Bændablaðið - 14.12.2023, Side 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
U p p bygging á lax eldi í
V estmannaeyj um er í fullum
gangi. F yrirtæ kið Lax ey tók við
fyrstu hrognunum í seiðaeldi sitt
við höfnina í V estmannaeyj um
fyrir skemmstu.
Lárus Ásgeirsson, stjórnar-
formaður Laxe yjar, segir að seiðin
nái hundrað gramma þunga á tæpu
ári. Þá verði þau flutt í eldistanka sem
verið er að byggja í Viðlagafjöru. Þar
með flytjist fiskarnir úr ferskvatni í
saltvatn sem líki eftir æviferli laxa
í ám. Þar nái fiskurinn sláturþunga
á tæpu ári.
„Við erum að gera þetta á
tveimur árum sem náttúran er að
gera á fjórum til fimm árum,“ segir
Lárus. T il samanburðar segir hann
framleiðsluferlið þegar notast er við
sjókvíar vera þrjú ár.
F y r s t a
s l á t run in
v e r ð i
h a u s t i ð
2025 en
Lárus segir
að þá séu
h r o g n i n
sem voru
t e k i n
inn fyrir
t v e i m u r
v i k u m
síðan orðin að glæsilegum fimm
kílóa fiskum sem hafi fengið að alast
upp við bestu skilyrði.
Viðlagafjara stendur á hrauni sem
myndaðist í eldgosinu og er stutt að
sækja volgan jarðsjó í borholur undir
athafnasvæðinu. Með því að síast í
gegnum gljúpt hraun verði sjórinn
það hreinn að engin þörf verði á
nýtingu varnarefna eða lyfja.
A fföll óv eruleg
T ankarnir verði yfirbyggðir, öll kerfin
lokuð og hver tankur sjálfstæður sem
geri líkur á smiti óverulegar. „Þegar þú
ert kominn með fiskinn upp á land þá
getur þú stýrt umhverfinu algjörlega,“
segir Lárus. Á líftíma fisksins sé gert
ráð fyrir tvö til þrjú prósent afföllum,
sem sé lítið í samanburði við fiskeldi
í sjó, þar sem tíu til tuttugu prósent
framleiðslunnar glatist.
T veir þriðju hlutar vatnsins
verði endurnýttir og er stefnt á
að úrgangsefnin fari í lífræna
áburðarframleiðslu.
Framk v æ mdir í fullum g ang i
Framkvæmdir eru í fullum gangi
við að koma upp fyrsta svokallaða
tankflekanum í Viðlagafjöru sem
samanstandi af átta eldistönkum.
Lárus segir hvern tank verða tuttugu
og átta metra breiðan og þrettán metra
háan, eða fimmtíu þúsund rúmmetrar.
Áætlanir Lax eyjar geri ráð fyrir að
einn tankfleki verði byggður á ári,
þar til þeir verði orðnir sex .
Starfsemi Lax eyjar mun fara fram
á fjórtán hekturum og segir Lárus
nægt rými í Viðlagafjöru. Þetta sé góð
nýting á landi, en framleiðsla Lax eyjar
verði nálægt þrjátíu þúsund tonnum á
ári þegar fullum afköstum verði náð.
Lárus bendir á að þetta sé þrefalt á
við alla sauðfjárræktina í landinu, en
framleiðsla á kindakjöti síðustu tólf
mánuði var 8.200 tonn. Afkastageta
Lax eyjar verði sambærileg og annarra
stórra lax eldisfyrirtækja.
1 2 0 störf
Áætlað sé að hundrað og tuttugu bein
störf verði við fiskeldið og annað eins
af óbeinum störfum. Mikil hefð sé
fyrir veiði og vinnslu sjávarafurða
í Vestmannaeyjum og falli þessi
starfsemi ágætlega í það samfélag. Ö ll
virðiskeðjan verði í Vestmannaeyjum
og nálægð við helstu markaði sé góð
en flutningaskip á leið til Evrópu
komi við í Eyjum.
Lárus segir að á bak við Lax ey
standi félag sem sé að mestu í eigu
Eyjamanna. Stærsti fjárfestirinn
sé fjölskylda í Eyjum sem rak
útgerðarfélagið Ó s, sem átti meðal
annars skipið Þórunni Sveinsdóttur.
Fyrr á árinu hafi þau selt kvóta,
skip og fisvinnslu til annars félags í
Vestmannaeyjum og hafi fjölskyldan
nýtt hagnað þeirrar sölu til að byggja
upp fiskeldið. Þeirra markmið sé að
efla byggð og bæta við einni stoð í
Vestmannaeyjum. / Á L
Hrogn komin í seiðaeldi Laxeyjar
– Fyrsta skrefið í landeldi í Vestmannaeyjum hafið
VARAHLUTIR Í
KERRUR
Vagnhöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 517 5000 | stalogstansar.is
st’ al og
Bílabúðin
Stál og stansar
A t h afnasv æ ð i L ax eyj ar í V ið lagafj ö ru. Á rleg fram leið sla á lax i á þ essu sv æ ð i v erð ur þ refalt m eiri en fram leið sla
k ind ak j ö t s í land inu. Myndir / Aðsendar
Íslenski fæðuklasinn:
Verður rekinn á viðskiptalegum forsendum
U nnið hefur verið að undirbúningi
Í slenska fæ ðuklasans um nokkurt
skeið og stefnt að þ ví að hann taki
til starfa snemma á næ sta ári.
