Bændablaðið - 14.12.2023, Qupperneq 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
LÍF&STARF
F rá ársbyrjun hefur R áðgjafar-
miðstöð landbúnaðarins ( R M L )
staðið fyrir nýrri nálgun ráðgjafar
sem snýst um samvinnu og samtal
milli bænda þar sem þeir miðla
þekkingu sinni og reynslu undir
handleiðslu ráðunauta. V erkefnið
hefur lagst vel í bændur.
„Ég kom til starfa hjá RML 1.
september 2020 og eitt af fyrstu
símtölunum sem ég fékk frá bónda
var frá Þórarni Leifssyni í Keldudal.
Erindið var að benda á frétt sem þá
hafði birst í norska blaðinu Buskap
þar sem mjög góðum árangri var
lýst meðal bænda sem höfðu verið í
stýrðri hóparáðgjöf í Finnlandi sem
þá var verið að innleiða í Noregi.
Þórarinn benti á mikilvægi þess
að þannig ráðgjöf stæði íslenskum
bændum til boða og brýndi nýja
starfsmanninn að gera eitthvað
til þess að svo yrði,“ segir Þórey
G ylfadóttir, sem hefur haldið utan
um verkefnið ásamt Eiríki Loftssyni
og Sigurði T orfa Sigurðssyni.
„T il að stytta mjög sögu um leit
að fjármagni og umsóknarskrif
og neitanir úr Matvælasjóði og
T ækniþróunarsjóði að þá fékkst
fjármagn m.a. úr þróunarfé
nautgriparæktarinnar.
RML leitaði til finnsks
sérfræðings, Anu Ella, sem hefur
mikla reynslu á þessu sviði, til þess
að koma að innleiðingu þessarar
gerðar ráðgjafar sem á ensku
gengur undir disc ussion groups en
við ákváðum að nefna bændahópa.
Anu hefur komið að kennslu og
þjálfun afmarkaðs hóps starfsmanna
RML í gegnum netfundi og fjórir
starfsmenn RML farið til Finnlands
til að fylgjast með hópum þar og
Anu komið tvisvar til Íslands til að
þjálfa starfsmenn RML.
Þessi gerð ráðgjafar krefst
annarrar færni en sú hefðbundna
ráðgjöf sem við almennt þekkjum
og mikilvægt er að ná að tileinka
sér það sem til þarf svo að bestur
árangur náist.“
Lögðu á herslu á jarðræ kt
og fóðuröflun
Í bændahópum er beitt aðferðarfræði
sem tengir faglega ráðgjöf við
jafningjafræðslu í afmörkuðum
hópum.
„Það er mikil og góð reynsla af
þessari gerð ráðgjafar erlendis en
fyrirkomulagið er aðeins breytilegt
eftir löndum. Ákveðið var að leggja
áherslu á þætti tengda jarðrækt
og fóðuröflun svo sem bætta
nýtingu áburðarefna en hægt er
að aðlaga þessa gerð ráðgjafar að
hvaða viðfangsefni sem er. T veir
ráðunautar eru með hverjum hóp
sem samanstendur af einstaklingum
frá tíu búum. Fleiri en einn getur
mætt frá hverju búi en nauðsynlegt
er að alltaf komi sami aðili frá búi
til þess að samfella náist í vinnunni.
Ráðunautarnir tveir skipta með sér
ólíkum og fyrir fram ákveðnum
hlutverkum, annar er lóðsi meðan
hinn aðstoðar. Í upphafi velur
hópurinn saman þau viðfangsefni
sem hann vill leggja áherslu á, á
þeim fimm fundum sem hópurinn
hittist yfir árið. Mikið er lagt upp
úr skipulagi þannig að í upphafi eru
dagsetningar fundanna líka ákveðnar
sem og tímasetningar þannig að
hægt sé að skipuleggja fram í tímann
enda getur verið mjög erfitt að ætla
að finna sameiginlegar dagsetningar
jafnóðum eins og fólk þekkir.
Dagsetningar taka að hluta mið af
störfum tengdum viðfangsefninu
þannig að fundur er t.d. ákveðinn
þegar líklegt er að menn séu
byrjaðir að huga að jarðvinnslu að
vori og því með hugann við þætti
tengdum þeim vorverkum. Fyrsti
fundurinn er í fundarsal en annars
er hist á bæ einhvers úr hópnum.
Skipulagður fundur hverju sinni eru
3 klukkustundir og er sú tímalengd
ákveðinn í samræmi við reynslu
erlendis frá.“
Hægt er að hafa fyrirkomulag
hópanna með aðeins mismunandi
hætti en það tengist þá líka þróun
þeirra í verkefninu þegar hópur
hefur verið starfandi saman í aðeins
lengri tíma.
M ikilvæ gt að fá innsýn
í bú skap kollega
RML bauð upp á fyrstu tvo hópana
í ársbyrjun 2023 .
