Bændablaðið - 14.12.2023, Síða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
FRÉTTIR
fyrir lífið í landinu
Íslenskt kjarnfóður í öll mál
Kjarnfóðrið frá Líflandi er
íslensk framleiðsla
Úrvals hráefni og aðföng
Framleiðsla samkvæmt ströngum gæðakröfum
Tæknivædd og nútímaleg fóðurverksmiðja
Allar nánari upplýsingar hjá söluráðgjöfum
Líflands í síma 540 1100
eða á fodur@lifland.is
Jólahangikjötið rýkur út
– Eftirspurnin knýr hraðan vöxt Grímsstaðakets
G rí m sst að ak et selur m est af lam b ak j ö t i en J ó h anna Sj ö fn G uð m und sd ó t t ir, sem h é r sé st v ið k j ö t sö gun, segir v era
v ax and i m ark að fyrir æ rk j ö t og sauð ak j ö t , eð a k j ö t af v et urgö m lu. E innig folald ak j ö t og h rossak j ö t . Mynd / Aðsend
M iklar annir eru nú hj á
G rímsstaðaketi og hangikj ötslæ rin
fj úka út gegnum B eint frá bý li.
E igendurna grunaði ekki hversu
hröð up p byggingin æ tti eftir að
verða þ egar þ au hófust handa.
Á G rímsstöðum í Reykholtsdal
er rekið fjár- og hrossabú.
Vetrarfóðraðar ær eru þar 3 50
talsins og hrossin 90. Árið 2020 settu
G rímsstaðabændur, hjónin Jóhanna
Sjöfn G uðmundsdóttir og Hörður
G uðmundsson, á fót kjötvinnslu.
„Á þeim tíma sem við opnuðum
kjötvinnsluna vorum við nær
eingöngu að vinna okkar kjöt og lítið
fyrir aðra,“ segir Jóhanna. „Þegar
við byrjuðum á kjötvinnslunni
var komið í umræðuna að leyfa
svokölluð heimasláturhús og það
var alltaf planið að hoppa á þann
vagn þegar það yrði leyft. Okkur
grunaði þó aldrei að það yrði strax
á öðru starfsárinu okkar!
Við ákváðum að það væri ekki
eftir neinu að bíða og fórum strax að
stækka húsið þar sem kjötvinnslan
er, til að koma fyrir sláturhúsi.
Slátruðum fyrstu lömbunum þar í
október 2021.“
E ftirspu rn eftir fol alda-
og h ros sakj öti ey ks t
Hún segir þau síðan hafa slátrað
öllum þeim lömbum sem þau selja
gegnum Beint frá býli þar heima.
„Löggiltu eldhúsi var svo bætt við
haustið 2022, eftir að matarsmiðju,
sem Samtök sveitarfélaga á
Vesturlandi ( SSV) stóðu að og var
með starfsemi í Borgarnesi, var
lokað,“ heldur Jóhanna áfram. „Þá
bauðst mér að fá tækin frá þeim. Við
gerðum samning við SSV um tækin
og geta nú framleiðendur leigt af mér
aðstöðuna fyrir sína framleiðslu.“
Þau vinna mest með lambakjöt
en Jóhanna segir jafnframt vera
aukinn markað fyrir ærkjöt og
sauðakjöt, eða kjöt af veturgömlu.
Eins sé vax andi markaður með
folaldakjöt og hrossakjöt. Lauslega
reiknað sé framleiðslan hjá þeim
50% lambakjöt, 3 0% ærkjöt og 20%
folalda- og hrossakjöt.
„Við höfum vax ið á hverju ári,“
segir Jóhanna. „Í ár slátruðum við
250 lömbum og 90 fullorðnu hér,
og frystirinn er að tæmast. Það er
því ljóst að ef við ætlum að geta
verið með lamba- og ærkjöt í sölu
allt árið þá þurfum við að stækka
aðstöðuna hjá okkur enn meira til
að geta vax ið frekar.“
U m það hvort G rímsstaðaket sé
farið að framleiða eitthvað í löggilta
eldhúsinu segir Jóhanna það ekki
hafa verið mikið til þessa.
„Ég sé fram á að geta nýtt þá
aðstöðu frekar í vetur. Það stendur
til að fara í framleiðslu á þurrkuðu
ær- og hrossakjöti, og fyrir það hef
ég fengið styrk frá SSV til að geta
staðið vel að þróun á þeirri vöru.
Einnig ætlum við að framleiða
kæfu, kjötfars og bjúgu,“ segir hún.
O f fáir dag ar o g stuttir
Þau eru innan vébanda Beint frá
býli. „Við seljum allt okkar kjöt
sjálf, mest fer í gegnum Fac ebook-
síðu G rímsstaðakets og svo hefur
fólk líka samband sem hefur séð
okkur á síðu Beint frá býli. Margir
koma til okkar og sækja sínar vörur
en við erum líka að fara með til
fólks sjálf og mest í Reykjavík og
á Akranes. Þetta gengur ljómandi
vel og virkilega gaman að hitta þá
sem eru að kaupa af okkur vörur.“
Hún segir kostinn við þessa
aðferðafræði tvímælalaust þann
að vera í beinum samskiptum við
viðskiptavininn. „G allinn er hins
vegar sá að dagarnir eru bara ekki
nógu langir á haustin og haustið
sjálft líður allt of fljótt! Það er
mikið að gera þessar vikur sem
slátrun, vinnsla og afhending fer
fram.“
Þau hjónin eru einu föstu
starfsmenn G rímsstaðakets. „En
þegar við erum að slátra erum við
sex meðan á því stendur og við
vinnslu og úrbeiningu oftast þrjú,“
segir Jóhanna.
