Bændablaðið - 14.12.2023, Page 58

Bændablaðið - 14.12.2023, Page 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023 Það er ánægju- legt að finna um leið í slíkum aðstæðum að rödd ungra bænda hafi mikinn og sterkan hljóm- grunn í þjóð- félaginu. Við höfum virkilega fundið fyrir því og upplifað sterkt í framlínu Samtaka ungra bænda eftir að við blésum til baráttufundar í Salnum í Kópavogi í októberlok. Sá stuðningur og þær aðgerðir vegna fjárhagsvanda bænda sem stjórnvöld hafa nú kynnt bera með sér að rík áhersla sé lögð á að leiðrétta stöðu ungra bænda og þeirra sem hafa fjárfest til að stunda landbúnað til lengri framtíðar sem glæðir von okkar og kraft. Stuðningur við baráttuna um laun fyrir lífi ungra bænda og íslenskra sveita er á breiðum grunni og viðtökurnar hafa raunar verið talsvert meiri og dýpri en jafnvel var búist við þegar ákveðið var að boða til fundar sem þessa. Fundargestir í Salnum í Kópavogi voru hátt í 3 00 talsins, 500 horfðu í streymi í rauntíma en nú hafa nokkur þúsund manns horft á upptöku fundarins. Því að auki fjölluðu fjölmiðlar talsvert um fundinn fyrir og eftir hann. Og sannarlega var hraustlega tekið undir vel rökstudda kröfu okkar um „Laun fyrir lífi – ungra bænda og íslenskra sveita“. Við skoruðum á stjórnvöld að opna augu sín og leggja við hlustir og í þeim efnum virðumst við hafa haft erindi sem erfiði. Aflvakinn ungur og heiðarlegur Á þeim nótum langar mig þó sérstaklega að þakka þeim sem komu að tilurð baráttufundar okkar í Salnum í október. Í fyrsta lagi má nefna að hugmyndin um að halda slíkan fund kom raunar frá landbúnaðarráðherranum fyrr- verandi og dyggum stuðnings- manni landbúnaðar, honum G uðna Ágústssyni. Hann gaf sig á tal við stjórn Samtaka ungra bænda á þeim tímapunkti þar sem hún spurði sig sjálf hvað væri til ráða í þeirri mjög svo döpru stöðu margra ungra bænda og ómöguleikanum sem blasti við verðandi bændum. Hann reyndist verða mikill drifkraftur í því að koma fundinum á laggirnar en með það að leiðarljósi; að þó hann gæti titlað sig sem leyndan guðföður framtaksins þá væri mikilvægt að framtíðarsýn unga fólksins yrði ráðandi aflvaki í baráttunni fyrir kjörum og lífi bænda til framtíðar. Það varð svo sannarlega þannig með virkilega frambærilegum og heiðarlegum erindum þeirra sem komu fram á fundinum sem eiga miklar þakkir skildar. Þar áttu ungir bændur frábæra fulltrúa sem tóku með vönduðum hætti til máls og margir þeirra rötuðu einnig í fín fréttaviðtöl í tengslum við erindi sín. Auk mín komu úr okkar röðum þau Ax el Sæland, formaður garðyrkjudeildar BÍ, frá Espiflöt, Reykholti, Ísak Jökulsson, úr stjórn SU B, frá Ó sabakka, Skeiða- og G núpverjahreppi, Jón Helgi Helgason, frá Þórustöðum, Eyjafirði, Sigríður Ó lafsdóttir, ráðunautur og bóndi frá Víðidalstungu, V-Húna- vatnssýslu, Stefán G eirsson, frá G erðum, Flóahreppi, Þórólfur Ó mar Ó skarsson, frá G rænuhlíð, Eyjafirði og Þuríður Lillý Sigurðardóttir, frá Sléttu, Reyðarfirði. Fundarstjóri var Bjarni Rúnars- son, frá Reykjum, Skeiða- og G núp- verjahreppi. Í salnum voru svo áhugasamir gestir sem fjölmargir lögðu orð í belg og glæddu hann þannig lífi í pallborðunum sem voru tvískipt, um miðbik fundar og í lokin. Auk þess voru á