Bændablaðið - 14.12.2023, Síða 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
F yrir tveimur árum náðist stór áfangi í hags-
munabaráttu bæ nda þ egar B æ ndasamtökin
urðu sameinuð.
Búgreinafélög hinna fjölbreyttu greina
landbúnaðarins urðu þá formlega hluti
samtakanna. Eins og gengur og gerist þarf
að yfirstíga ýmsar hindranir í svo stórri
aðgerð. En árið 2023 hefur verið árið þar
sem sameiningin hefur óumdeilanlega skilað
árangri. Og ekki hefur veitt af þegar sótt er
að atvinnugreininni úr öllum áttum. Ef það
eru ekki aðfanga- eða vax tahækkanir þá er
það krafa um meiri innflutning, kröfur frá
EES, meiri kröfur með blýhúðun og inn á
milli pólitískar ákvarðanir. Fyrir samtökin
og hagsmunagæslu landbúnaðarins hefur
það verið lykilatriði að hafa gott fólk í
brúnni, á skrifstofu samtakanna sem er
reiðubúið að berjast fyrir heildarhagsmunum
landbúnaðarins.
Íslensk matvælaframleiðsla og íslenskur
landbúnaður eru í fremstu röð, hvort heldur
er um að ræða kjöt, fisk, mjólkurafurðir,
grænmeti, nú eða jólatré! Hér á landi er nægt
jarðnæði og mikið af hreinu vatni, þess vegna
viljum við nýta landið undir framleiðslu sem
við sem þjóð getum verið stolt af. Þó veður séu
válynd hérna heima þá hafa bændur aðlagað sig
að þeim aðstæðum. Kaldara loftslag hefur líka
sína kosti þó það takmarki líka möguleikana.
Við getum þó öll verið sammála um að það sé
skynsamlegt að framleiða matvæli á Íslandi,
þó ekki væri nema vegna sjónarmiða um
sjálfsaflahlutfall þjóðarinnar í fæðuframleiðslu
– fæðuöryggi þjóðarinnar. Framleiðsluvirði
íslenskra landbúnaðarafurða er líka verulegt,
eða um 90 milljarðar, og atvinnugreinin skapar
yfir 10.000 störf, það munar um minna.
Einn besti mælikvarðinn á hversu vel hefur
tekist til í hagsmunagæslu bænda og með
sameiningu Bændasamtakanna er að þessa
dagana er reynt að reka fleyg í þá samstöðu
sem hefur skapast meðal okkar. Nú síðast
með aðgerðum ríkisstjórnarinnar á grunni
vinnu ráðuneytisstjórahópsins. Þar hefði
stjórnvöldum farnast betur á því að ráðfæra
sig við Bændasamtökin til að útfærslan og
aðgerðirnar væru í samræmi við þá alvarlegu
stöðu sem er í landbúnaði, og greiningar
samtakanna og hópsins hafa leitt í ljós.
Afkomuvandi bænda hefur nú verið
viðurkenndur og á honum bera stjórnvöld
ábyrgð lögum samkvæmt. Fyrst aðeins hluti
vandans verður leiðréttur með aðgerðum
ráðuneytisstjórahópsins, þá verður að leysa
afganginn eftir öðrum leiðum. Endurskoðun
búvörusamninga er opin og ekkert því til
fyrirstöðu að stjórnvöld komi þar með
ásættanlegar lausnir að borðinu. Við sem
höfum verið valin til að leiða hagsmunabaráttu
bænda erum boðin og búin að finna lausnir
með stjórnvöldum, svo lengi sem við heyrum
ekki í öðru hverju orði að ekkert sé hægt að
gera. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar á dögunum
sýna nefnilega og sanna að ýmislegt er hægt
ef viljinn er fyrir hendi.
Við sem störfum við íslenskan landbúnað
getum verið stolt, þrátt fyrir að verkefnið sé á
stundum vanþakklátt og verkin erfið. Okkur
hefur á þessu ári tekist að skapa öflugan
meðbyr með atvinnugreininni því við erum
samstíga og samheldin í hagsmunabaráttu
okkar fyrir lífi okkar og atvinnu.
Kæru bændur og búalið, um leið og ég
óska ykkur gleðilegrar hátíðar vil ég halda
þeirri einörðu skoðun minni á lofti að það er
samstaðan sem mun skila okkur í endamarkið.
Með samstöðu höfum við fengið fyrir
sjónarmið bænda og náð fram hluta þeirrar
leiðréttingar sem þörf er á, og saman munum
við ná fram leiðréttingu á kjörum bænda.
