Bændablaðið - 14.12.2023, Page 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
G arðyrkj ufræ ðingarnir í G arð-
yrkj uskólanum á R eykj um-F S u
fengu fyrsta íslenska kakóaldinið
eftir tíu ára ræ ktunarstarf og nú
vax a alíslenskar kakóp löntur í
bananahúsinu.
Nokkrar atrennur hafa verið
gerðar að kakóbaunaræktun á
Íslandi gegnum tíðina. P löntur hafa
misfarist vegna sveppasjúkdóms
í aldinum en hann hefur valdið
miklum skaða í kakóbaunarækt á
heimsvísu. Þá er mjög erfitt að fá
lifandi kakóplöntur þar sem víðast
hvar er bannað að flytja þær út af
samkeppnisástæðum og flókið að
flytja lifandi aldin milli landa því
að spírunarhæfni fræjanna minnkar
mjög 2-3 dögum eftir að fræin eru
tekin úr aldininu.
Sor gi r og s igr ar í
ræ kt unarferlinu
„Í nokkur skipti fengum við aldin
hingað til Íslands eftir ýmsum
leiðum og í öllum tilfellum voru það
aðilar sem ferðuðust frá suðlægum
slóðum og stungu kakóaldini ofan í
ferðatöskuna sína og settu í frakt,“
segir G urrý, G uðríður Helgadóttir
garðyrkjufræðingur. En of kalt
reyndist í fraktinni til að fræin lifðu
það af.
„Árið 2013 var nemandi okkar,
sem jafnframt er flugstjóri, á
ferð frá Mið-Ameríku og hingað
heim,“ heldur hún áfram. „Hann
heimsótti félaga sinn sem vann á
kakóplantekru, fékk hjá honum
tvö aldin og kom með þau heim í
handfarangri. Við fengum þau
hingað beint í skólann og
opnuðum við hátíðlega
athöfn. Sáðum öllum
kakóbaununum sem við
fengum úr þessum
aldinum og alls spíruðu
áttatíu plöntur,“ segir
hún.
P l ö n t u r n a r
voru settar í sóttkví
í klefa í tilraunahúsi
G arðyrkjuskólans, ef ske
kynni að hinn skæði sveppasjúkdómur
hefði fylgt þeim. „Síðan spíra þarna
upp áttatíu plöntur en af því að við
þurftum að hafa þær í gróðurhúsi sem
er með steyptu gólfi gekk okkur illa
að halda loftrakanum nógu háum,“
segir G urrý. „Svo þær drápust, hver
af annarri. Á endanum voru ekki nema
þrjár plöntur sem lifðu af og þær voru
settar upp í bananahús og þar hafa þær
vax ið síðan.“
Fy rstu k y nslóðar p löntur
Kakóplantan er runni eða lítið tré sem
verður kynþroska um 7-10 ára gömul
og blómstrar þá agnarsmáum blómum.
G urrý segir fyrstu blómin hafa komið
á plönturnar í bananahúsinu einmitt
þegar þær voru sjö ára. Blómgun hafi
svo aukist ár frá ári og þær blómstrað
ríkulega í sumar. Að fá aldin var hins
vegar alveg óvænt.
„Við áttum alls ekki von á þessu.
Í heimkynnum plöntunnar sjá litlar
sveifflugur um að fræva blómin
en hér eru engar slíkar flugur. Ég
fékk um daginn póst frá frönskum
kakósérfræðingi sem hafði frétt
af fyrsta kakóinu á Íslandi og
sagði að sjálfsfrjóvgun væri þekkt
hjá kakóplöntum þó að hún væri
óalgeng,“ segir hún.
Aldinið var meðalstórt, innan við
20 c m á lengd og 8 c m í þvermál og
í því leyndust 13 baunir. Allt að 40
baunir geta verið í einu aldini. Af
baununum 13 voru 4 komnar með
rætur og voru þær gróðursettar og
eru því fyrstu kynslóðar íslenskar
kakóplöntur og dafna vel.
Sú k k ulaðið mjög g o tt
„Okkur fannst svo spennandi að
fá fyrsta íslenska kakóið að við
töluðum við súkkulaðiframleiðandann
Omnom um að búa til súkkulaði úr
baununum,“ heldur G urrý áfram.
Búið var til handgert súkkulaði úr 9
baunum og komu úr því 7-8 molar.
Frumherjarnir fengu auðvitað þann
heiður að njóta molanna; G urrý ásamt
samstarfsfólkinu sem hafði annast
plönturnar.
