Bændablaðið - 14.12.2023, Side 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Lars Lund og T up aarnaq B j erge
M otz feldt tóku við búskap á
Hallgilsstöðum í ágúst síðast-
liðnum. Þ au eru bæ ði up p alin á
sauðfj árbúum á S uður-G ræ nlandi.
Lars kynntist héraðinu þegar
hann var í verknámi í tengslum við
búfræðinám sitt fyrir áratug. Þá
starfaði hann sem vinnumaður á
Sauðanesi í Langanesbyggð.
Hann hefur haldið góðum tengslum
við fólkið þar síðan þá og benti
Ágúst Marinó Ágústsson, bóndinn
á Sauðanesi, honum á að sækja
um þegar sveitarfélagið auglýsti eftir
nýjum ábúendum á Hallgilsstaði 1
í vor.
G o tt tæ k ifæ ri
Lars og T upaarnaq gerðu sér ekki
miklar vonir um að vera valin, enda
voru sex aðrir umsækjendur sem
sýndu jörðinni áhuga. Þau hlutu
hins vegar ábúðina í sumar og
höfðu skamman tíma til að flytja frá
G rænlandi. Aðspurður af hverju þau
ákváðu að flytja til Íslands, segir Lars
að tengdafaðir hans á G rænlandi
sé enn ungur og ekki komið að
ábúendaskiptum þar. Í Hallgilsstöðum
hafi falist gott tækifæri sem þau
ákváðu að grípa.
Börnin þeirra eru þrjú, drengurinn
I nuik, sex ára, stúlkan P aarma, fjögurra
ára og Anguik, tveggja ára drengur. Þau
eru komin í grunnskóla og leikskóla og
segir Lars að þeim gangi vel að læra
íslensku. Þá er Lars afar þakklátur fyrir
hversu vel nærsamfélagið hefur tekið
fjölskyldunni.
Þ rjú h undruð k indur
Nú eru liðlega þrjú hundruð kindur í
fjárhúsunum. Þá eru tvær geitur, fimm
hænur, fimm hestar og einn hundur á
bænum. Þau keyptu sjötíu kindur frá
fyrri ábúendum, en hinar hafi bæði
komið frá sveitungum og bændum
lengra að.
Stefnan sé að stækka stofninn upp
í sex hundruð ær, sem sé sá fjöldi sem
fjárhúsin rúma.
T upaarnaq hefur ákveðin tengsl við
Ísland, en systir hennar lagði stund á
búfræðinám á Hvanneyri og fór faðir
hennar í verknám á Y tra-Áland. Hún
hefur þó ekki dvalið á Íslandi áður,
nema á ferðalögum. Nú er T upaarnaq
við nám í ferðamálafræðum og vonast
unga parið til að geta byggt upp
ferðaþjónustu á bænum í einhverri
mynd.
Ú r landb ú naðarh é raði
U ppeldisstöðvar unga parsins eru í
nágrenni Q aq ortoq , sem er stærsti
bærinn á Suður-G rænlandi. Svæðið
var áður nefnt Eystribyggð af
norrænum mönnum.
Nokkuð er um sauðfjárbúskap í því
héraði og segir Lars búskaparhættina
mjög svipaða því sem hann hefur
kynnst á Íslandi. Sauðfjárkynið
þar sé náskylt því íslenska með
smávægilegum áhrifum frá norsku
fé. Í samanburði eru grænlensku
kindurnar háfættari og segir Lars þær
skila af sér ögn minna af kjöti. /Á L
Grænlensk fjölskylda
tekur við sauðfjárbúi
– Hallgilsstaðir 1 í eigu Langanesbyggðar með nýja ábúendur
LÍF & STARF
P aarm a er k om in á leik sk ó la. L ars segir b ö rnin sí n v era farin að ná t ö k um
á t ungum á linu.
N ý j u á b ú end urnir á H allgilsst ö ð um . T up aarnaq Bj erge M ot z feld t og L ars
L und á sam t b ö rnum sí num , I nuik sex á ra, P aarm a fj ö gurra á ra og A nguik
t v eggj a á ra.
N ú eru lið lega þ rj ú h und ruð k ind ur á H allgilsst ö ð um , en st efnan er að fj ö lga
up p í sex h und ruð .
L ars L und í fj á rh ú sunum á H allgilsst ö ð um . Í slensk a sauð fé ð æ t t i að v era nok k uð k unnuglegt , end a ná sk ylt þ v í
græ nlensk a. Myndir / Aðsendar
F im m h est ar eru á H allgilsst ö ð um . H é r t eym ir T up aarnaq einn m eð d ó t t urina
á b ak i.
T q