Bændablaðið - 14.12.2023, Side 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Það er ánægju-
legt að finna um
leið í slíkum
aðstæðum að
rödd ungra
bænda hafi
mikinn og
sterkan hljóm-
grunn í þjóð-
félaginu. Við
höfum virkilega
fundið fyrir því og upplifað sterkt í
framlínu Samtaka ungra bænda eftir að
við blésum til baráttufundar í Salnum í
Kópavogi í októberlok. Sá stuðningur
og þær aðgerðir vegna fjárhagsvanda
bænda sem stjórnvöld hafa nú kynnt
bera með sér að rík áhersla sé lögð
á að leiðrétta stöðu ungra bænda og
þeirra sem hafa fjárfest til að stunda
landbúnað til lengri framtíðar sem
glæðir von okkar og kraft.
Stuðningur við baráttuna um laun
fyrir lífi ungra bænda og íslenskra
sveita er á breiðum grunni og
viðtökurnar hafa raunar verið talsvert
meiri og dýpri en jafnvel var búist við
þegar ákveðið var að boða til fundar
sem þessa. Fundargestir í Salnum í
Kópavogi voru hátt í 3 00 talsins, 500
horfðu í streymi í rauntíma en nú hafa
nokkur þúsund manns horft á upptöku
fundarins.
Því að auki fjölluðu fjölmiðlar
talsvert um fundinn fyrir og eftir
hann. Og sannarlega var hraustlega
tekið undir vel rökstudda kröfu okkar
um „Laun fyrir lífi – ungra bænda
og íslenskra sveita“. Við skoruðum á
stjórnvöld að opna augu sín og leggja
við hlustir og í þeim efnum virðumst
við hafa haft erindi sem erfiði.
Aflvakinn ungur og heiðarlegur
Á þeim nótum langar mig þó
sérstaklega að þakka þeim sem
komu að tilurð baráttufundar okkar
í Salnum í október. Í fyrsta lagi
má nefna að hugmyndin um að
halda slíkan fund kom raunar frá
landbúnaðarráðherranum fyrr-
verandi og dyggum stuðnings-
manni landbúnaðar, honum G uðna
Ágústssyni. Hann gaf sig á tal við
stjórn Samtaka ungra bænda á þeim
tímapunkti þar sem hún spurði sig
sjálf hvað væri til ráða í þeirri mjög
svo döpru stöðu margra ungra bænda
og ómöguleikanum sem blasti við
verðandi bændum. Hann reyndist
verða mikill drifkraftur í því að koma
fundinum á laggirnar en með það að
leiðarljósi; að þó hann gæti titlað sig
sem leyndan guðföður framtaksins
þá væri mikilvægt að framtíðarsýn
unga fólksins yrði ráðandi aflvaki í
baráttunni fyrir kjörum og lífi bænda
til framtíðar.
Það varð svo sannarlega þannig
með virkilega frambærilegum og
heiðarlegum erindum þeirra sem
komu fram á fundinum sem eiga
miklar þakkir skildar.
Þar áttu ungir bændur frábæra
fulltrúa sem tóku með vönduðum
hætti til máls og margir þeirra rötuðu
einnig í fín fréttaviðtöl í tengslum við
erindi sín. Auk mín komu úr okkar
röðum þau Ax el Sæland, formaður
garðyrkjudeildar BÍ, frá Espiflöt,
Reykholti, Ísak Jökulsson, úr stjórn
SU B, frá Ó sabakka, Skeiða- og
G núpverjahreppi, Jón Helgi Helgason,
frá Þórustöðum, Eyjafirði, Sigríður
Ó lafsdóttir, ráðunautur og bóndi frá
Víðidalstungu, V-Húna- vatnssýslu,
Stefán G eirsson, frá G erðum,
Flóahreppi, Þórólfur Ó mar Ó skarsson,
frá G rænuhlíð, Eyjafirði og Þuríður
Lillý Sigurðardóttir, frá Sléttu,
Reyðarfirði.
