Bændablaðið - 14.12.2023, Síða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
„ Þ að er nístingskuldi með fj úki, og
þ að var orðið dimmt um kvöldið.
Þ að var líka síðasta kvöldið á
árinu, þ að var gamlárskvöld.“
Þannig hljóða fyrstu línurnar
í ævintýrinu Litla stúlkan með
eldspýturnar eftir H. C . Andersen,
en sagan hefur fangað huga lesenda
síðan árið 1845.
Saga litlu stúlkunnar með
eldspýturnar varpaði ljósi á stóran
hluta barna Evrópu sem áttu sér ekki
málsvara en bjuggu við kúgun og
örbirgð og gjarnan send af foreldrum
sínum til þess að afla viðurværis á
einhvern hátt eða betla á götum úti, á
tíma þegar annað hvert barn lét lífið
fyrir fimm ára aldur. Á þeim tíma
sem sagan kemur út bjó almenningur
við mikla hungursneyð og sjúkdóma
og í raun mátti kalla stærstan hluta
jarðarbúa undir fátæktarmörkum.
Lífslíkur Evrópubúa voru um 40
ár, sem er svipað og í mörgum
fátækustu ríkjum heims í dag.
Þ ung s kr ef þe irra smáu
Rekur saga Hans C hristians Anders-
sen sögu lítillar stúlku sem er send
út í snjóhríðina á gamlárskvöld,
klædd svuntugopa og ber á fótum
sér klunnalega tréskó, bláfátæk og
berhöfðuð. G engur litla stúlkan
um strætin og býður eldspýtur til
sölu við litlar undirtektir annarra
vegfarenda. Á hún fótum sínum fjör
að launa er vagnar keyra næstum yfir
hana og missir af sér skóna. Hleypur
drengur burt með annan skóinn en
hinn finnur hún ekki.
„ Þ a n n i g ge k k n ú v e s l i n gs s t ú l k a n
á b e r um f ót unum , þe i r v or u r auði r
o g b l á i r a f k u l d a . . . e n gi n n ha f ð i
ge f i ð he n n i e i n n e i n a s t a e y r i ; þ a r n a
ge k k hú n s á r s v ö n g o g n ö t r a n d i
o g v a r s v o n i ð u r d r e gi n , v e s l i n gs
bar ni ð.“
Ekki þorði hún heim því þar biðu
hennar barsmíðar þegar illa gekk
að afla fjár og hnipraði hún sig
saman á milli tveggja húsa þar sem
steikarilmurinn fyllti vitin og örlítið
afdrep var fyrir vindinum.
Kveikir litla stúlkan á eldspýtu til
að ylja sér og þykir loginn sem undur-
fagurt ljós sem hlýjar henni eitt
augnablik. Hún kveikir á annarri og
ímyndar sér að hún sé komin inn í
hlýjuna við matarborðið þaðan sem
steikarilmurinn berst og að lokum,
með þriðju eldspýtunni sér hún fyrir
sér stórt og fallegt jólatré. Hún réttir
upp hendurnar til að snerta fallegu
ljósin á jólatrénu en þá slokknar á
eldspýtunni og stúlkan sér stjörnu
hrapa á himninum.
Nú deyr einhver, segir hún við
sjálfa sig, því amma hennar sem
alltaf var henni svo blíð og góð
hafði sagt að þegar stjarna hrapaði
á himnum færi sál til guðs.
Hún kveikir á fjórðu og síðustu
eldspýtunni og sér í loganum hana
ömmu sína sem tekur hana í fangið.
E ngi nn v issi neitt
um alla þá f egu rð ...
Segir svo í text anum:
„ O g a m m a he n n a r t e k u r l i t l u
s t ú l k u n a á ha n d l e gg s é r , o g þ æ r
l y f t a s t í l j ó m a o g f ö gn u ð i u pp í hæ s t u
hæ ð i r , o g þ a r v a r e n gi n n k u l d i ,
e k k e r t hu n gu r o g e k k e r t v o l æ ð i . [ . . . ]
E n í s k ot i nu m i l l i hús anna s at l i t l a
s t úl k an m or guni nn e f t i r m e ð r oða í
k i n n u m o g b r o s á v ö r u m , hú n v a r
dái n; hún haf ði or ði ð út i á s í ðas t a
k v ö l d i á r s i n s . N ý á r s m o r gu n n i n n
r a n n u pp y f i r l i t l a l í k i ð , s e m s a t
m e ð e l ds pý t ur nar í k j öl t unni ; e i nu
e l d s pý t n a b r é f i n u ha f ð i hú n þ v í
næ r e y t t . „ Hún he f ur æ t l að að hi t a
s é r ,“ s ögðu þe i r , e r f r am hj á ge ngu.
E n gi n n v i s s i n e i t t u m a l l a þ á f e gu r ð ,
s e m f y r i r hana haf ði bor i ð, e ngi nn
v i s s i í þ v í l í k r i d ý r ð o g l j ó m a hú n
ge k k m e ð ö m m u s i n n i i n n í hi n a
e i l í f u ný ár s gl e ði .“
Er ekki annað hægt að segja en að
sagan snerti hjarta þess sem les þetta
sígilda verk sem einnig hefur verið
sett á svið oftar en einu sinni, lesin
í útvarpinu og birst á stóra tjaldinu.
