Bændablaðið - 14.12.2023, Side 75
75Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Jólahjólin fást hjá okkur í Nítró
CFMOTO 520
Nítró - Urðarhvarfi 4 - 557 4848
KAYO 140KAYO 180KAYO 60
Mikið úrval af barna cross- og fjórhjólum. Eigum einnig CFmoto fjórhjól á lager. Kíkið á útvalið á nitro.is.
Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
Kr. 219.000,- Kr. 479.000,- Kr. 339.000,- Kr. 1.499.000,-
Starfsmenn Zetor hafa langa reynslu af
verkefnastjórnun, umsjón verka og eftirliti ásamt því
að sinna hlutverki byggingastjóra samkv. lögum.
Zetor ehf. Sérhæfir sig í:
Verkefnastýringu á undirbúnings- og framkvæmda-
stigi verkefna. Byggingastjórn 1,3, gerð kostnaðar-
áætlana, útboðsgagna og verkáætlana ásamt
gerð áhættugreininga og merkingum vinnusvæða.
Zetor ehf. Suðurhrauni 10 Garðabæ
s. 869-0700 zetor@zetor.is
Stjórnvöld standa
með bændum
Y firstandandi ár hefur verið
krefj andi fyrir landbúnað á
margan hátt.
T il viðbótar
við þær miklu
aðfangaverðs-
hækkanir sem
urðu í kjölfar
heimsfaraldurs
og innrásar
Rússa í Ú kraínu
hafa bæst
við miklar
s t ý r i v a x t a -
hækkanir vegna dýrtíðar. Þetta leiddi
til þess að stjórnvöld settu á fót hóp
ráðuneytisstjóra þriggja ráðuneyta
til að greina stöðuna í landbúnaði
og leggja til aðgerðir. Þessi vinna
hefur borið ávöx t og í vikunni
birtist álit fjárlaganefndar Alþingis
um þær ráðstafanir sem ráðuneytin
lögðu til. Þá tók fjárlaganefnd á
grundvelli þeirra greininga sem
ráðuneytin unnu ákvörðun um
að leggja til aukastuðning við
mjólkurframleiðendur vegna
framleiðslu þessa árs, að upphæð
500 milljóna. Heildargreiðslur sem
greiddar verða núna á næstu vikum
nema því 2,1 milljarði króna. Í
tillögunum er lagt til að ungir bændur
sem tekið hafa við búum eða staðið í
framkvæmdum á síðustu árum, frá
árinu 2017, fái sérstakan stuðning
en einnig að almennur stuðningur
komi til allra framleiðenda mjólkur,
til sérhæfðra búa í nautakjötsrækt og
til fjölskyldubúa þar sem að ætla má
að fjölskyldur hafi stærstan hluta
sinna tekna úr sauðfjárrækt.
G reiningar leiða í ljós veikleika
Í greiningum hópsins kemur í ljós að
áskoranirnar eru einkum tvíþættar,
annars vegar bráðavandi vegna
mikilla sviptinga á rekstrarumhverfi
vegna aðfangaverðshækkana og
hækkandi fjármagnskostnaðar, og
hins vegar langtímaáskorun sem
hefur þá birtingarmynd að raunlaun
bænda hafa lækkað eða staðið í
stað á gildistíma búvörusamnings.
Það er þróun sem við getum ekki
og eigum ekki að samþykkja sem
samfélag. Nýta þarf tímann vel á
næstu misserum til þess að hefja
undirbúning að nýju stuðningskerfi
landbúnaðar sem tekur við þegar
gildandi búvörusamningar renna
sitt skeið. Sú vinna mun hefjast
á nýju ári og með hækkandi sól.
Ljóst er að ef að okkur á að takast
að snúa þessari þróun við, þannig
að bændur á Íslandi geti lifað í sama
efnahagslega raunveruleika og aðrir
íbúar, þurfum við að vera óhrædd að
spyrja spurninga. Ég hef nefnt það
áður að skoða þurfi að hvaða marki
mismunandi stuðningsform hafa
aukið fjármagnskostnað án þess að
tilsvarandi framleiðniaukning verði.
Slík form stuðnings hafa mikinn
fórnarkostnað. Markviss stuðningur
sem styður við atvinnugreinina
með skilvirkum hætti þarf að vera
markmiðið, enda er þá framtíðarsýn
að finna í landbúnaðarstefnu sem
samþykkt var á Alþingi síðastliðið
vor.
Jákv æ ð teikn á l ofti
Þrátt fyrir að áskoranir hafi verið á
árinu voru ýmis jákvæð teikn á lofti.
