Bændablaðið - 14.12.2023, Qupperneq 26

Bændablaðið - 14.12.2023, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023 F j ölbreytt starfsemi er á vegum V atnaj ökulsþ j óðgarðs. M esta álagið er á sumrin, en veturnir eru ekki dauður tími fyrir heilsárs- starfsmenn. Landverðir sinna náttúruvernd náttúrunnar vegna. „Við erum uppi á hálendi þangað til við þurfum ekki að vera lengur. Við förum gjarnan til byggða þegar snjórinn kemur og það verður ófært,“ segir Stefanía Eir Vignisdóttir, aðstoðarþjóðgarðsvörður á norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Það sé alltaf matsatriði hvenær landverðir fari af svæðinu, því það sé oft svokölluð jaðartraffík langt fram eftir hausti. Í ár var svæðið yfirgefið í lok september, en lengst hafi landverðir verið fram í miðjan október. Síðustu dagarnir fari í að loka húsum, setja hlera fyrir glugga, blása úr lögnum, tæma moltusalernin og standsetja allt fyrir vorið svo starfsemin geti hafist um leið og landverðir komi næsta sumar. Stefanía er ekki eini aðstoðar- þjóðgarðsvörður Vatnajökuls- þjóðgarðs, heldur er hvert svæði með sinn þjóðgarðsvörð og aðstoðarmann. Þetta eru heilsársstörf og segir Stefanía veturinn ekki vera rólegheitatíma því þá sé nóg að gera í utanumhaldi, á meðan sumrin snúist um að halda sér á floti. Nú sé til að mynda verið að uppfæra stjórnar- og verndaráætlun, gera ný upplýsingaskilti, vinna að uppbyggingu nýrrar gestastofu og fleira. Hennar starfssvæði er hálendið norðan Vatnajökuls og er hún með starfsaðstöðu við Mývatn. G estasto fa í g amla Sk ú tustaðask óla Lengi stóð til að byggja nýtt hús undir gestastofu við Mývatn, en árið 2021 keypti ríkið Hótel G íg, sem áður var Skútustaðaskóli, með því sjónarmiði að nýta húsnæðið undir starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs, U mhverfisstofnunar og fleiri stofnana á svæðinu. Stefanía segir sumarið hafa heilt yfir gengið vel. Eitthvað var um utanvegaakstur og var merkilega mikil aukning á ferðafólki á mótorhjólum. Nokkur slys hafi orðið á vélhjólafólki, enda yfirborð veganna oft sendið og alls ekki auðvelt yfirferðar á bifhjólum. Veðrið hafi verið einstaklega gott í byrjun sumars, en þegar hitabylgjan gekk yfir hafi tíðarfarið verið hálf dapurlegt. Í sumar hafi verið aukning á ferðamönnum eftir að fjöldi þeirra féll í heimsfaraldrinum. Þó sé ekki eins mikil aukning uppi á hálendinu eins og á láglendi. „Það var nóg af fólki, en ekkert brjálæði.“ L andv erðir h afsjór up p lý sing a Stefanía starfaði sjálf sem landvörður frá 2009 til 2020. Aðspurð um hvernig upplifunin sé af starfinu segir hún að það sé ólíkt eftir svæðum, sérstaklega á milli þeirra sem starfi á láglendi eða hálendi. „Eins og ég upplifði mig, þá er þinn helsti fókus náttúruvernd,“ segir Stefanía, þótt starfið feli líka í sér að gæta að öryggi fólks. Hún vill hvetja fólk sem ferðast um þjóðgarða landsins til þess að tala við landverði þar sem þeir búi yfir miklum upplýsingum. Þá séu skipulagðar reglulegar fræðslugöngur yfir allt sumarið og sé hægt að nálgast dagskrána á heimasíðu þjóðgarðsins. Landverðirnir á norðursvæðinu eru með aðsetur í Ö skju og Herðubreiðarlindum þar sem mesta aðsóknin er. T il að sinna betur G æsavatnaleið, Dyngjufjallaleið og Dyngjufjalladal eru jafnframt einn eða tveir landverðir sem fari um svæðið á bíl með tjaldi á pallinum og gisti í tvær nætur. Að jafnaði eru fimm til sex landverðir að störfum í einu, en samtals eru þrettán á norðursvæðinu sem skipta með sér vöktum. Vinnutarnir séu að hámarki tuttugu og einn dagur í einu, en yfirleitt eru þær tvær vikur. Áður fyrr var fólk oft lengur á vaktinni, en Stefanía segir starfið geta verið slítandi. L ítið samfé lag Stefanía segir aðstöðu landvarða í Dreka, rétt hjá Ö skju, vera sérstaklega góða. Landverðirnir reyni að halda uppi sínu litla samfélagi, ýmist með að elda eða fara í göngur, en svo sé fólk líka oft uppgefið í lok dags. „Við erum svo fjarri allri þjónustu að við getum ekki gert annað en að njóta umhverfisins og hvert annars.