„Vel hefur gengið og það hefur
verið gaman að taka þátt í vinnu með
þessum hópum og líka gaman að
koma að því að geta boðið íslenskum
bændum upp á nýja gerð ráðgjafar
sem þeir kölluðu eftir. Erfitt er að
sýna fram á mælanlegan árangur af
eins árs verkefni þegar um er að ræða
jarðrækt en við erum þess fullviss
að bændur hafi haft bæði gagn og
gaman af vinnunni í hópunum enda
erum við mjög bjartsýn á að þessir
tveir hópar muni halda áfram á næsta
ári. Erlendis hafa sumir hóparnir
haldið saman lítið breyttir í yfir tíu
ár og hafa náð mjög góðum árangri.
Eftir því sem tengsl verða betri
og traust milli bænda eykst þá næst
betur að greina hvað vel er gert og
eins hvaða vandamál menn eru
að glíma við sem oft eru svipuð á
milli búa.“
Þórey segir að bæði bændur
og ráðunautar hafi lært inn á ný
vinnubrögð. „Það er mjög gaman
að upplifa breytinguna á hvorum
hóp frá fyrsta fundi til þess síðasta.
Þar sem meirihluti funda er haldinn
á búum þá gefst gott tækifæri til að
skoða og sjá hjá hver öðrum sem
er mjög gott og það hefur sýnt sig
að bændur hafa haft mikinn áhuga
á því og finnst það vera mikilvægur
þáttur.“ /ghp
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins:
Farsælir bændahópar
– Jafningjafræðsla og fagleg hóparáðgjöf
„
“
„ “.
Athyglisverð notkun á „naflastreng“
Ágúst Ingi Ketilsson, Brúnastöðum:
Við vorum aðallega að fjalla um
jarðrækt í bændahópnum. Ég
lærði heilmargt bæði af öðrum
bændum í hópnum og svo því sem
ráðunautarnir miðluðu af þekkingu
sinni. Svo er gaman að kynnast nýju
fólki, suma í hópnum þekkti ég, aðra
ekki. Einnig var gott og gagnlegt að
fara í heimsókn á búin hjá öðrum í
hópnum. Að taka þátt í þessu gerir
mann víðsýnni og áhugasamari um
búskapinn ásamt því að komast
í góðan félagsskap. Ég fékk góða
innsýn inn í kornræktina og einnig
smára í fræblöndum en náði lítið
að prufa síðastliðið vor þar sem
ég ákvað að vera í fremur lítilli
jarðvinnslu vegna mikilla rigninga.
Þá var einkar athyglisvert að sjá og heyra um svokallaðan „naflastreng“ til
dreifingar á mykju á tún, en tveir úr hópnum höfðu reynslu af notkun svoleiðis
búnaðar. Þetta er alveg ný tækni hér á landi.
Vinskapur og traust
Geir Árdal og Bjarni Árdal, Dæli:
Að taka þátt í bændahóp hefur haft
mikil og góð áhrif. Við höfum kynnst
nýju fólki frá ólíkum stöðum og
hafa þau öll mismunandi áherslur í
ræktun og búskap almennt. Þetta
hefur bætt við þekkinguna og hefur
verið virkilega gaman að koma heim
á bæina, sjá og fræðast um hvað
bændur eru að gera. Skemmtilegt
uppbrot og tilbreyting í starfinu sem
gefur manni nýja sýn og þekkingu
og hvetur mann áfram til að gera enn
betur. Það er gott að vera partur af
hóp undir handleiðslu ráðunauta RML sem er passlega stór. Í hópnum hefur
myndast vinskapur og traust þar sem hægt er að leita ráða. Einnig hefur verið
hjálplegt að hægt hefur verið að koma með fyrirspurnir í gegnum Facebook-
síðu hópsins ef einhverjar vangaveltur koma upp. Eftir þessa fundi höfum við
prufað ýmislegt í sambandi við ræktun og munum klárlega reyna okkur áfram
með fleira næsta sumar. Þetta hefur til dæmis fengið okkur til að endurhugsa
hvernig við geymum og dreifum skít. Þá höfum við kynnst því hvernig aðrir
hafa notað drenlagnir til þurrkunar á túnum sem við höfum ekki gert mikið af.
Kaffispjallið góða
Halldór Gunnlaugsson, Hundastapa:
Maður lærir meira af þessum hóp
heldur en að hlusta á fræðsluerindi,
að hittast heima hjá hver öðrum
og ræða hlutina. Hvernig þeir gera
hlutina, læra af þeirra reynslu.
Og gott að fara aðeins út fyrir sitt
hérað. Allt var fræðandi, skemmtilegt
og sérstaklega umræður í kainu eftir
fundinn þar sem var rætt allt á milli
heima og geima.
Bændahópur skoðar kornakur. Myndir / Aðsendar Eiríkur Loftsson ræðir við hóp bænda um tegundir á
rnaköldum vordegi á Suðurlandi.
órey ylfadóttir og Sigurður agnússon frá Hnjúki
skoða innihald í ólíkum heyrúllum.