið með tilþrifum, hneigði mig djúpt með handsveiflu fyrir frænda um leið og hann ók brosandi í gegn. Inn um þetta hlið færi ég aftur um kvöldið, með kýrnar og dökkan flugnasveiminn. --- Úr smásagnasafninu Kvöld í ljósturninum e. Gyrði Elíasson. Útg. Mál og menning 1995. KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði www.bbl.is OFMETA LÖMUN ÓVIRÐA DÁSAMI BALDINN HLJÓÐ- FÆRI MPLANTA O S K U S R Ó S SKYGG- NAST ESTYRKJA F L A LÍKAN M Ó D E L SLOK L I SKAMMIR FÉFLETT Á M Æ L I O G A R MEINT ÁRÁS I L L T JARÐEFNI BLAKT BLÖSKRI B I F MERGÐ ÞYRMA Ú I FUGL EIND L Ó A GÆLU- NAFNÁGÆTASTI T DREGUR UPP- GEFINN T G L Ó A EINUNGIS MIÐJA A Ð E I N S ELLEGAR DRYKKJAR- ÍLÁT SSINDRA L E I K A SAM- BANDS TEKJUR HAFNA I N N T E K TSPILA J I DÁLKAR FAGUR- GALI K U T A R SORTERA R A Ð A HÚÐÖFUG RÖÐ Á R S AFHENDA DRABBA G E F A BÆN GRETTA Á K A L LTÍMABILS V SVEIGUR ÓÐUR K R A N S LÆTI DANS Y S LOFT- SIGLING TVEIR EINS GNAUÐA E E E L J A SKRÆKIR G A R G FORM S N I ÐSEIGLA S J A L LÆVÍS S L Æ G BEYGÐU V I K UKLÆÐI P A Ó Ð L L L A RÖLT G L A A GARMAR L L L A INNVOLS R I F Ð A U R RSKAUT SAMHÆFA H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O S S G A TU R .G A TU R .N ET 201 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifkop.is Allar almennar bílaviðgerðir FORÐAST ÝKJA FÍFLAST GJAMMA LEYFI BLÍÐA VEIKJA HRÁOLÍA HANGA ÞJÁLFA RÍKI Í ASÍU UMSLAG VISTAR- VERA MEGN SKEKIN MJÓLK BLAÐUR RÓGUR FENGUR EMBÆTTI KVK NAFN GOÐ VÆTUPÚSSA HÝÐI EYJA Í EVRÓPU MULDUR JÖRÐ GJÓA SÆTI FÍFL- DJARFURFARÐA FRÝS PUMPUNREIÐAR- SLAG GLJÁHÚÐ ÞÓKNAST ÓVISSA HREYKJA SKRÁ VEGSAMA MJÓLKUR- AFURÐ FRAMVEGIS ERGI- LEGUR FÓÐURULL ÆPA Í RÖÐ HNEISA STYRKUR ÍMYNDUN PRÍLA ÞAKBRÚN KALLORÐ FERÐ DÆLD AFLSORG HAMS- LEYSI TÓNN HLERIGERÐ DOK M Y N D : JA C K IE ( C C B Y -S A 2 .0 ) H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O S S G A TU R .G A TU R .N ET 202 LANDBÚNAÐUR Í SKÁLDSKAP ... hamast og djöflast við heykvíslina ... Gyrðir Elíasson. Mynd / Johannes Jansson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.