“ Landverðir hverfi svo til misjafnra starfa á veturna. Þetta sé fólk á öllum aldri og sumir séu nemar, á meðan aðrir eru kennarar eða sjálfstætt starfandi í ýmsum geirum. Einkennisfatnaður landvarða minnir að sumu leyti á klæðnað viðbragðsaðila. Aðspurð segir Stefanía nokkuð blendnar tilfinningar um einkennisbúninginn, enda skjaldarmerkið mjög áberandi og ekkert endilega augljóst að sá sem honum klæðist sé landvörður en ekki lögregla. Stefanía segir þá ekki hafa valdheimildir, en taki skýrslur af fólki sem sé staðið að utanvegaakstri, sem séu svo sendar til lögreglu, sem vinni málið áfram. H æ g t að try g g ja innv iði Aðspurð af hverju þjóðgarðar séu mikilvægir, segir Stefanía að með þeim sé hægt að tryggja að allir innviðir séu í lagi, að það sé utanumhald og einhver yfirbygging. Hún nefnir sem dæmi að ef eitthvert náttúrufyrirbrigði verður skyndilega ofurvinsælt, þá geti þjóðgarðurinn stokkið inn og byggt upp innviði til þess að vernda náttúruna. „Þjóðgarður er ekki ferða- þjónustubatterí. Það allra síðasta sem þjóðgarðar fara að gera er að búa til einhvern massatúrisma. Þetta snýst meira um að náttúran sé þarna og svæðið sé verndað náttúrunnar vegna,“ segir Stefanía. Nokkrir hópar hafi verið sérstaklega gagnrýnir á stækkun þjóðgarðs á hálendinu, en hún segir samhljóm andstæðra fylkinga vera meiri en flestir telji. G eimfarar v ið æ fing ar Þótt venjulegt ferðafólk sé stærsti hópurinn sem komi í Ö skju og Herðubreiðarlindir, þá segir Stefanía líka algengt að vísindafólk sinni störfum þarna. „Það er svo skemmtilegt við norðurhálendið hvað þetta er mikið rannsakað svæði, og ekki minna núna þegar Askja er að rísa.“ U ndanfarin ár hafi verið mikið af starfsfólki NASA við geimrannsóknir. Í fyrrasumar hafi könnunarjeppi, sem er ætlað að ferðast um yfirborð Mars, verið við prófanir og í sumar voru gerðar tilraunir með flygildi sem muni vinna með áðurnefndum jeppa. Bíllinn var látinn keyra um í sandi á meðan honum var fjarstýrt úr mikilli fjarlægð. „Í fyrra voru þau sem eru í þjálfun til að fara til geimsins með geimbúninga. Þau voru að æfa sig í að ganga, taka sýni og bera hitt og þetta,“ segir Stefanía. Þessi NASA- teymi gefi jafnframt mjög mikið af sér og var starfsfólkinu á svæðinu boðið í grillveislu þar sem þau fengu fræðslu um hvað þau væru að gera. Þá var geimfarinn Jasmin Moghbeli við þjálfun við Dreka fyrir tveimur árum, en núna er hún við störf í Alþjóðlegu geimstöðinni. Stefanía segir þetta skemmtilegt í ljósi þess að tunglfararnir æfðu þarna á sjöunda áratugnum og sagan sé því orðin löng. LÍF&STARF Náttúruvernd helsti fókusinn – Með þjóðgarði séu tryggðir innviðir og utanumhald Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is St efaní a E ir V ignisd ó t t ir. V at naj ö k ulsþ j ó ð garð ur rek ur gest ast ofu í h ú snæ ð i sem á ð ur h ý st i H ó t el G í g og sk ó la þ ar á ð ur. L and v erð ir eru m eð fræ ð slugö ngur m j ö g reglulega y r sumartímann. M ars- R ov er j ep p i v ið p rufanir á h á lend inu í ná grenni Ö sk j u. Myndir / Aðsendar Við erum svo fjarri allri þjónustu að við getum ekki gert annað en að njóta umhverfisins og hvert annars.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.