Landbúnaðarstefna fyrir Ísland var
samþykkt á vordögum ásamt því að
í fjármálaáætlun er nú gert ráð fyrir
því að veita tveimur milljörðum í
stuðning við kornrækt á tímabili
áætlunarinnar. Mikil tækifæri eru
í kornrækt og strax á næsta ári
byrja að berast ný yrki hingað til
lands til tilrauna, sem eru afurðir
þeirra fjármuna sem stjórnvöld hafa
ákveðið að veita til plöntukynbóta.
Þau verkefni munu skila miklum
árangri og í haust var í fyrsta skipti
reiknuð kynbótaspá fyrir bygg á
grundvelli erfðamengisúrvals líkt
og tekið var í notkun í ræktun
mjólkurkúa nýverið. Þá mun
fjárfestingarstuðningur aukast á
næstu árum til að byggja upp þá
innviði sem þörf er á til þess að
kornrækt geti dafnað og íslenskir
bændur geti á þessari öld brauðfætt
þjóðina, til viðbótar við að leggja
henni til mjólk, grænmeti og kjöt.
Lokasigur gegn riðu
Þá samþykkti ég nýverið tillögu
yfirdýralæknis um að breyta um
stefnu í baráttunni gegn riðu. Nú er
gerlegt að rækta þessa óværu burt
og hafa stjórnvöld komið til móts
við kostnað sem því fylgir, bæði
á þessu ári og á næsta ári. Okkar
færasta vísindafólk í þessum málum
hefur skrifað skýrslu um aðgerðir
sem unnt er að ráðast í til að hraða
innleiðingu þessara verndandi
arfgerða og unnið er að þeim í
mínu ráðuneyti. Ljóst er, miðað
við mikinn áhuga bænda á notkun
sæðis frá hrútum sem bera verndandi
og mögulega verndandi arfgerðir,
að mikill árangur mun nást hratt
á næstu árum. Matvælaráðuneytið
mun styrkja þá notkun þannig að
við náum meiri árangri. Þannig fara
líkur á nýjum riðutilfellum hratt
minnkandi sem er sameiginlegt
markmið okkar allra, enda hefur
fjárhagslegur og samfélagslegur
kostnaður þessa sjúkdóms verið
gríðarlegur síðustu áratugi.
D ýrtíð verður að linna
Ljóst er að rekstrarumhverfi
landbúnaðar, líkt og annarra
atvinnugreina, er afar háð gengi
efnahagslífsins. Mikilvægt er að
okkur sem samfélagi takist að
vinna niður verðbólgu og þar með
skapa skilyrði fyrir lægra vax tastigi.
Það verkefni taka stjórnvöld
alvarlega. Fyrir landbúnað, þar
sem fjármagnskostnaður er hár
miðað við veltu, er þetta einkar
mikilvægt en einnig vegna þess að
bændur, ólíkt því sem er raunin hjá
flestum öðrum atvinnurekendum,
stjórna ekki verðlagningu afurða,
heldur eru þeir frumframleiðendur.
Því eru tækifæri þeirra til þess
að dreifa byrðunum af hækkandi
aðfangakostnaði takmarkaðri
en flestra annarra. T il þess að
rétta stöðu bænda mælti ég fyrir
máli í þinginu sem gerir félögum
frumframleiðenda búvara heimilt að
stunda samstarf og samvinnu. Þau
skilyrði byggja á hinni svokölluðu
finnsku leið og frumvarpið færir
umhverfið á Íslandi í sama horf og
í nágrannalöndum okkar verði það
að lögum. Það er bæði sanngjarnt
og eðlilegt að tækifæri íslenskra
bænda til samvinnu og samstarfs
séu ekki síðri en annarra. Málið er í
meðförum þingsins og ég hef mikla
trú á því að niðurstaða fáist í því á
næstu mánuðum.
Samandregið tel ég þrátt fyrir
áskoranir að framtíð íslensks
landbúnaðar sé björt. Við eigum
jarðnæði, frjósaman jarðveg, vatn
og það sem mestu máli skiptir,
metnaðarfullt og vel menntað ungt
fólk sem er tilbúið að framleiða
matvæli fyrir landsmenn. Ö ll
grundvallarskilyrði til búskapar eru
hér góð ef okkur lánast að breyta
því umhverfi sem greinin býr við
til betri vegar.
S vandís S vavarsdóttir
matvælaráðherra.
S vandís
S vavarsdóttir.