Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
F j ölbreytt starfsemi er á vegum
V atnaj ökulsþ j óðgarðs. M esta
álagið er á sumrin, en veturnir eru
ekki dauður tími fyrir heilsárs-
starfsmenn. Landverðir sinna
náttúruvernd náttúrunnar vegna.
„Við erum uppi á hálendi þangað
til við þurfum ekki að vera lengur.
Við förum gjarnan til byggða þegar
snjórinn kemur og það verður ófært,“
segir Stefanía Eir Vignisdóttir,
aðstoðarþjóðgarðsvörður á
norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.
Það sé alltaf matsatriði hvenær
landverðir fari af svæðinu, því
það sé oft svokölluð jaðartraffík
langt fram eftir hausti. Í ár var
svæðið yfirgefið í lok september,
en lengst hafi landverðir verið fram
í miðjan október. Síðustu dagarnir
fari í að loka húsum, setja hlera
fyrir glugga, blása úr lögnum,
tæma moltusalernin og standsetja
allt fyrir vorið svo starfsemin geti
hafist um leið og landverðir komi
næsta sumar.
Stefanía er ekki eini aðstoðar-
þjóðgarðsvörður Vatnajökuls-
þjóðgarðs, heldur er hvert
svæði með sinn þjóðgarðsvörð
og aðstoðarmann. Þetta eru
heilsársstörf og segir Stefanía
veturinn ekki vera rólegheitatíma
því þá sé nóg að gera í utanumhaldi,
á meðan sumrin snúist um að halda
sér á floti. Nú sé til að mynda verið að
uppfæra stjórnar- og verndaráætlun,
gera ný upplýsingaskilti, vinna að
uppbyggingu nýrrar gestastofu
og fleira. Hennar starfssvæði er
hálendið norðan Vatnajökuls og er
hún með starfsaðstöðu við Mývatn.
G estasto fa í g amla
Sk ú tustaðask óla
Lengi stóð til að byggja nýtt hús
undir gestastofu við Mývatn, en árið
2021 keypti ríkið Hótel G íg, sem
áður var Skútustaðaskóli, með því
sjónarmiði að nýta húsnæðið undir
starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs,
U mhverfisstofnunar og fleiri
stofnana á svæðinu.
Stefanía segir sumarið hafa heilt
yfir gengið vel. Eitthvað var um
utanvegaakstur og var merkilega
mikil aukning á ferðafólki á
mótorhjólum. Nokkur slys hafi
orðið á vélhjólafólki, enda yfirborð
veganna oft sendið og alls ekki
auðvelt yfirferðar á bifhjólum.
Veðrið hafi verið einstaklega
gott í byrjun sumars, en þegar
hitabylgjan gekk yfir hafi tíðarfarið
verið hálf dapurlegt. Í sumar hafi
verið aukning á ferðamönnum
eftir að fjöldi þeirra féll í
heimsfaraldrinum. Þó sé ekki eins
mikil aukning uppi á hálendinu eins
og á láglendi. „Það var nóg af fólki,
en ekkert brjálæði.“
L andv erðir h afsjór up p lý sing a
Stefanía starfaði sjálf sem
landvörður frá 2009 til 2020.
Aðspurð um hvernig upplifunin
sé af starfinu segir hún að það sé
ólíkt eftir svæðum, sérstaklega á
milli þeirra sem starfi á láglendi
eða hálendi.
„Eins og ég upplifði mig, þá er
þinn helsti fókus náttúruvernd,“
segir Stefanía, þótt starfið feli líka í
sér að gæta að öryggi fólks. Hún vill
hvetja fólk sem ferðast um þjóðgarða
landsins til þess að tala við landverði
þar sem þeir búi yfir miklum
upplýsingum. Þá séu skipulagðar
reglulegar fræðslugöngur yfir allt
sumarið og sé hægt að nálgast
dagskrána á heimasíðu þjóðgarðsins.
Landverðirnir á norðursvæðinu
eru með aðsetur í Ö skju og
Herðubreiðarlindum þar sem mesta
aðsóknin er. T il að sinna betur
G æsavatnaleið, Dyngjufjallaleið og
Dyngjufjalladal eru jafnframt einn
eða tveir landverðir sem fari um
svæðið á bíl með tjaldi á pallinum
og gisti í tvær nætur.
Að jafnaði eru fimm til sex
landverðir að störfum í einu, en
samtals eru þrettán á norðursvæðinu
sem skipta með sér vöktum.
Vinnutarnir séu að hámarki tuttugu
og einn dagur í einu, en yfirleitt eru
þær tvær vikur. Áður fyrr var fólk
oft lengur á vaktinni, en Stefanía
segir starfið geta verið slítandi.
