Bændablaðið - 14.12.2023, Page 75

Bændablaðið - 14.12.2023, Page 75
75Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023 Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020 eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b, 105 Reykjavík Vegna aukinnar eftirspurnar óskum við eftir bújörðum á söluskrá Jólahjólin fást hjá okkur í Nítró CFMOTO 520 Nítró - Urðarhvarfi 4 - 557 4848 KAYO 140KAYO 180KAYO 60 Mikið úrval af barna cross- og fjórhjólum. Eigum einnig CFmoto fjórhjól á lager. Kíkið á útvalið á nitro.is. Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári Kr. 219.000,- Kr. 479.000,- Kr. 339.000,- Kr. 1.499.000,- Starfsmenn Zetor hafa langa reynslu af verkefnastjórnun, umsjón verka og eftirliti ásamt því að sinna hlutverki byggingastjóra samkv. lögum. Zetor ehf. Sérhæfir sig í: Verkefnastýringu á undirbúnings- og framkvæmda- stigi verkefna. Byggingastjórn 1,3, gerð kostnaðar- áætlana, útboðsgagna og verkáætlana ásamt gerð áhættugreininga og merkingum vinnusvæða. Zetor ehf.  Suðurhrauni 10  Garðabæ s. 869-0700  zetor@zetor.is Stjórnvöld standa með bændum Y firstandandi ár hefur verið krefj andi fyrir landbúnað á margan hátt. T il viðbótar við þær miklu aðfangaverðs- hækkanir sem urðu í kjölfar heimsfaraldurs og innrásar Rússa í Ú kraínu hafa bæst við miklar s t ý r i v a x t a - hækkanir vegna dýrtíðar. Þetta leiddi til þess að stjórnvöld settu á fót hóp ráðuneytisstjóra þriggja ráðuneyta til að greina stöðuna í landbúnaði og leggja til aðgerðir. Þessi vinna hefur borið ávöx t og í vikunni birtist álit fjárlaganefndar Alþingis um þær ráðstafanir sem ráðuneytin lögðu til. Þá tók fjárlaganefnd á grundvelli þeirra greininga sem ráðuneytin unnu ákvörðun um að leggja til aukastuðning við mjólkurframleiðendur vegna framleiðslu þessa árs, að upphæð 500 milljóna. Heildargreiðslur sem greiddar verða núna á næstu vikum nema því 2,1 milljarði króna. Í tillögunum er lagt til að ungir bændur sem tekið hafa við búum eða staðið í framkvæmdum á síðustu árum, frá árinu 2017, fái sérstakan stuðning en einnig að almennur stuðningur komi til allra framleiðenda mjólkur, til sérhæfðra búa í nautakjötsrækt og til fjölskyldubúa þar sem að ætla má að fjölskyldur hafi stærstan hluta sinna tekna úr sauðfjárrækt. G reiningar leiða í ljós veikleika Í greiningum hópsins kemur í ljós að áskoranirnar eru einkum tvíþættar, annars vegar bráðavandi vegna mikilla sviptinga á rekstrarumhverfi vegna aðfangaverðshækkana og hækkandi fjármagnskostnaðar, og hins vegar langtímaáskorun sem hefur þá birtingarmynd að raunlaun bænda hafa lækkað eða staðið í stað á gildistíma búvörusamnings. Það er þróun sem við getum ekki og eigum ekki að samþykkja sem samfélag. Nýta þarf tímann vel á næstu misserum til þess að hefja undirbúning að nýju stuðningskerfi landbúnaðar sem tekur við þegar gildandi búvörusamningar renna sitt skeið. Sú vinna mun hefjast á nýju ári og með hækkandi sól. Ljóst er að ef að okkur á að takast að snúa þessari þróun við, þannig að bændur á Íslandi geti lifað í sama efnahagslega raunveruleika og aðrir íbúar, þurfum við að vera óhrædd að spyrja spurninga. Ég hef nefnt það áður að skoða þurfi að hvaða marki mismunandi stuðningsform hafa aukið fjármagnskostnað án þess að tilsvarandi framleiðniaukning verði. Slík form stuðnings hafa mikinn fórnarkostnað. Markviss stuðningur sem styður við atvinnugreinina með skilvirkum hætti þarf að vera markmiðið, enda er þá framtíðarsýn að finna í landbúnaðarstefnu sem samþykkt var á