Fundarstjóri var Bjarni Rúnars-
son, frá Reykjum, Skeiða- og G núp-
verjahreppi. Í salnum voru svo
áhugasamir gestir sem fjölmargir
lögðu orð í belg og glæddu hann
þannig lífi í pallborðunum sem
voru tvískipt, um miðbik fundar og
í lokin. Auk þess voru á fundinum
þrjú erindi gestafyrirlesara. Ragnar
Árnason hagfræðingur forfallaðist
að vísu vegna veikinda á elleftu
stundu en I ngibjörg Davíðsdóttir,
sendiherra og aflvaki íslensks
fæðuklasa, flutti prýðilegt erindi og
Margrét G ísladóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka fyrirtækja í land-
búnaði, lagði fundinum til afar
fróðlegt efni um samanburð við
opinberan stuðning við landbúnað í
nágrannalöndum okkar.
Rannsóknarvinnan sem þar lá að
baki var augljóslega mikil. Í henni
mátti glögglega sjá að framleiðsla
matvæla í landbúnaðargeiranum
fær tæplega þrifist í heiminum
án verulegs fjárhagslegs opinbers
stuðnings frá neytendum þeirra.
Ísland er þar vissulega engin
undantekning en við skerum okkur
heldur alls ekki úr í alþjóðlegum
samanburði. Landbúnaður er
einfaldlega grundvöllur fæðuöflunar
og fæðuöryggis fólks um allan heim.
M eð von í brjósti
Áheyrnin og viðbrögðin í kjölfar
þessa hafa veitt okkur von um að
við stjórnvölinn séu upp til hópa
ágætt fólk sem muni beita sér fyrir
bjartari framtíð íslensks landbúnaðar,
enda sé margt bjart í henni nú þegar.
En áfram munum við þurfa að láta
rödd okkar heyrast, rödd okkar ungra
bænda sem og þeirra eldri.
Við höfum nú séð skref í rétta
átt en þau næstu verða ekki tekin af
sjálfu sér og þar þarf sem allra flestar
hendur á plóginn.
Að baki þessum undirtektum um
að styrkja þurfi stoðir landbúnaðar
á Íslandi liggja margar ástæður.
Málefnið er mörgum hugleikið
en er þó fjarri því að vera nýtt af
nálinni. T il langs tíma hefur verið
bent á margt sem betur mætti fara,
til að mynda varðandi stuðning við
landbúnað, og vandamálin hafa verið
viðurkennd að einhverju leyti með
skammtímalausnum stjórnvalda.
En við skammtímalausnirnar hefur
of oft verið staldrað og ekki hugað
nægilega að framtíð landbúnaðar.
Hver getur fundið sínar ástæður
fyrir því að það sé mikilvægt að
efla íslenskan landbúnað. Einum
þykir það hreinlega þjóðhagslega
mikilvægt og raunar öryggismál,
öðrum þykir það órjúfanlegur
hluti af menningu okkar og ásýnd
landsins að byggð sé dreifð og sterk
um landið á meðan þriðja gæti þótt
það vera mikilvægt framlag okkar
til umhverfismála að framleiða
matvælin okkar sjálf með eins
sjálfbærum hætti og hægt er.
S tefnum þurfa að fylgja leiðir
Við Íslendingar höfum þó sett okkur
landbúnaðarstefnu og matvælastefnu
sem ramma nokkuð vel inn hvert
skal haldið og eru þær í eðli sínu
framsýnar og taka á mörgum þeim
áskorunum sem blasa við okkur
sem mannkyni í heimi þar sem við
þurfum að sýna aukna ábyrgð á því
hvernig við til að mynda framleiðum
matvæli. Enda er í þessum stefnum
komið inn á styrkleika okkar og
tækifæri á svo ótal mörgum sviðum.
Framtíðin er okkar
S teinþór L ogi
A rnarsson.
S ú staðreynd að framtíð landbúnaðar á Íslandi standi á krossgötum
virðist æ fleirum ljós og síðustu misseri hefur orðið áskynja dýpri
skilnings á því hversu stórar áskoranirnar eru í raun og veru þrátt
fyrir öll þau tækifæri sem við okkur blasa svo augljóslega.
S valirnar í S alnum voru vel nýttar – pallb orðsumræður.
Þ éttsetið á fundinum í S alnum. F jö ldi þingmanna á samt nokkrum rá ðherrum
á fundinum b er vonandi á vö x t um b ætta framtíð.
LESENDARÝNI
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf