Bændablaðið - 14.12.2023, Side 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Pípuorgelið sem er í safninu Tré og list er
sennilega það stærsta í eigu einkaaðila
hérlendis. Ólafur keypti það úr Vestmannaeyjum
eftir að það var dæmt ónýtt eftir gosið.
fljúga hafði blundað í honum frá
því hann var strákur. „Ég var með
augun alltaf upp í loft þegar ég
heyrði í flugvél,“ segir Ó lafur. Þá
smíðaði hann jafnframt flugvélar úr
við sem piltur og má sjá eina slíka
á safninu. Albert varð fullnuma
einkaflugmaður árið 1980.
Eins og áður segir er flugvöllur
á einu túninu við bæinn. „Þetta er
sérræktuð sjö hundruð og fimmtíu
metra löng túnslétta,“ segir Ó lafur
og var flugvöllurinn upphaflega
fullgildur hjá flugmálayfirvöldum.
Eftir að reglur voru hertar ákváðu
þeir að endurnýja ekki þá skráningu,
en flugmönnum er áfram heimilt að
lenda þar á eigin ábyrgð. Það teljist
að sumu leyti sem utanvallarlending.
„Við vorum svo framarlega
í þessu að við settum ljós á
völlinn,“ segir Ó lafur, en þeir
fengu ljósabúnað úr Keflavík sem
stóð til að henda. „Við flugum
oft næturflug, meira að segja til
Reykjavíkur í svartamyrkri.“ Ó lafur
segir tiltölulega einfalt að útbúa
flugvöll, en í þeirra tilfelli fengu þeir
jarðýtu til að jafna völlinn, tættu svo
moldina og sáðu fíngerðu grasfræi
sem bændur nota.
H eimasmíðuð flug v é l
Þá eiga bræðurnir flugskýli
þar sem eru tvær flugvélar
núna, önnur fjögurra sæta P iper
C herokee og hin heimasmíðuð
eftir Albert. Sú fyrrnefnda er
framleidd í Bandaríkjunum árið
1976, en bræðurnir keyptu hana
árið 1980 og byggðu flugskýlið
á sama tíma. Heimasmíðaða
flugvélin er tveggja sæta og gerð
eftir teikningum frá C laude P iel,
frönskum flugvélahönnuði. Albert
hóf smíðina árið 2009 og var henni
flogið fyrst í desember 2019.
„Ég var ekki að þessu til að fá
flugvél til að fljúga,“ segir Albert.
„Það er allt annað sem liggur á bak
við. Það er lífsfylling að smíða þetta
en auðvitað er bónus að geta flogið
þessu. Manni líður aldrei betur en
þegar maður er að dunda í þessu.“
Þetta er önnur flugvélin sem
Albert smíðar, en hin er létt tvíþekja
sem hann seldi eftir að hafa lagt
lokahönd á þá nýrri. Honum finnst
ólíklegt að það hafi verið verulegur
peningasparnaður í að smíða sjálfur
í staðinn fyrir að kaupa tilbúið úr
verksmiðju. Nauðsynlegt er að vera
í félaginu Flugsmíð, halda dagbók
og taka myndir af öllum hlutum
ferilsins þegar smíðuð er flugvél.
Þá sendir félagið svokallaða
eftirlitssmiði til að taka út hvern
hluta verksins. Sé þessum skrefum
ekki fylgt segir Albert að ekki hefði
verið hægt að skrá flugvélina.
T il að smíða svona flugvél sé
nauðsynlegt að vera mjög fjölhæfur.
Það þýði ekki að vera góður í tré en
geta ekki séð járn. Albert segist oft
hafa leitað ásjár G oogle og Y outube
við smíðina, en á vefnum sé hægt
að finna leiðbeiningar um flest.
lbert við flugvél sem hann smíðaði á árunum 00 til 0 . Hann
segir mikla lífsfyllingu fylgja því að búa til flugvél.
2023
Við hjá Landsvirkjun þökkum góð
samskipti á árinu sem er að líða.
Hlökkum til að hittast uppfull af
endurnýjaðri orku á nýju ári.
Gleðileg jól
og farsælt
komandi ár!