A ð h rök k v a eða stök k v a
„Þetta hefur allt gengið mjög vel,
og eiginlega miklu betur en við
þorðum að vona,“ heldur Jóhanna
áfram.
„Samt sem áður er reksturinn
okkar orðinn það stór að við erum
farin að velta fyrir okkur að stækka
sláturleyfið okkar í næsta flokk,“
segir hún. Það sé til að geta slátrað
fleira fé á dag því að í reglugerð
fyrir örsláturhús sé eingöngu leyft
að slátra 3 0 gripum hvern dag.
„Með því að verða stærri eigum
við möguleika á því að taka að
okkur slátrun fyrir aðra hér á
svæðinu og auka rekstrartekjur
fyrirtækisins með því. Eins og
staðan er nú höfum við ekki tíma
til þess, vegna takmarkana sem eru
á fjölda, en líka vegna plássleysis
á kæli þar sem við látum allt kjöt
hanga í fimm daga áður en við
setjum í frost,“ bætir hún við.
„Því að stækka fylgja líka
aukin útgjöld varðandi leyfi og
þjónustu dýralækna, og núna
eru úrgangsmál sveitarfélaganna
í skoðun svo það er ekki víst að
það verði rekstrargrundvöllur fyrir
stækkun,“ segir Jóhanna. /s á
Nú um áramót breytist verðskrá auglýsinga og áskrift-
ar hjá Bændablaðinu.
Upplagi Bændablaðsins er dreift um allt land og geta
lesendur því nálgast eintak af blaðinu frítt. Dreifingarstaði
blaðsins má nálgast á vefnum okkar, bbl.is. Til þess að
tryggja sér eintak af blaðinu mælum við með að gerast
áskrifandi. Áskrifendur fá þá eintak af blaðinu sent heim
að dyrum gegnum þjónustuaðila. Hægt er að gerast áskrif-
andi gegnum vefsíðuna bbl.is eða með því að hringja til
okkar í s. 563-0300. Árgjald áskriftar árið 2024 verður
17.500 kr. en 13.900 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja.
Þeim sem þykir ekki verra að lesa blöð á vefnum er bent
á að PDF áskrift Bændablaðsins er gjaldfrjáls, en hægt er
að skrá sig í áskrift á forsíðu Bændablaðsvefsins, bbl.is.
Áskrifendur fá þá póst um leið og blaðið kemur út.
Verðskrá auglýsinga 2024
• Smáauglýsingar m. mynd: grunnverð 6.500 kr. m/vsk.
• Smáauglýsingar án myndar: grunnverð 2.800 kr. m/vsk.
• Smáauglýsingar á netinu: grunnverð 1.300 kr. m/vsk.
• Dálksentímetri, almennar auglýsingar: 1.908 kr. án vsk.
• Dálksentímetri, síða 3 og baksíða: 2.150 kr. án vsk.
• Dálksentímetri, síða 2, 4 og 5: 2.000 kr. án vsk.
• Vefauglýsing í 2 vikur efsta svæði: 75.000 kr. án vsk.
• Uppsetning auglýsinga kr. 7.500 kr. pr. hálftíma.
Fyrsta Bændablað ársins 2024 kemur út 11. janúar en út-
gáfudaga ársins má nálgast hér í blaðinu á næstöftustu
síðu. Mælt er með að kippa síðunni úr blaðinu og hafa á
áberandi stað. /ghp
Breytingar á verðskrá Bændablaðsins
Útiræktun grænmetis:
Ágæt uppskera
þrátt fyrir kalt vor
óð uppskera var af spergilkáli og blómkáli í haust þrátt fyrir er ðar
að st æ ð ur í v or. Mynd / B b l
S amkvæ mt up p skerutölum
úr útiræ ktun græ nmetis, sem
bæ ndur hafa sj álfir skráð, er
heildarup p skeran heldur meiri í
ár en undanfarin tvö ár.
T alsvert meiri uppskera var af
blómkáli og spergilkáli en á síðasta
ári, en svipuð í kartöflum, gulrótum
og gulrófum. Minna er af kínakáli,
hvítkáli og rauðkáli miðað við
síðasta ár.
„Í heild mega bændur vera
nokkuð ánægðir með uppskeruna
þar sem vorið var blautt og kalt
og fræ og plöntur fóru seint niður
og vöx tur hægur til að byrja
með,“ segir Helgi Jóhannesson,
garðyrkjuráðunautur hjá Ráðgjafar-
miðstöð landbúnaðarins. U ppskeran
kom því seinna á markað en í
meðalári, að sögn Helga.
„En gott haust gerði það að
verkum að heildaruppskera varð
ágæt í mörgum tilvikum.
T ölur um hektara í ræktun liggja
ekki fyrir og því ekki hægt að draga
miklar ályktanir um ástæður þessara
breytinga milli ára,“ segir Helgi.
/ s m h
Tegund 2020 2021 2022 2023
Kartöflur 7.379 6.355 7.180 7.290
Gulrófur 950 559 630 638
Gulrætur 659 754 980 1.030
Blómkál 90 105 89 120
Hvítkál 214 207 235 140
Kínakál 105 54 87 57
Spergilkál 90 93 85 104
Rauðkál 175 172 64 30
Samtals 9.662 8.299 9.350 9.409
U p p sk erut ö lur ú r ú t iræ k t un græ nm et is sam k v æ m t sk rá ningu b æ nd a. M agn
er í t onnum eft ir t egund um .
H elgi J ó h annesson.