Skr autsý ning og s öngl eiku r
Fyrst fregnist af Leikfélagi Vest-
mannaeyja í samstarfi við Kven-
félagið Líkn, sem býður upp á
svokallaða „ s k r a u t s ý n i n gu K v e n -
f é l a gs i n s “ árið 1922 eða 1923 , en þá
var Litla stúlkan með eldspýturnar
tekin fyrir. Samkvæmt tímaritinu
Bliki frá árinu 1965 kemur fram að
áhorfendum var sýningin sérstaklega
minnisstæð vegna aðalleikkonunnar,
Bergþóru Magnúsdóttur í Dal,
„ í hl u t v e r k i l i t l u s t ú l k u n n a r , e n d a
hr e i f hú n al l a m e ð f e gur ð s i nni og
góðum l e i k “ .
Frá árinu 193 7 má finna stutta
teiknimynd um söguna vinsælu,
framleidda af kvikmyndafyrirtækinu
C olombia P ic tures, og má í dag
finna hana á vefmiðlinum Y ouT ube
undir nafninu T he L i t t l e Ma t c h G i r l
( 1937) f yrir áhugasama.
Annan jóladag árið 193 9 var svo
saga litlu stúlkunnar auglýst sem
litskreytt teiknimynd í Nýja bíói og
sýnd reglulega í kvikmyndahúsum
næstu árin. U m vorið 1940 birtist
hún sem framhaldsteiknimynd
í Alþýðublaðinu og er líða tók
á öldina hófu skólar á borð við
Melaskóla undir stjórn tónmennta-
kennaranna, Magnúsar P éturssonar
og Helgu G unnarsdóttur og
Árbæjarskóla, undir stjórn Áslaugar
Bergsteinsdóttur, að setja upp
ævintýrið sem söngleik.
Í desembermánuði 1998 má finna
grein í Morgunblaðinu þar sem sagt
er frá unglingadeild Leikfélags
Keflavíkur, hátt á þriðja tug barna
og unglinga á aldrinum 11–16 ára
sem hófu að sýna, sem var kallað
„ F j ö l s k y l d u l e i k r i t i ð L i t l u s t ú l k u n a
m e ð e l d s pý t u r n a r u n d i r s t j ó r n
Hul du Ó l af s dót t ur .“
V ertu til staðar
Svona mætti lengi telja enda snertir
saga stúlkunnar streng í brjósti
okkar margra. Skulum við gæta
þess að enn í dag er litla stúlkan
með eldspýturnar á sveimi hjá okkur
í þjóðfélaginu með von um að fá
brauðmola af borði allsnægta.
Því skulum við hafa í huga að öll
ættum við að geta veitt þeim sem
standa verr en við sjálf. Þó ekki væri
nema bros. Þeir sem eiga erfitt með
að tjá sig á þann hátt geta þess í stað
styrkt eitthvert eftirfarandi samtaka
sem finna má á vefsíðunni w w w .
styrkja.is, nú eða líta til fólks í
samfélaginu sem líður skort. /SP
MENNING
Jólasagan:
Litla stúlkan með eldspýturnar
Æ v int ý rið v insæ la í form i t eik ni-
m ynd asö gu A lþ ý ð ub lað sins á rið
1 9 4 0 og auglý st sem b í ó sý ning á rinu
á und an. Myndir / T í m arit . is
Öðrum til góða má styrkja ýmislegt
www.styrkja.is
Konukot
Neyðarskýli fyrir húsnæðislausar konur í Reykjavík og hægt er að að leggja
inn á gjafareikning þeim til heilla. Bankanúmer og kennitala eru eftirfarandi:
bnr: 0133-26-001041, kt. 500513-0470. Vefsíða til glöggvunar www.rotin.is/
konukot Einnig er hægt að versla kertastjakann Glóð sem hannaður var með
það fyrir augum að ágóðinn styrkti starfsemi Konukots. Fæst í verslunum
Epal, Kokku og PRAKT jewellery og á vefsíðunni www.smidsbudin.is.
Geðhjálp
Hægt er að gerast félagi í Geðhjálp og borga 2.400 kr. ársgjald. Einnig má
styrkja samtökin í eitt skipti eða mánaðarlega eða eins og segir á vefsíðunni
www.gedhjalp.is ... „lagt þitt af mörkum til að setja geðheilsu í forgang og gefa
Geðhjálp skýrt umboð og styrk til að berjast fyrir bættri geðheilsu landsmanna.“
Undir hatti Geðhjálpar má finna heilmörg samtök víðs vegar um landið og
rétt að líta á síðuna www.gedhjalp.is/urraedin/ Má þar nefna samtökin
Aðstandendur utangarðsfólks, Aðstoð eftir afplánun, Samtök gegn kynferðis-
og heimilisofbeldi, Draumasetrið, útleigurými fyrir heimilislausa og Lýðheilsu-
setrið Ljósbrot – svo eitthvað sé nefnt.
Okkar heimur
Góðgerðarsamtök sem starfa í þágu barna sem eiga foreldra með geðvanda
og bæta stöðu þeirra með það að markmiði að tryggja að þau fái þann skiln-
ing, umhyggju og úrræði sem þau eiga skilið. Hægt er að greiða eingreiðslu
eða gerast mánaðarlegur styrktaraðili þessa verðuga málefnis í gegnum vef-
inn www.okkarheimur.is.
Stígamót
Stígamót eru baráttusamtök fyrir bættu samfélagi þar sem kynferðisofbeldi
er ekki liðið. Bæði eingreiðsla og mánaðarleg greiðsla eru í boði en þangað er
hægt að leita, fá stuðning, ræða við fagaðila og deila reynslu sinni. Ásóknin
í ráðgjöf hjá Stígamótum hefur aukist undanfarin misseri en eins og staðan
er núna er biðin eftir fyrsta viðtali því miður 7–8 vikur. Frekari uppl.
má finna á vefsíðunni www.stígamót.is.