Alþingi síðastliðið vor. Jákv æ ð teikn á l ofti Þrátt fyrir að áskoranir hafi verið á árinu voru ýmis jákvæð teikn á lofti. Landbúnaðarstefna fyrir Ísland var samþykkt á vordögum ásamt því að í fjármálaáætlun er nú gert ráð fyrir því að veita tveimur milljörðum í stuðning við kornrækt á tímabili áætlunarinnar. Mikil tækifæri eru í kornrækt og strax á næsta ári byrja að berast ný yrki hingað til lands til tilrauna, sem eru afurðir þeirra fjármuna sem stjórnvöld hafa ákveðið að veita til plöntukynbóta. Þau verkefni munu skila miklum árangri og í haust var í fyrsta skipti reiknuð kynbótaspá fyrir bygg á grundvelli erfðamengisúrvals líkt og tekið var í notkun í ræktun mjólkurkúa nýverið. Þá mun fjárfestingarstuðningur aukast á næstu árum til að byggja upp þá innviði sem þörf er á til þess að kornrækt geti dafnað og íslenskir bændur geti á þessari öld brauðfætt þjóðina, til viðbótar við að leggja henni til mjólk, grænmeti og kjöt. Lokasigur gegn riðu Þá samþykkti ég nýverið tillögu yfirdýralæknis um að breyta um stefnu í baráttunni gegn riðu. Nú er gerlegt að rækta þessa óværu burt og hafa stjórnvöld komið til móts við kostnað sem því fylgir, bæði á þessu ári og á næsta ári. Okkar færasta vísindafólk í þessum málum hefur skrifað skýrslu um aðgerðir sem unnt er að ráðast í til að hraða innleiðingu þessara verndandi arfgerða og unnið er að þeim í mínu ráðuneyti. Ljóst er, miðað við mikinn áhuga bænda á notkun sæðis frá hrútum sem bera verndandi og mögulega verndandi arfgerðir, að mikill árangur mun nást hratt á næstu árum. Matvælaráðuneytið mun styrkja þá notkun þannig að við náum meiri árangri. Þannig fara líkur á nýjum riðutilfellum hratt minnkandi sem er sameiginlegt markmið okkar allra, enda hefur fjárhagslegur og samfélagslegur kostnaður þessa sjúkdóms verið gríðarlegur síðustu áratugi. D ýrtíð verður að linna Ljóst er að rekstrarumhverfi landbúnaðar, líkt og annarra atvinnugreina, er afar háð gengi efnahagslífsins. Mikilvægt er að okkur sem samfélagi takist að vinna niður verðbólgu og þar með skapa skilyrði fyrir lægra vax tastigi. Það verkefni taka stjórnvöld alvarlega. Fyrir landbúnað, þar sem fjármagnskostnaður er hár miðað við veltu, er þetta einkar mikilvægt en einnig vegna þess að bændur, ólíkt því sem er raunin hjá flestum öðrum atvinnurekendum, stjórna ekki verðlagningu afurða, heldur eru þeir frumframleiðendur. Því eru tækifæri þeirra til þess að dreifa byrðunum af hækkandi aðfangakostnaði takmarkaðri en flestra annarra. T il þess að rétta stöðu bænda mælti ég fyrir máli í þinginu sem gerir félögum frumframleiðenda búvara heimilt að stunda samstarf og samvinnu. Þau skilyrði byggja á hinni svokölluðu finnsku leið og frumvarpið færir umhverfið á Íslandi í sama horf og í nágrannalöndum okkar verði það að lögum. Það er bæði sanngjarnt og eðlilegt að tækifæri íslenskra bænda til samvinnu og samstarfs séu ekki síðri en annarra. Málið er í meðförum þingsins og ég hef mikla trú á því að niðurstaða fáist í því á næstu mánuðum. Samandregið tel ég þrátt fyrir áskoranir að framtíð íslensks landbúnaðar sé björt. Við eigum jarðnæði, frjósaman jarðveg, vatn og það sem mestu máli skiptir, metnaðarfullt og vel menntað ungt fólk sem er tilbúið að framleiða matvæli fyrir landsmenn. Ö ll grundvallarskilyrði til búskapar eru hér góð ef okkur lánast að breyta því umhverfi sem greinin býr við til betri vegar. S vandís S vavarsdóttir matvælaráðherra. S vandís S vavarsdóttir.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.