Bændablaðið - 14.12.2023, Qupperneq 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Á F orsæti og S andbakka í F lóa-
hreppi búa bræðurnir Ólafur og
Albert S igurjónssynir. Þ eir eru
báðir húsasmíðameistarar og hafa
unnið náið saman alla tíð. Þ á eru
þeir forfallnir flugáhugamenn
og eru með flugvöll rétt utan við
túngarðinn hjá sér.
Að auki við smíðarnar og flugið
er Ó lafur mikill handverksmaður
og setti á fót safnið T ré og list
ásamt eiginkonu sinni, Bergþóru
G uðbergsdóttur, árið 2007. Þar
er fjöldi gripa eftir hann, Siggu á
G rund og fleiri. Merkasti munurinn
á safninu er þó pípuorgel, sem er
líklega það stærsta sem er í einkaeigu
hérlendis. Ó lafur er fæddur árið
1945 í Forsæti og hefur búið þar
síðan. Albert er fjórum árum yngri
og býr á Sandbakka, sem er hundrað
metrum frá fyrrnefnda bænum.
O rganisti í kirkjum fyrir tvítugt
„Ég er búinn að vera sjálfstætt
starfandi síðan 1968,“ segir Ó lafur,
sem hefur lengst af haft smíðar
sem aðalstarf. Hann hefur líka haft
atvinnu af orgelleik og kórstjórn.
Ó lafur lærði fyrst á orgel hjá
Sigurjóni föður sínum í kringum tíu
ára aldurinn, en sá var sjálflærður
og kunni að lesa nótur. Árið 1959
byrjaði Ó lafur að sækja tíma á
Selfossi og fyrir tvítugt var hann
farinn að spila á orgel við athafnir
í Villingaholtskirkju. Síðar þegar
hann var orðinn sjálfstæður
byggingameistari og búinn að stofna
fjölskyldu fór hann að læra markvisst
með því að sækja tónlistarnámskeið
hjá söngmálastjóra og tónskóla
Þjóðkirkjunnar.
U m og eftir 1970 fór að mæða
mikið á Ó lafi á sumrin þegar aðrir
organistar í héraðinu voru í orlofi.
Hann spilaði nánast hverja einustu
helgi við jarðarfarir því Ó lafur var
sá eini sem gat hlaupið í skarðið
fyrirvaralaust. „Mér telst til að ég
hafi spilað í flestöllum kirkjum
Árnessýslu einhvern tímann og
stórum hluta Rangárvallasýslu.“ Þá
spilaði hann oft í Vestmannaeyjum
í forföllum organistans þar.
S afn í gömlu fjósi
Árið 1990 tók Ó lafur að sér söngstjórn
Karlakórs Selfoss og gegndi hann
því hlutverki í áratug. Hann segir að
það hafi verið stórkostlegur tími og
ógleymanlegt að starfa með þeim.
Þegar handverkið var farið að leita á
huga Ó lafs steig hann til hliðar sem
kórstjóri árið 2000, enda átti hann
ekki mínútu aflögu til að smíða
eitthvað að gamni sínu. Hann hefur
sinnt tréhandverkinu af krafti síðan
þá og liggur eftir hann fjöldinn allur
af gripum, flestir renndir úr tré.
Ó lafur notar gjarnan mismunandi
viðartegundir til að ná fram mynstri
og áferð og beitir sérstakri nákvæmni.
Árið 2007 fékk Bergþóra,
eiginkona Ó lafs, þá hugmynd að
opna safn með handverki í gamla
fjósinu á bænum, en á þeim tíma
var það nýtt sem geymsla. Nú reka
þau saman safnið T ré og list, þar
sem eru sýndir munir eftir Ó laf,
Siggu á G rund og fleiri. Þá eru
hjónin búin að setja upp á einum
stað í safninu trésmíðaverkstæði
föður Ó lafs sem áður var í kjallara
gamla íbúðarhússins. Á safnið koma
aðallega hópar og veitir Ó lafur
gestum leiðsögn um safnið sem feli
nánast undantekningarlaust í sér að
hann spili á orgelið, sem eins og áður
segir er sennilega stærsta pípuorgel
landsins sem er í einkaeigu. Það
er sex tán radda og var smíðað í
Kaupmannahöfn árið 1953 fyrir
Landakirkju í Vestmannaeyjum.