L ítið samfé lag
Stefanía segir aðstöðu landvarða
í Dreka, rétt hjá Ö skju, vera
sérstaklega góða. Landverðirnir
reyni að halda uppi sínu litla
samfélagi, ýmist með að elda eða
fara í göngur, en svo sé fólk líka
oft uppgefið í lok dags. „Við erum
svo fjarri allri þjónustu að við
getum ekki gert annað en að njóta
umhverfisins og hvert annars.“
Landverðir hverfi svo til misjafnra
starfa á veturna. Þetta sé fólk á
öllum aldri og sumir séu nemar,
á meðan aðrir eru kennarar eða
sjálfstætt starfandi í ýmsum geirum.
Einkennisfatnaður landvarða
minnir að sumu leyti á klæðnað
viðbragðsaðila. Aðspurð segir
Stefanía nokkuð blendnar tilfinningar
um einkennisbúninginn, enda
skjaldarmerkið mjög áberandi og
ekkert endilega augljóst að sá sem
honum klæðist sé landvörður en
ekki lögregla. Stefanía segir þá
ekki hafa valdheimildir, en taki
skýrslur af fólki sem sé staðið að
utanvegaakstri, sem séu svo sendar
til lögreglu, sem vinni málið áfram.
H æ g t að try g g ja innv iði
Aðspurð af hverju þjóðgarðar
séu mikilvægir, segir Stefanía að
með þeim sé hægt að tryggja að
allir innviðir séu í lagi, að það sé
utanumhald og einhver yfirbygging.
Hún nefnir sem dæmi að ef eitthvert
náttúrufyrirbrigði verður skyndilega
ofurvinsælt, þá geti þjóðgarðurinn
stokkið inn og byggt upp innviði til
þess að vernda náttúruna.
„Þjóðgarður er ekki ferða-
þjónustubatterí. Það allra síðasta
sem þjóðgarðar fara að gera er að
búa til einhvern massatúrisma. Þetta
snýst meira um að náttúran sé þarna
og svæðið sé verndað náttúrunnar
vegna,“ segir Stefanía.
Nokkrir hópar hafi verið
sérstaklega gagnrýnir á stækkun
þjóðgarðs á hálendinu, en hún segir
samhljóm andstæðra fylkinga vera
meiri en flestir telji.
G eimfarar v ið æ fing ar
Þótt venjulegt ferðafólk sé stærsti
hópurinn sem komi í Ö skju og
Herðubreiðarlindir, þá segir
Stefanía líka algengt að vísindafólk
sinni störfum þarna. „Það er svo
skemmtilegt við norðurhálendið
hvað þetta er mikið rannsakað
svæði, og ekki minna núna þegar
Askja er að rísa.“
U ndanfarin ár hafi verið
mikið af starfsfólki NASA við
geimrannsóknir. Í fyrrasumar hafi
könnunarjeppi, sem er ætlað að
ferðast um yfirborð Mars, verið
við prófanir og í sumar voru gerðar
tilraunir með flygildi sem muni
vinna með áðurnefndum jeppa.
Bíllinn var látinn keyra um í sandi
á meðan honum var fjarstýrt úr
mikilli fjarlægð.
„Í fyrra voru þau sem eru í
þjálfun til að fara til geimsins með
geimbúninga. Þau voru að æfa sig
í að ganga, taka sýni og bera hitt og
þetta,“ segir Stefanía. Þessi NASA-
teymi gefi jafnframt mjög mikið af
sér og var starfsfólkinu á svæðinu
boðið í grillveislu þar sem þau
fengu fræðslu um hvað þau væru
að gera. Þá var geimfarinn Jasmin
Moghbeli við þjálfun við Dreka
fyrir tveimur árum, en núna er hún
við störf í Alþjóðlegu geimstöðinni.
Stefanía segir þetta skemmtilegt í
ljósi þess að tunglfararnir æfðu
þarna á sjöunda áratugnum og sagan
sé því orðin löng.
LÍF&STARF
Náttúruvernd helsti fókusinn
– Með þjóðgarði séu tryggðir innviðir og utanumhald
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
St efaní a E ir V ignisd ó t t ir.
V at naj ö k ulsþ j ó ð garð ur rek ur gest ast ofu í h ú snæ ð i sem á ð ur h ý st i H ó t el G í g og sk ó la þ ar á ð ur.
L and v erð ir eru m eð fræ ð slugö ngur m j ö g reglulega
y r sumartímann.
M ars- R ov er j ep p i v ið p rufanir á h á lend inu í ná grenni
Ö sk j u. Myndir / Aðsendar
Við erum svo fjarri
allri þjónustu að við
getum ekki gert annað en
að njóta umhverfisins og
hvert annars.“