Að sögn I ngibjargar Davíðsdóttur,
sem haft hefur forgöngu um stofnun
klasans, eru nánast öll formsatriði
frágengin og viðræður við helstu
bakhjarla starfseminnar vel á veg
komnar.
„Hún verður á viðskiptalegum
forsendum,“ segir I ngibjörg, spurð
um hvers eðlis starfseminnar
verði. Hugmyndin er að hún
þjóni frumkvöðlastarfi og
verðmætasköpun á landsvísu
og verði þannig ekki bundin við
einstaka landshluta.
E iga u ndir h ögg að s æ kj a
Landbúnaður og fæðuframleiðsla
hafa verið stunduð á Íslandi frá
fyrstu tíð og segir I ngibjörg að hvoru
tveggja hljóti að teljast lykilþáttur í
íslensku atvinnulífi og menningu.
Á sama tíma sé fullkomlega ljóst,
að sem atvinnugrein, hafi land-
búnaður og fæðutengd starfsemi
átt undir högg að sækja. Staðan sé
þung, starfsskilyrði bænda erfið og
nýliðun í stéttinni á undanhaldi. Það
sé erfitt að vera „eingöngu“ bóndi og
matvælaframleiðandi – að leggja sitt
af mörkum til fæðuöryggis og á sama
tíma að reyna að ná endum saman.
Hugmyndin með Íslenska fæðu-
klasanum er að hann nái yfir hvers
kyns verðmætasköpun í landbúnaði
og fæðutengdri starfsemi; ræktun,
framleiðslu og vinnslu, en einnig til
sviða sem tengjast sölu og neyslu.
„Við munum leggja áherslu á
frumkvöðla- og sprotastarfsemi auk
nýsköpunar og verðmætaskapandi
samstarfsverkefnum,“ segir hún.
Samstarfsverkefnin eiga meðal
annars að stuðla að styrkingu
byggða með starfsemi verkefna á
landsbyggðinni og klasinn mun taka
þátt í alþjóðlegum verkefnum þegar
það á við.“
M un sjálf stý ra starf-
seminni frá by rjun
Þegar I ngibjörg er spurð um
hvort neikvæð rekstrarskilyrði í
landbúnaði og matvælaframleiðslu
– og rekstrarafkomu í þessum
greinum – sé ekki hamlandi fyrir
stofnun fæðuklasans, segir hún
að það sé kannski einmitt ein af
ástæðum þess að hún ákvað að
ráðast í verkefnið. Hún segist
hafa mætt miklum skilningi og
stuðningi hjá stjórnvöldum, ekki
síður en atvinnulífinu, hún nefnir að
ríkisstjórn og innviðaráðuneytið hafi
hjálpað henni að taka fyrstu skrefin.
Enn fremur segist hún hafa notið
góðs af samstarfi við háskóla- og
rannsóknarsamfélagið, sveitarfélög,
aðra klasa, fyrirtæki og samtök af
ýmsu tagi, en játar því að hafa enn
ekki komist yfir að ræða við alla þá
sem lagt gætu lóð á vogarskálarnar.
Hún gerir ráð fyrir því að stýra
sjálf klasanum – og fylgja eftir
hugmyndum sínum um starfsemina.
„Ég er í leyfi núna frá störfum í
utanríkisþjónustunni og útiloka ekki
að snúa þangað aftur í framtíðinni.
Á þessu stigi er þó forgangsmál að
koma Íslenska fæðuklasanum á legg.
Það er mikil gerjun í þessum geira
og fjölmargar góðar hugmyndir
sem þarf að fóstra. I nnan klasans
verður hægt að fá stuðning og
ráðgjöf réttra aðila; einstaklinga,
fyrirtækja, fjárfesta, stofnana og
annarra sem sýna hugmyndinni
áhuga til áframhaldandi þróunar.
Það hefur vantað hvetjandi
vettvang fyrir hugmyndir og
verkefni innan landbúnaðarins og
fæðutengdrar starfsemi.
Íslenska fæðuklasanum er ætlað
að mæta þessari þörf og er hann settur
upp á viðskiptalegum forsendum, til
að koma góðum verðmætaskapandi
hugmyndum í réttan farveg,“ segir
I ngibjörg enn fremur.
Hún reiknar með að hægt verði
að ýta Íslenska fæðuklasanum úr vör
fyrir lok janúar.
/ s m h
I ngib j ö rg D av í ð sd ó t t ir.
Í DEIGLUNNI
L á rus Á sgeirsson.
Bændablaðið kemur næst út
11. janúar