Eftir eldgosið voru þrír sérfræðingar
sem dæmdu það of illa leikið að
ekki svaraði kostnaði að koma því
í fullkomið stand.
O rgelið sótt á vörubíl
Árið 1977 ákvað organistinn
í Vestmannaeyjum að kynna
sér verksmiðju úti á Ítalíu sem
framleiddi orgel á hagstæðu verði.
Þá var Ó lafur organisti í Hveragerði
og fór hann með í þá ferð, þar sem
Hveragerðiskirkju vantaði líka orgel.
Á leiðinni út kviknaði sú hugmynd
hjá Ó lafi að kaupa gamla orgelið sem
sóknarnefndin í Vestmannaeyjum tók
vel í og lofaði hann að taka það niður
í tæka tíð áður en nýtt kæmi.
Þegar kom að því að sækja gamla
orgelið í Landakirkju fór Ó lafur
ásamt bræðrum sínum og frænda til
Vestmannaeyja. Ó lafur segir þá ferð
hafa verið algert gerræði og bjartsýni,
enda lögðu þeir af stað í vondu veðri
á opnum vörubíl í lok nóvember, með
afar skamman tíma til stefnu.
„Við komum til Eyja á sunnudags-
kvöldi og unnum sleitulítið í einn og
hálfan sólarhring,“ en þeir þurftu að
taka Herjólf snemma á miðvikudags-
morgni til baka. „Þetta er gríðarlegt
fyrirtæki. Það er tvö og hálft tonn á
þyngd og pípurnar eru á annað þúsund,
stórar og smáar.“ Þetta tókst og á
leiðinni heim var komið logn og
heiðríkja. Aðspurður hvort ekki hafi
verið erfitt að taka orgelið í sundur á
þann hátt að hægt væri að setja það
saman aftur, segir Ó lafur að mikil hjálp
hafi verið í yngsta bróður sínum, Katli,
sem var að mennta sig í orgelsmíði á
þessum tíma. Þá voru bræðurnir búnir
að vera uppteknir af allri mekaník frá
barnsaldri og hafði Ó lafur oft gert við
harmóníum orgel og skildi því hvernig
hljóðfærið virkaði.
H æ kkaði þakið á bílskú rnum
Fyrst setti Ó lafur orgelið upp í
bílskúrnum heima hjá sér og þurfti að
hækka þakið upp um einn og hálfan
metra svo það kæmist fyrir. Það
var í bílskúrnum í áratugi, en fyrir
nokkrum árum var orgelinu komið
fyrir í viðbyggingu við húsnæðið sem
hýsir safnið T ré og list.
„Fyrir mig var þvílíkur happ-
drættisvinningur að fá þetta og geta
æft mig hérna heima,“ segir Ó lafur.
Hann þurfti ekki að gera mikið til að
fá orgelið í gott stand og telur Ó lafur
erfitt fyrir sig að meta hvort það hafi
sannarlega verið ónýtt, þó bæði
fulltrúar frá orgelverksmiðjunni í
Kaupmannahöfn og Viðlagasjóði hafi
verið sammála um að Landakirkja
þyrfti nýtt orgel.
Flugá hugi frá barnsaldri
Bræðurnir Ó lafur og Albert eru
báðir einkaflugmenn og hóf sá
fyrrnefndi sitt flugnám á fyrsta
flugnámskeiðinu sem var á Selfossi
á áttunda áratugnum. Þegar hann
útskrifaðist árið 1974 var hann að
nálgast þrítugt en löngunin til að
VIÐTAL
Flugvélar, orgel og handverk
– Fjölhæfir bræður sem hafa gefið sér tíma til að sinna sínum áhugamálum
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Br ðurnir lbert og lafur við flugskýlið sitt á Sandbakka í Flóa. Fremri flugvélin er handverk lberts á meðan sú aftari er smíðuð í Bandaríkjunum á
áttunda áratugnum og hafa þeir átt hana í sameign frá 0. Myndir/Á L
lafur við listaverkið óðir jörð sem hann renndi úr 5 hlutum úr 5
viðartegundum. Liðlega 00 vinnustundir fóru í smíði verksins árið 0 .