Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 64
64 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS
Tengsl milli fagurfræðilegrar birtingarmyndar
borgarrýma og notkunar virkra samgöngumáta
Nýleg rannsókn um birtingarmynd
borgarrýma á höfuðborgarsvæðinu
hefur leitt í ljós að bílmiðað
umhverfi getur latt til notkunar
virkra samgöngumáta, þ.e. að
fara gangandi eða hjólandi vegna
nauðsynlegra erinda.
T il saman-
burðar eru
vísbendingar um
að borgarrými
með mannmiðuð
einkenni séu
hvetjandi, en
þau búa yfir
m i k i l v æ g u m
fagurfræðilegum
eiginleikum sem
auka á ánægju þeirra sem fara um
hjólandi eða gangandi.
Á skorun að sýna vísindalega fram
á hlutdeild fegurðar
U pplifun fegurðar byggir á huglægu
mati og er meðal óáþreifanlegustu
eiginleika umhverfisins. Fagurfræði
hefur verið skilgreind sem afleidd
ástæða eða aukalegur tilgangur við að
hafa áhrif á val samgöngumáta. Beinar
ástæður eru tengdar virkni, eins og
t.d. vegalengd eða þáttum sem hafa
áhrif á hversu hagstætt er að komast
leiðar sinnar. Það er því mikil áskorun
að festa hendur á áhrif fegurðar á
virka samgöngumáta á vísindalegan
hátt. Hvernig fagurfræðileg gæði í
hverfum skipta máli fyrir notkun
virkra samgöngumáta hefur því
skiljanlega fengið takmarkaða athygli
í fyrri rannsóknum og því margt
óljóst í því hvernig ætti að nálgast
viðfangsefnið.
B ílmiðuð eða mannmiðuð
borgarrými
Fræðileg skilgreining á bílmiðuðu
borgarrými tengist greiðum aðgangi
með einkabílum, flæði þeirra og
hraða. Þar sem bíllinn krefst mikils
pláss, hafa innviðir fyrir bíla, bæði
götur og bílastæði, tilhneigingu til
að vera mjög víðfeðmir og afgerandi
í borgarmyndinni. Bílmiðaðir
áfangastaðir og nánasta umhverfi
þeirra er hannað með aðgengi
einkabílsins í forgangi. Sama á við um
nánasta umhverfi íbúðarhúsnæðisins
þar sem bílstjórar leggja upp að
inngangi.
Mannmiðuð borgarrými vísa til
mannlegs mælikvarða og endurspegla
forgang gangandi og hjólandi
vegfarenda umfram bíla, þannig að
götur fyrir rólega umferð bíla fái
svipað eða minna pláss en innviðir
fyrir gangandi og hjólandi. Rýmið
fyrir framan íbúðarhúsnæðið og
áfangastaðinn er skv. skilgreiningunni
frátekið fyrir fólk og inniheldur
örvandi einkenni fyrir skynfærin í
nálægð, s.s. gróður og falleg sérkenni
til að upplifa. Mannlegur mælikvarði
tekur mið af því að umhverfið í
nálægð sé uppörvandi fyrir hraða
gangandi manneskju.
Fyrri rannsóknir hafa beinst
að virkni innviða og notað
magnbundnar aðferðir
Þótt fjarlægð frá áfangastað sé ein af
mikilvægustu þáttunum til að hafa
áhrif á líkurnar á því að velja að ganga
eða hjóla þá er algengt víða að fara
stuttar vegalengdir á bíl. Ástæðurnar
geta verið margvíslegar, svo sem minni
líkamleg áreynsla, bíllinn stendur klár
fyrir utan dyrnar, veðurskilyrði eða
hlutir sem þarf að bera. Það gæti
líka verið afleiðing af bílmiðaðri
borgarhönnun, en það var einmitt
tilgangur umræddrar rannsóknar að
festa hendur á þann þátt. Eigindlegar
rannsóknaraðferðir, t.d. viðtöl, eru
mikilvægar til að útskýra hvernig
fagurfræðilegt gildismat getur haft
áhrif á notkun virkra samgöngumáta.
Þéttleiki byggðar ( þ.e. fjöldi íbúa á
flatarmálseiningu) sem gjarnan leiðir
til styttri vegalengda í þjónustu, segir
lítið til um byggðamynstur, lögun
borgarrýma eða það sem vegfarandi
getur upplifað þegar hann ferðast um
eftir götunum. T .d. getur háhýsabyggð
leitt til hagstæðs þéttleika, en það
þýðir ekki endilega að göturnar á
jörðu niðri verði aðlaðandi fyrir
gangandi og hjólandi.