„Ég bjóst jafnvel við einhverju
hræðilegu,“ svarar hún, aðspurð um
hvernig fyrsta íslenska súkkulaðið
hafi smakkast. „Ég er mest fyrir
mjólkursúkkulaði og vil hafa það
dísætt, en þetta var mjög gott dökkt
súkkulaði og bragðið lá á milli kaffis
og súkkulaðis. Auðvitað hafði verið
sett í það smá kakósmjör til að mýkja,
og sykur svo það var ekki biturt.
Kakómeistarinn lýsti bragðinu eins
og af aðeins brenndu poppi, sem er
nærri lagi,“ segir hún.
„Við vonum að þessi óalgengi
atburður í kakóplöntum, sjálfs-
frjóvgun, endurtaki sig og að við fáum
fleiri aldin í framtíðinni,“ segir G urrý.
„Við eigum náttúrlega þrjár plöntur og
fjóra nýgræðinga núna sem líta bara
mjög vel út og það eru ekki nema tíu
ár þangað til þeir fara mögulega að
bera aldin!“
G arðyrkjuskólinn er með ýmis
tromp á hendi þegar kemur að
framandlegri ræktun. Kaffirunnar
vax a á Reykjum og hefur íslenskt kaffi
verið selt á opnu húsi á sumardaginn
fyrsta í nokkur skipti.
„Við eigum góðan slurk af baunum
núna svo vonandi náum við að
vera með kaffi í vor,“ segir hún og
klykkir út með að vanilla sé næsta
ræktunaráskorun. Hver veit nema
vanillusúkkulaði með kaffikeimi verði
á boðstólum í G arðyrkjuskólanum
þegar fram líða stundir. /s á
Ræktun:
Kakóbaunaraunir-
– Gafst ekki upp þrátt fyrir áratuga barning í kakótilraunum
G uð rí ð ur H elgad ó t t ir garð yrk j ufræ ð ingur, sem st und að h efur k ak ó ræ k t ar-
t ilraunir um langt sk eið , h eld ur sigri h ró sand i á k ak ó ald ini. Í sum ar b ar,
ö llum að ó v ö rum , k ak ó p lant a sem set t v ar á rið 2 0 1 3 í m old í b ananah ú si
G arð yrk j usk ó lans að R eyk j um , ald in – h ið fyrst a á Í sland i. Myndir / Aðsendar
F rá ald infræ j um t il sú k k ulað is. O m nom v ann
gó m sæ t a sú k k ulað ib it a ú r að eins 9 k ak ó b aunum
og t elst þ að v era allra fyrst a í slensk a sú k k ulað ið .
Kakóplöntur
Kakóplöntur geta orðið 100 ára
gamlar en gefa flestar af sér vinn-
anlegar kakóbaunir í um 25 ár.
Kakóbaunarækt á heimsvísu hefur
ekki staðið undir eftirspurn síðan
Asíubúar tileinkuðu sér súkku-
laðiát. Sveppur hefur einnig valdið
skaða í ræktun og sömuleiðis eru
þurrkar og hitar farnir að valda
minnkandi uppskeru, einkum í
Afríku. Þessu fylgir hærra verð
og einnig að sífellt minna súkku-
laðimagn er í súkkulaðivörum og
meira af öðrum efnum til að drýgja
þær. Gert er ráð fyrir að alþjóðlegur
kakóbaunamarkaður muni hækka
umtalsvert á komandi árum. Tekjur
á kakómarkaði nema 12,8 mill-
jörðum Bandaríkjadala í ár. Gert er
ráð fyrir að markaðurinn vaxi ár-
lega um 5,89% fram til 2030.
T v ö k ak ó ald in k om u t il Í sland s h eilu og h ö ld nu á rið 2 0 1 3 . F ræ in reynd ust lifand i og v oru set t í m old . Ý m islegt h ent i í
up p v ex t i þ eirra og nú st and a eft ir nok k rar st á t nar k ak ó p lö nt ur: Þ rj á r eru t í u á ra gam lar og fj ó rar að eins m isserisgam lar,
k om nar ú r fyrst a k ak ó ald ini sem v ax ið h efur á Í sland i og þ v í fyrst u k ynsló ð ar alí slensk ar k ak ó p lö nt ur.
T v eggj a á ra gö m ul k ak ó p lant a.
K ak ó p lant a G arð yrk j usk ó lans á
R eyk j um b ar ynd isfö gur og ö rsm á
b ló m í sum ar. Ú r þ v í v arð ald in.