Bændablaðið - 14.12.2023, Síða 65

Bændablaðið - 14.12.2023, Síða 65
65Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023 Hafðu samband á stolpigamar.is eða í síma 568 0100 stolpigamar.is KLETTAGARÐAR 3-5 | 104 REYKJAVÍK | STOLPIGAMAR@STOLPIGAMAR.IS Snjallar lausnir Framkvæmdarsvæði Við bjóðum margar góðar lausnir á aðstöðu fyrir starfsmenn og stjórnendur á framkvæmdarsvæðum. Auðvelt og fljótlegt er að setja upp skrifstofur, gistieiningar og salerni í stærðum og gerðum sem hentar best hverju einstaka verkefni. LESENDARÝNI Fyrirtæki og nærsamfélagið S íðustu ár hefur umræ ða um samfé lagslegt hlutverk fyrirtæ kj a orðið sífellt meira áberandi. Meiri kröfur eru gerðar til fyrirtækja en bara að veita þjónustu og skila hagnaði. Meira að segja hörðustu fjárfestar taka umhverfis- og samfélagsstefnu fyrirtækja með í reikninginn þegar teknar eru ákvarðanir um kaup eða sölu á hlutabréfum. Fyrirtæki eru hins vegar misjöfn og það sama á við um samfélagsleg áhrif þeirra. Verslanir Samkaupa er að finna víða um landið. Við rekum ekki aðeins verslanir í höfuðborginni og stærstu bæjum landsins, heldur rekum við einnig verslanir í byggðarlögum þar sem aðrar keðjur telja ekki hagkvæmt að vera. Þetta felur í sér áskoranir og rekstur sumra verslana er á stundum í járnum, svo það sé nú bara sagt hreint út. Fastur kostnaður við rekstur verslunar er um margt sá sami hvort sem hún er á höfuðborgarsvæðinu eða í fámennari byggðum landsins. Fyrir utan flutningskostnað eru laun þau sömu, vörukostnaður sömuleiðis og einnig skattar og gjöld. Veltan er hins vegar oft mun minni og sveiflukenndari. Rekstur sumra verslana á landsbyggðinni gengur aðeins upp vegna innlendra og erlendra ferðamanna yfir sumarmánuðina. Við viljum gera það sem þarf til að halda verslunum í þessum byggðarlögum gangandi. Verslun er mikilvægur innviður í hvaða byggðarlagi sem er. Þær skapa atvinnu, en það er líka mikilvægt fyrir lífvænleika samfélaga að þar sé hægt að kaupa nauðsynjavörur án þess að keyra til þess lengri leið í aðra bæi. Þetta þekkir best það fólk sem býr á stöðum þar sem verslun hefur lagst af. Meðal þess sem við höfum gert til að mæta þörfum nærsamfélaga okkar er vildarkerfi, sem við settum á markað um mitt ár 2021. Þar fá vildarvinir fríðindi og aðgang að sértilboðum. Þessu hefur verið gríðarlega vel tekið um allt land og eru nú um 70 þúsund viðskiptavinir okkar skráðir í vildarkerfið. Með því að nýta sér vildarkjörin fá viðskiptavinir 2% afslátt af matarkörfunni sem þýðir að helstu nauðsynjavörurnar eru þannig á lægsta verði sem völ er á á landinu. Má þar nefna ávex ti og grænmeti, mjólkurvörur, helstu þurrvörur og ekki má gleyma jólakjötinu og meðlætinu. En okkur finnst ekki nóg að reka bara verslanir. Við viljum hafa meiri jákvæð áhrif á samfélagið okkar og fólkið sem þar býr. Eitt dæmi um slíkt er verkefnið Mataraðstoð gegn matarsóun, sem hófst á síðasta ári og hefur þegar skilað verulegum árangri. Verkefnið hófst þannig að fimm verslanir okkar gáfu 60-70 kassa á hverjum degi til Hjálpræðishersins. Þar er maturinn nýttur til þess að elda heitar og næringarríkar máltíðir sem eru gefnar áfram til þeirra sem þurfa á þeim að halda. Í dag er verkefnið í átta verslunum og gefur allt að 3 00 manns að borða daglega. Það besta við þessi verkefni er að við erum að minnka sóun um leið og við hjálpum fólki í neyð. Þetta er verkefni sem við viljum virkja í fleiri verslunum og víðar um landið. T il að vinna markvisst að bættum árangri hefur verið innleiddur umhverfisstjórnunarhugbúnaður frá Klöppum, en hugbúnaðurinn gerir okkur kleift að vakta og greina alla helstu umhverfisþætti í starfseminni og vinna að lágmörkun umhverfisáhrifa. Vöktunin nær til allra verslana og starfsstöðva Samkaupa. Við höfum sömuleiðis skipt út kælikerfum, sem minnkar raforkunotkun og dregið verulega úr allri notkun plasts í verslunum okkar. Eins ætlum við að nota lífrænan úrgang sem fellur til hjá okkur til moltugerðar, sem mun nýtast bændum víða um landið í verkefninu Samkaup fyrir grænna Ísland. Við hjá Samkaupum erum öll af vilja gerð til að verða enn betri þegn í okkar nærsamfélögum og ef lesendur Bændablaðsins hafa hugmyndir um það hvernig við getum gert betur þá get ég lofað að þeim verður vel tekið! G unnar E g ill Sig urðsso n, forstjóri S amkaupa. G unnar Egil l S igurðsson. Bændablaðið www.bbl.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.