B yggir á gögnum ú r stæ rra
rannsóknarverkefni
Rannsóknin byggir annars vegar
á túlkun á rannsóknarviðtölum
viðmælenda af höfuðborgarsvæðinu
varðandi ferðir þeirra til að sinna
nauðsynlegum erindagjörðum í
nærumhverfinu, s.s. verslun og
þjónustu, og hins vegar eigindlegum
greiningum á líklegustu leiðinni sem
farin er í matvöruverslun meðal 13 7
svarenda úrtaks við könnun. Ú rtakið
tekur til þeirra sem hafa minna en 1
km í lágvöruverðsverslun s.s. Bónus
eða Krónuna. Vegalengdina ætti
því að vera hægt að ganga á innan
við 10-12 mínútum, a.m.k. hluta af
þeim innkaupaferðum sem eru farnar.
Bornar voru saman leiðir annars vegar
þeirra sem keyra undantekningarlaust
þrátt fyrir stutta vegalengd og hins
vegar þeirra sem ferðast flestra
ferða með virkum samgöngumátum.
Ú rtakið sem er skoðað er fundið
meðal 1.146 svarenda við könnun
sem send var til 10.000 manns á öllu
höfuðborgarsvæðinu og tilheyrir
stærra verkefni. Niðurstöður
leiddu í ljós tilhneigingu til að fara
stuttar vegalengdir akandi þar sem
umhverfið var mjög bílmiðað, en
fara frekar gangandi eða hjólandi þær
leiðir sem voru gegnum mannmiðuð
borgarrými.
G reindar voru fjórar tegundir
samsp ils milli tegundar
borgarrýmis og notkunar
Niðurstöður úr túlkun viðtalanna
leiðir til fjögurra tegunda samspils
milli borgarrýmisins og notkunar
virkra samgöngumáta.
Í fyrsta lagi nota viðmælendur
alls staðar á höfuðborgarsvæðinu
opin græn svæði ( skilgreind sem
mannmiðuð í rannsókninni) til að
komast erindagjörða í verslun eða
þjónustu, en þá er ferðin samofin ósk
um að fá hreyfingu og að njóta útsýnis
eða náttúru í leiðinni. Leiðirnar virðast
oftar en ekki umtalsvert lengri en sú
stysta á áfangastaðinn.
Í öðru lagi er um að ræða
umlykjandi götur í mannlegum
mælikvarða sem eru með tíðum
takti breytinga fyrir augað, svo
sem smærri litríkum húsum með
fjölbreyttu þjónustuframboði og
gluggum sem snúa oftast beint út á
götu. Þegar viðmælendur röltu um
þessar götur var tilhneigingin sú að
sinna ýmsum erindum á leiðinni. En
rölt er skilgreint sem hægari tegund
göngu, en ef tilgangurinn er eingöngu
að komast milli staða.
Í þriðja lagi benda niðurstöðurnar
til þess að bílmiðaðar leiðir víðast hvar
á höfuðborgarsvæðinu, séu notaðar af
sumum vegna góðrar virkni þeirra
á meðan aðrir velja að fara frekar
keyrandi. Dæmi um góða virkni eru
samfelldar og öruggar göngu- og
hjólaleiðir meðfram götum, ásamt
undirgöngum eða brúm.
Í fjórða lagi kemur fram að í þeim
tilfellum sem ferðast er með virkum
ferðamátum er tilhneiging til að forðast
yfirgnæfandi bílmiðaða áfangastaði,
s.s. risastórar matvöruverslanir með
stórum bílastæðum fyrir framan,
og velja mannmiðaða áfangastaði í
staðinn þar sem það er mögulegt.
N ýnæ mi að skoða
heilt borgarsvæ ði
Með því að nota allt höfuð-
borgarsvæðið gafst möguleiki á
að kanna hvernig fagurfræðilegt
mat hefur áhrif á notkun virkra
samgöngumáta í mismunandi
hverfum, s.s. úthverfum og miðbæjum
sveitarfélaganna. Niðurstöðurnar
benda til skýringa á því hvernig
fagurfræðileg sjónarmið eru tekin
til greina og hafa áhrif á fólk til að
velja mannmiðaða áfangastaði í stað
bílmiðaðra þar sem það er mögulegt.
