Bændablaðið - 14.12.2023, Blaðsíða 65
65Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Hafðu
samband á
stolpigamar.is
eða í síma
568 0100
stolpigamar.is KLETTAGARÐAR 3-5 | 104 REYKJAVÍK | STOLPIGAMAR@STOLPIGAMAR.IS
Snjallar lausnir Framkvæmdarsvæði
Við bjóðum margar góðar lausnir á aðstöðu fyrir
starfsmenn og stjórnendur á framkvæmdarsvæðum.
Auðvelt og fljótlegt er að setja upp skrifstofur,
gistieiningar og salerni í stærðum og gerðum sem
hentar best hverju einstaka verkefni.
LESENDARÝNI
Fyrirtæki og
nærsamfélagið
S íðustu ár hefur umræ ða um
samfé lagslegt hlutverk fyrirtæ kj a
orðið sífellt meira áberandi.
Meiri kröfur
eru gerðar til
fyrirtækja en
bara að veita
þjónustu og
skila hagnaði.
Meira að
segja hörðustu
fjárfestar taka
umhverfis- og
samfélagsstefnu
fyrirtækja með í reikninginn þegar
teknar eru ákvarðanir um kaup eða
sölu á hlutabréfum. Fyrirtæki eru
hins vegar misjöfn og það sama á
við um samfélagsleg áhrif þeirra.
Verslanir Samkaupa er að finna
víða um landið. Við rekum ekki
aðeins verslanir í höfuðborginni
og stærstu bæjum landsins, heldur
rekum við einnig verslanir í
byggðarlögum þar sem aðrar keðjur
telja ekki hagkvæmt að vera. Þetta
felur í sér áskoranir og rekstur sumra
verslana er á stundum í járnum, svo
það sé nú bara sagt hreint út.
Fastur kostnaður við rekstur
verslunar er um margt sá sami hvort
sem hún er á höfuðborgarsvæðinu
eða í fámennari byggðum landsins.
Fyrir utan flutningskostnað eru
laun þau sömu, vörukostnaður
sömuleiðis og einnig skattar og
gjöld. Veltan er hins vegar oft mun
minni og sveiflukenndari. Rekstur
sumra verslana á landsbyggðinni
gengur aðeins upp vegna innlendra
og erlendra ferðamanna yfir
sumarmánuðina.
Við viljum gera það sem þarf
til að halda verslunum í þessum
byggðarlögum gangandi. Verslun
er mikilvægur innviður í hvaða
byggðarlagi sem er. Þær skapa
atvinnu, en það er líka mikilvægt
fyrir lífvænleika samfélaga að þar
sé hægt að kaupa nauðsynjavörur án
þess að keyra til þess lengri leið í
aðra bæi. Þetta þekkir best það fólk
sem býr á stöðum þar sem verslun
hefur lagst af.
Meðal þess sem við höfum gert
til að mæta þörfum nærsamfélaga
okkar er vildarkerfi, sem við settum
á markað um mitt ár 2021.
Þar fá vildarvinir fríðindi og
aðgang að sértilboðum. Þessu
hefur verið gríðarlega vel tekið um
allt land og eru nú um 70 þúsund
viðskiptavinir okkar skráðir í
vildarkerfið. Með því að nýta sér
vildarkjörin fá viðskiptavinir 2%
afslátt af matarkörfunni sem þýðir
að helstu nauðsynjavörurnar eru
þannig á lægsta verði sem völ er
á á landinu. Má þar nefna ávex ti
og grænmeti, mjólkurvörur, helstu
þurrvörur og ekki má gleyma
jólakjötinu og meðlætinu.
En okkur finnst ekki nóg að reka
bara verslanir. Við viljum hafa meiri
jákvæð áhrif á samfélagið okkar og
fólkið sem þar býr. Eitt dæmi um
slíkt er verkefnið Mataraðstoð gegn
matarsóun, sem hófst á síðasta ári
og hefur þegar skilað verulegum
árangri.
Verkefnið hófst þannig að fimm
verslanir okkar gáfu 60-70 kassa á
hverjum degi til Hjálpræðishersins.
Þar er maturinn nýttur til þess að
elda heitar og næringarríkar máltíðir
sem eru gefnar áfram til þeirra sem
þurfa á þeim að halda. Í dag er
verkefnið í átta verslunum og gefur
allt að 3 00 manns að borða daglega.
Það besta við þessi verkefni er að
við erum að minnka sóun um leið
og við hjálpum fólki í neyð. Þetta
er verkefni sem við viljum virkja í
fleiri verslunum og víðar um landið.
T il að vinna markvisst að bættum
árangri hefur verið innleiddur
umhverfisstjórnunarhugbúnaður
frá Klöppum, en hugbúnaðurinn
gerir okkur kleift að vakta og
greina alla helstu umhverfisþætti í
starfseminni og vinna að lágmörkun
umhverfisáhrifa. Vöktunin nær
til allra verslana og starfsstöðva
Samkaupa.
Við höfum sömuleiðis skipt
út kælikerfum, sem minnkar
raforkunotkun og dregið verulega
úr allri notkun plasts í verslunum
okkar. Eins ætlum við að nota
lífrænan úrgang sem fellur til hjá
okkur til moltugerðar, sem mun
nýtast bændum víða um landið í
verkefninu Samkaup fyrir grænna
Ísland.
Við hjá Samkaupum erum öll
af vilja gerð til að verða enn betri
þegn í okkar nærsamfélögum og
ef lesendur Bændablaðsins hafa
hugmyndir um það hvernig við
getum gert betur þá get ég lofað að
þeim verður vel tekið!
G unnar E g ill Sig urðsso n,
forstjóri S amkaupa.
G unnar Egil l
S igurðsson.
Bændablaðið www.bbl.is