Bændablaðið - 14.12.2023, Síða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
N áttúruvín hafa notið vax andi
vinsæ lda meðal neytenda á
undanförnum árum. N áttúruleg
gerj un þ rúgna er þ ar eitt
megineinkennið.
Nýlega kom á markað villiöl
sem sækir bragðeiginleika sína í
örveruflóru íslenskrar náttúru.
„Við höfum verið að grúska
og pæla í bruggun, geri og gerjun
og velt því fyrir okkur hvort til
væru staðareinkenni. Við höfum
áhuga á líffræði og vissum að það
væri hægt að sækja villt ger og
ákváðum að prófa,“ segir Kjartan
Ó li G uðmundsson, kokkur og
vöruhönnuður, en hann og Sveinn
Steinar Benediktsson hönnuður eru
mennirnir á bak við vörumerkið
G rugg& Makk sem framleiðir bjór
með aldagamalli bruggaðferð. Í
því felst að safna geri á tilteknum
stöðum á landinu og brugga úr því
súrbjór.
„Við fórum á tíu staði á
Snæfellsnesi á tveimur mismunandi
tímabilum, um hásumar og haust.
Við völdum mismunandi landslag og
hæð frá sjávarmáli og settum þar
út söfnunarvökva. Markmiðið
var að fanga góða gerkúltúra sem
hægt væri að nota í bjórbruggun.
Einnig þótti okkur áhugavert
að athuga hvort hægt væri að
kortleggja bragðflóru Íslands
með þessum hætti, grípa bragð
staðar á ákveðinni stund í tíma,
svolítið eins og ljósmynd nema
bara vera að grípa augnablikið í
flösku,“ segir Kjartan en fyrstu
bjórar framleiðslunnar komu á
markað undir lok síðasta árs.
Drykkirnir heita eftir
tilteknum stöðum hvar örverum
bruggsins var safnað. T veir eru
nú fáanlegir; Djúpalónssandur og
Svörtuloft, en von er á Kirkjufelli.
„Ö lið er smá fönkí, smá eins og
síder með trópískum ávaxt atónum,
sem er greinilega það bragð sem
gerið framleiðir í lífsferli sínum.
Á meðan Svörtuloft er með meiri
skógarbotn, minna súr og eins og
niðursoðnir djúpir ávex tir, þá er
Djúpalónssandur bjartari, ferskari
og súrari,“ útskýrir Kjartan.
Hann segir að það hafi í
raun komið á óvart
hvað staðareinkenni
voru sterk.
„Við bjuggumst
við að það kæmu
mjög mismunandi
niðurstöður milli
árstíða, en það kom
á óvart að það eru
líkindi milli þeirra
örvera sem safnað var
á sama stað. Kannski
bendir það til þess að
það sé einhver tenging
á milli umhverfis og
örveruflóru.“
Kjartan undirstrikar þó að þeir
félagar nálgist framleiðsluna sem
hönnuðir og listamenn, frekar en út
frá vísindum þó stutt sé í tengingu
við náttúru- og líffræði.
„Villiölið er atlaga að því að sýna
fram á líffræðilegan fjölbreytileika
og vekja athygli á örverunum í
kringum okkur. Þær eru mikilvægar
fyrir heilsu okkar og jarðarinnar.“
/ghp
SKRALLI ER UMBOÐSAÐILI FYRIR LILLESETH SNJÓKEÐJUR
VÖRUBÍLAR
DRÁTTARVÉLAR
VINNUVÉLAR
Í meira en 70 ár hefur Lilleseth Kjetting
framleitt hágæða snjókeðjur fyrir norskar
aðstæður. Fyrsta sendingin frá þeim er á
leiðinni til Skralla og aðeins örfá pör óseld.
Finndu fyrir öryggi á veginum í vetur
Upplýsingar á Facebook
eða í síma 862 4046 skralli.is
Sv einn St einar Bened ik t sson og K j art an Ó li G uð m und sson sö fnuð u geri ú t i í ná t t ú runni sem þ eir not a í b j ó rb ruggun.
Mynd / Aðsend
Handverksbrugg:
Öl sem endurspeglar landslag
Handverk:
Útskorinn 20 punda lax
V agn I ngólfsson í Ó lafsvík er
magnaður handverksmaður þ egar
kemur að útskurði og öðru slíku.