En slík áhrif koma einkum fram í
miðbæ Reykjavíkur og eldri hluta
Hafnarfjarðar þar sem fjölbreytileiki
í gerð borgarrýma og í verslun og
þjónustu er að finna innan lítils
radíuss, auk einstakra úthverfasvæða
s.s. Hólahverfi í Reykjavík og í
Árbæ. Akstur í samgönguskyni er
algengastur meðal fólks sem býr í
úthverfunum skv. gögnum þessarar
rannsóknar, þar sem líklegasta leiðin
virðist yfirleitt mjög bílmiðuð.
Notkun grænna svæða kann eftir sem
áður að gegna mikilvægu hlutverki í
að stuðla að tilfallandi virkum ferðum
samofnum með ósk um hreyfingu eða
til að njóta náttúru í úthverfum.
H eildræ nni skip ulagshugsun
nauðsynleg til að stuðla að virkum
samgöngumá tum
Nálgun þessarar rannsóknar varpar
ljósi á hvernig undirliggjandi
skipulagshugmyndafræði eins og
einkabíladrifin nálgun módernismans
hefur áhrif á heildar birtingarmynd
borgarrýmanna og fagurfræðileg
gæði þeirra. Sýnt er fram á að tengt
hönnun og skipulagi byggðar, er ekki
hægt að hvetja til notkunar virkra
samgöngumáta með því að einblína
eingöngu á hönnun innviða.
Höfundar greinarinnar kalla því
eftir breytingu í átt að heildrænni og
þverfaglegri nálgun á því hvernig
hönnun umhverfisins getur haft áhrif
á notkun virkra samgöngumáta. Það
er því þörf á frekari rannsóknum
til að varpa ljósi á hvernig
skipulagshugmyndir og staðarhönnun
hafa áhrif.
Efni rannsóknarinnar bíður
birtingar snemma næsta árs í
alþjóðlega vísindatímaritinu
J ournal of U rbanism: I nternational
R esearc h on P lac emaking and
U rban S ustainability. Meðhöfundar
undirritaðrar eru P etter Næss,
prófessor emeritus við NMBU
( U mhverfis- og lífvísindaháskóla
Noregs) , Jukka Heinonen, prófessor
ið Í i ha e kie i dósen
ið nan h skólann óllandi
D r. H arp a S tefá nsdóttir,
prófessor í skipulagsfræði.
D r. H arpa
S tefá nsdóttir.
U mlykjandi gö tur í mannlegum mælikvarða hvetja fólk til að rö lta um og
sinna erindum á leiðinni. Myndir/Harp a Stef á nsdóttir
Tilhneiging er til að koma á b íl á b ílmiðaða á fangastaði, þrá tt fyrir ö rstutt
gö ngufæri.
Notaðir bílar
Sjáðu fleiri bíla á
notadir.benni.is Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035
SsangYong Rexton ‘20, beinskiptur,
ekinn 52 þús.km. Verð: 5.990.000 kr.
Peugeot 3008 ‘15, sjálfskiptur,
ekinn 65 þús.km. Verð: 1.850.000 kr.
SsangYong Tivoli dlx ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 20 þús. km. Verð: 2.890.000 kr.
468271 939590 800999
Toyota C-HR C-LUB ‘21, sjálfskiptur,
ekinn 84 þús.km. Verð: 3.490.000 kr.
SsangYong Korando ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 101 þús. km. Verð: 2.950.000 kr.
Jeep Compass S ‘21, sjálfskiptur,
ekinn 74 þús. km. Verð: 4.490.000 kr.
902091 177267 385604
Við tökum gamla bílinn uppí á
Vegna mikillar sölu vantar okkur allar tegundir bíla á skrá!
Birt með fyrirvara um mynd- og textabrengl. *Bílabúð Benna áskilur sér rétt til að hafna bílum.
500.000 kr.
Gamli bíllinn þinn gildir að lágmarki sem
500.000 króna innborgun* í nýlegan,
öruggan bíl, sérmerktan á plani. Aðeins
er tekinn 1 bíll uppí hvern nýlegan
notaðan bíl. Þinn gamli þarf að vera með
fulla skoðun og í ökufæru ástandi. Ef þú
ert ekki með bíl uppí má ræða aðra díla.*
4x4
4x4
HYBRID
4x4
4x4