fundinum þrjú erindi gestafyrirlesara. Ragnar Árnason hagfræðingur forfallaðist að vísu vegna veikinda á elleftu stundu en I ngibjörg Davíðsdóttir, sendiherra og aflvaki íslensks fæðuklasa, flutti prýðilegt erindi og Margrét G ísladóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka fyrirtækja í land- búnaði, lagði fundinum til afar fróðlegt efni um samanburð við opinberan stuðning við landbúnað í nágrannalöndum okkar. Rannsóknarvinnan sem þar lá að baki var augljóslega mikil. Í henni mátti glögglega sjá að framleiðsla matvæla í landbúnaðargeiranum fær tæplega þrifist í heiminum án verulegs fjárhagslegs opinbers stuðnings frá neytendum þeirra. Ísland er þar vissulega engin undantekning en við skerum okkur heldur alls ekki úr í alþjóðlegum samanburði. Landbúnaður er einfaldlega grundvöllur fæðuöflunar og fæðuöryggis fólks um allan heim. M eð von í brjósti Áheyrnin og viðbrögðin í kjölfar þessa hafa veitt okkur von um að við stjórnvölinn séu upp til hópa ágætt fólk sem muni beita sér fyrir bjartari framtíð íslensks landbúnaðar, enda sé margt bjart í henni nú þegar. En áfram munum við þurfa að láta rödd okkar heyrast, rödd okkar ungra bænda sem og þeirra eldri. Við höfum nú séð skref í rétta átt en þau næstu verða ekki tekin af sjálfu sér og þar þarf sem allra flestar hendur á plóginn. Að baki þessum undirtektum um að styrkja þurfi stoðir landbúnaðar á Íslandi liggja margar ástæður. Málefnið er mörgum hugleikið en er þó fjarri því að vera nýtt af nálinni. T il langs tíma hefur verið bent á margt sem betur mætti fara, til að mynda varðandi stuðning við landbúnað, og vandamálin hafa verið viðurkennd að einhverju leyti með skammtímalausnum stjórnvalda. En við skammtímalausnirnar hefur of oft verið staldrað og ekki hugað nægilega að framtíð landbúnaðar. Hver getur fundið sínar ástæður fyrir því að það sé mikilvægt að efla íslenskan landbúnað. Einum þykir það hreinlega þjóðhagslega mikilvægt og raunar öryggismál, öðrum þykir það órjúfanlegur hluti af menningu okkar og ásýnd landsins að byggð sé dreifð og sterk um landið á meðan þriðja gæti þótt það vera mikilvægt framlag okkar til umhverfismála að framleiða matvælin okkar sjálf með eins sjálfbærum hætti og hægt er. S tefnum þurfa að fylgja leiðir Við Íslendingar höfum þó sett okkur landbúnaðarstefnu og matvælastefnu sem ramma nokkuð vel inn hvert skal haldið og eru þær í eðli sínu framsýnar og taka á mörgum þeim áskorunum sem blasa við okkur sem mannkyni í heimi þar sem við þurfum að sýna aukna ábyrgð á því hvernig við til að mynda framleiðum matvæli. Enda er í þessum stefnum komið inn á styrkleika okkar og tækifæri á svo ótal mörgum sviðum. Framtíðin er okkar S teinþór L ogi A rnarsson. S ú staðreynd að framtíð landbúnaðar á Íslandi standi á krossgötum virðist æ fleirum ljós og síðustu misseri hefur orðið áskynja dýpri skilnings á því hversu stórar áskoranirnar eru í raun og veru þrátt fyrir öll þau tækifæri sem við okkur blasa svo augljóslega. S valirnar í S alnum voru vel nýttar – pallb orðsumræður. Þ éttsetið á fundinum í S alnum. F jö ldi þingmanna á samt nokkrum rá ðherrum á fundinum b er vonandi á vö x t um b ætta framtíð. LESENDARÝNI HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.