Á fram íslenski r bæ ndur.
LEIÐARI
Peð
Bóndi er ekkert borðleggjandi hugtak.
Samkvæmt Í s l e n s k u n ú t í m a m á l s o r ð a b ó k
Árnastofnunar er bóndi sá eða sú sem rekur bú
í sveit og er með búfénað eða stundar ræktun.
Bóndi er sá sem hefur atvinnu af landbúnaði
eða fiskeldi samkvæmt vefuppflettiritinu
W i k i pe d i a . Í L ö gf r æ ð i o r ð a s a f n i n u er
skilgreiningin einfaldlega: „Sá sem býr á jörð.“
C hatG P T sagði mér að „í mörgum samfélögum
er bóndi líka hluti af menningararfi og hefur
verið grundvöllur landbúnaðar og búskapar
um aldirnar.“ Í s l e n s k a o r ð s i f j a b ó k i n skilgreinir
bónda sem mann sem rekur búskap, sem
húsbónda eða – sem peð í skák. Í Þýskalandi og
Danmörku er reyndar það orð sem merki bóndi
notað yfir peðið, þennan lítilfjörlega taflmann
sem þó getur reynst bjargvættur á skákborðinu.
Bændur stunda landbúnað og hér á landi
eru starfandi um 3 .000 bændur. Landbúnaður
er ein af mikilvægustu atvinnuvegum landsins
samkvæmt stjórnvöldum en undir hann falla
alifuglarækt og eggjaframleiðsla, garðyrkja
og geitfjárrækt, hrossarækt, landeldi, jarðrækt,
loðdýrarækt, nautgriparækt, sauðfjárrækt,
skógarframleiðsla, svínarækt og æðarrækt.
T il að styðja við atvinnugreinina teflir
ríkisstjórnin fram tveimur stjórntækjum;
opinberum stuðningsgreiðslum og tollvernd.
Hlutfall stuðnings milli búgreina er hins vegar
misskipt; á meðan tilteknar búgreinar treysta
á greiðslur úr búvörusamningum þurfa aðrar
að reiða sig á tollvernd. Báðar leiðirnar virðast
ekki tryggja bændum viðeigandi starfsskilyrði
eins og staðan er í dag og því hriktir í stoðum
fæðuöryggis landsins.
Fyrir helgi var tilkynnt um stuðningsgreiðslur
til bænda sem eiga í fjárhagserfiðleikum vegna
efnahagsástandsins. Stuðningurinn nær til
982 bænda og verður meirihluta fjármagnsins
úthlutað til nautgripa- og sauðfjárbænda.
Í skýrslu starfshóps ráðuneytisstjóra kemur
fram að tillögurnar séu í „ágætu samræmi
við aðgerðir í nálægum ríkjum“. Mun þá
einna helst hafa verið litið til Noregs í því
samhengi og aðgerðirnar bornar saman við
þær aðgerðir sem gripið hefur verið til hér
á landi. U mfang landbúnaðarframleiðslu í
Noregi er umtalsvert meira en á Íslandi en
Norðmenn, þvert á pólitískar línur, styðja sína
landbúnaðarframleiðslu; í orði, verki og með
fjármagni. T illögunum er ætlað að styðja við
fjölskyldubú. Eru fjölskyldubú eingöngu í
tilteknum búgreinum? Hér í blaðinu má finna
gagnrýni frá fulltrúum búgreina sem stunda
ekki nautgripa- eða sauðfjárrækt sem lýsa
miklum vonbrigðum yfir því að stjórnvöld velji
ekki að styðja við fjárhagsvanda allra bænda
sem standa í ströngu. Þar spyr bóndi: Er ég
ekki bóndi?
U mræður um landbúnað árið 2023 hafa
meðal annars snúist um hvernig landbúnaðurinn
er mát í þeirri stöðu sem hann er í gagnvart
því kerfi sem honum er ætlað að spila innan.
Kerfið virkar ekki sem skyldi þegar endurtekið
neyðarviðbragð þarf til að bjarga lífsviðurværi
fólks fyrir horn um stund. Engum er hollt að
tefla djarft þegar velferð og fæðuöryggi er í
húfi. Skilvirk matvælaframleiðsla þarf að
byggja á fyrirsjáanleika og öryggi til langs
tíma. Bændur búa ekki við það rekstraröryggi
sem eðlilegt væri í atvinnugrein sem ætlað
er að stuðla að fæðuöryggi þjóðarinnar og
um leið matvælaöryggi með framleiðslu á
heilnæmum mat. Því er ekki að undra að
heildarendurskoðun á styrkjakerfi í landbúnaði
virðist yfirvofandi. Enda voru 200 milljónir
kr. af þeirri fjárveitingu sem tilkynnt var fyrir
helgi meðal annars eyrnamerkt slíkri vinnu.