Nýjasta verkið hans er rúmlega
20 punda lax , sem hann skar út eins
og um nýgenginn lax væri að ræða.
„Þetta var flókið en mjög gefandi
og skemmtilegt verkefni. Mesta
vinnan fór í að gera hreistrin í
búkinn, sem eru á milli sex og
sjö þúsund, allt frá 4 mm
og upp í 9 mm
en ég þurfti
að brenna þau
í fiskinn með
sérstöku járni,“
segir Vagn. Hann
fékk svo mann að
nafni Danny Harris í
Arkansas-ríki í Bandaríkjunum,
sem er fagmaður fram í fingurgóma,
til að sprauta og handmála fiskinn.
„Ég sendi fiskinn út til hans, hann
græjaði allt sem þurfti að gera og sendi
mér svo aftur til baka. Ég gæti ekki
verið ánægðari með útkomuna,
þetta var meiri háttar vel gert
hjá Danny.“
Fiskurinn sómir sér nú vel
á fallega útskornum platta
heima hjá Vagni og
fjölskyldu í Ó lafsvík
og vekur þar
athygli gesta
og gangandi.
/MHH
V agn I ngó lfsson
m eð glæ silega
lax inn sinn.
Mynd / Alfons Finnsson
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga:
Nýr kaupfélagsstjóri
Þ órunn Ý r E líasdóttir hefur
verið ráðinn ný r kaup fé lagsstj óri
K aup fé lags V estur-Húnvetninga
á Hvammstanga eftir að B j örn
Líndal T raustason sagði up p
störfum í haust.
Þórunn tekur við nýja
starfinu 1. febrúar næstkomandi.
Hún hefur víðtæka reynslu af
uppbyggingu og rekstri fyrirtækja
og stofnana. Hún var í yfir 3 0 ár
rekstrar- og síðar fjármálastjóri hjá
heildversluninni Kemis ehf. sem var
fjölskyldufyrirtæki í eigu foreldra
hennar. Einnig átti hún og rak
blómaverslun í Breiðholtinu ásamt
því að hafa starfað sem skrifstofu- og
fjármálastjóri hjá félagasamtökunum
Samhjálp. Síðustu ár hefur hún sinnt
bókhaldsstörfum í ráðhúsi Húnaþings
vestra.
Ættleidd frá Suður-Kóreu
Þórunn Ý r er fædd árið 1976 í Suður-
Kóreu og er ættleidd þaðan. Hún var
sótt þangað þegar hún var níu mánaða
gömul og var alin upp í Breiðholti þar
sem hún hefur búið lengst af. Hún er
einkabarn foreldra sinna.
„Við hjónin réðum okkur svo
í sláturtíð hjá sláturhúsi SKVH á
Hvammstanga haustið 2020 og
ætluðum okkur að vera í tvo mánuði,
sem nú eru orðin þrjú ár og eftir þessa
ráðningu er ekki fararsnið á okkur í
bráð svo það teygist áfram á þessum
tveimur mánuðum,” segir Þórunn Ý r
hlæjandi. Hjónin eiga sex börn, þrjár
tengdadætur og átta barnabörn.
Fjörutíu starfsmenn
Þórunn Ý r segir að nýja starfið leggist
ljómandi vel í sig. „Ég fæ að fást við
fólk, þjónusta fólk, glíma við tölur og
verð, markaðssetningu og öllu því
sem svona rekstri fylgir. Vonandi verð
ég góður kaupfélagsstjóri, sem held
áfram að halda skútunni uppréttri
og á fleygiferð. Ég vil ná fram því
besta frá þeim mannauði sem er þarna
innandyra og halda uppi góðu og háu
þjónustustigi til kaupenda.“
Fjörutíu manns starfa hjá
kaupfélaginu, sem er á Hvammstanga,
en þar eru starfandi þrjár deildir;
kjörbúð, byggingar,- og búvörudeild
og pakkhús. / MHH
H lut i af fj ö lsk yld unni, sem er st ó r og m ynd arlegur, end a eiga Þ ó runn og m að ur
h ennar sex b ö rn, þ rj á r t engd ad æ t ur og á t t a b arnab ö rn. Myndir / Aðsendar
Þ ó runn Ý r E lí asd ó t t ir.
Þú finnur Bændablaðið
á www.bbl.is,
Facebook & Instagram