Þá vinnur Landbúnaðarháskóli Íslands nú að
skýrslu um styrkjaumhverfi landbúnaðar á
Íslandi þar sem lögð er áhersla á samanburð
við styrkjaumhverfi annarra landa sem og
árangursmælikvarða. Því eru afskaplega
áhugaverðir tímar fram undan á næsta ári, svo
ekki sé meira sagt.
G uðrú n H ulda P álsdóttir r i t s t j ó r i .
Samstaðan mun halda
R it st j ó rn Bæ nd ab lað sins ó sk ar lesend um gleð i og gæ fu um h á t í ð irnar og þ ak k ar á næ gj uleg sam sk ip t i á á rinu. Bæ nd ab lað ið h efur st að ið fyrir
ú t gá fu á 2 3 t ö lub lö ð um á lí ð and i á ri og sam ant ek inn sí ð ufj ö ld i t elur 1 .6 4 0 . Á d ö gunum b rá rit st j ó rnin und ir sig b et ri fæ t inum og fó r í j ó lab í lt ú r
á sk í nand i fí num L and rov er, á rgerð 1 9 8 1 . F rá v inst ri: Sigrú n P é t ursd ó t t ir, Þ ó rd í s U na G unnarsd ó t t ir, St einunn Á sm und sd ó t t ir, G uð rú n H uld a
P á lsd ó t t ir, Sigurð ur M á r H arð arson og Á st v ald ur L á russon. Á m ynd ina v ant ar H uld u F innsd ó t t ur. Mynd / H G S
JÓLAMYNDIN
Gunnar Þorgeirsson
formaður Bændasamtaka Íslands
gunnar@bondi.is
Bæ nd ab lað ið k em ur ú t 2 3 sinnum á á ri.
ví er dreift ókeypis á y r 00 stöðum á landinu og á öll lögbýli landsins.
L esendur geta einnig gerst áskrifendur að b laðinu og fengið það sent heim
í p ó sti gegn greiðslu b urðargjalds. Árgangurinn (2 3 . tölub löð) kostar þá kr. 1 4 . 9 0 0
með vsk. Ársáskrift fyrir eldri b orgara og öryrkja kostar kr. 1 1 . 9 0 0 með vsk.
H eim ilisfang: B ændab laðið, B orgartú n 2 5 , 4 . hæð - 1 0 5 R eykjaví k.
Sí m i: 5 6 3 0 3 0 0 – K t : 6 3 1 2 9 4 -2 2 7 9
Bæ nd ab lað ið er í eigu Bæ nd asam t ak a Í sland s. − M álgagn bæ nda og l andsby ggðar −
R it st j ó ri: G uðrú n Hulda P álsdó ttir (áb m. ) gudrunhulda@ b ondi. is – Sí m i: 5 6 3 0 3 0 0 – Blað am enn: – Ástvaldur L árusson astvaldur@ b ondi. is – Hulda F innsdó ttir hulda@ b ondi. is
S igrú n P é tursdó ttir sigrunp eturs@ b ondi. is – S igurður Már Harðarson smh@ b ondi. is – S teinunn Ásmundsdó ttir steinunn@ b ondi. is
uglýsingastjóri Þ ó rdí s U na G unnarsdó ttir thordis@ b ondi. is – Sí m i: 8 6 6 3 8 5 5
etfang auglýsinga t h ord is@ b ond i.is V efur b lað sins: w w w .b b l.is etfang blaðsins: fréttir og annað efni er b b l@ b ond i.is
F rá gangur fyrir p rent un: S igrú n P é tursdó ttir – P rent un: L andsp rent ehf. – U p p lag: 3 3 . 0 0 0 – Drei ng ands rent og slands óstur SS
Á fard egi St ek k j ast aurs k om u fj ó rir b ræ ð ur h ans fæ rand i h end i í Bæ nd asam t ö k in. V igd í s
H sler framkv mdastjóri veitti þessu glaðv ra föruneyti móttöku þar sem hún fékk ýmsan
glað ning ú r h eim asv eit frá í slensk um j ó lasv einum ú r D ö lunum . E k k i am aleg gj ö f þ að .
Í slensk t og got t , j á t ak k . Mynd / H G S