Bændablaðið - 14.12.2023, Qupperneq 77
77Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2023
É g hef verið að glugga í nýlega
birt umhverfismat frá U mhverfis-
stofnun um valkosti á vegum
og vegabótum á þjóðvegi 1 um
M ýrdal.
Ég átti svo
sem ekki von
á neinum já-
kvæðum undir-
tektum frá
þeirri stofnun
um láglendisveg
um Mýrdal með
jarðgöngum í
gegnum Reynis-
fjall og til Víkur
og þar með láglendisvegi allt til
Austfjarða. Það vita flest allir að
U mhverfisstofnun, Skipulags-
stofnun og alls konar undirnefndir
og ráð á þeirra vegum, eru og hafa
verið á móti öllum endurbótum
og framkvæmdum, hvort sem um
vegabætur, raforkuver, raflínur,
jarðgöng, eða jafnvel hvalveiðar,
hefur verið að ræða.
G et ég nefnt mörg dæmi þessu
til staðfestingar eins og til dæmis
þegar allt í einu slökknaði á öllum
hugmyndum um Hvalárvirkjun á
Vestfjörðum. Ó tal öfgafélög risu
upp á afturlappirnar þegar minnst
var á fleiri atvinnumöguleika þar
eins og fiskeldi.
Stöðvun virkjunarframkvæmda
í Þjórsá sem komnar voru á
framkvæmdastig og síðast en ekki
síst nú með framgöngu þeirra við
að koma í veg fyrir að vegaáætlun
Alþingis um láglendisveg og
göng í gegnum Reynisfjall komist
til framkvæmda. Beita með sínu
verklagi alls konar rangfærslum og
lygum sem núna kallast víst á fínna
máli falsfréttir.
Þetta hefur ekkert breyst og mun
ég rekja það nánar síðar, þar sem
það rúmast ekki með þessari grein.
Ég batt hins vegar vonir mínar við
Vegagerðina, sem ég þekkti að öllu
góðu af eigin raun, sem fyrrverandi
ýtumaður, verktaki, lögreglumaður
og umferðarfulltrúi.
Ég trúði að hún myndi standa við
sínar áætlanir og yfirlýst markmið
um láglendisveg allt frá Hveragerði
og austur á firði. Y firlýst markmið
Vegagerðarinnar eru þessi:
U mferðaröryggi – greiðfærni á
vetrum – þjóðvegur úr þéttbýli –
og stytting vegar.
En „svo bregðast krosstré sem
önnur tré“ og Vegagerðin virðist nú
ætla að láta sig hafa það að bregðast
öllum þessum markmiðum og gerast
taglhnýtingur þess félagsskapar sem
hún hefur átt í hvað mestu basli og
baráttu við.
Fyrst er hún fengin til þess að
falla frá þeim vegavalkosti sem
hún hafði hannað og birt. Síðan
að bæta við nýjum vegavalkosti,
fram hjá Vík, arfavitlausum valkosti
sem er algjörlega á skjön við yfirlýst
markmið Vegagerðarinnar þannig
að furðu vekur og sveitarstjórn
Mýrdalshrepps hefur lýst samhljóða
að komi ekki til greina.
Í stað styttingar er vegurinn til
Víkur í valkosti 4, lengdur um 2,5
km og fyrir innansveitarfólk, eins og
úr Reynis- og Dyrhólahverfi, lengist
þeirra leið fram og til baka um 5 km.
Bætt er við tveim brekkum upp í hæð
á við Hallgrímskirkju, gríðarlegu
brúarmannvirki yfir G rafargil og
síðan langt eftir öllu fyrirhuguðu
framtíðar byggingalandi á Suður- og
Norðurvíkurtúnum. Þorps sem er
í hvað mestum vex ti, sem þekkst
hefur hér á landi.
Svo bítur hún höfuðið af
skömminni með því að telja þetta
besta valkostinn.
Þrátt fyrir að valkostir 1 til 3
um láglendisveg hafi skorað hærra
í þeirra eigin könnunum í mark-
miðum Vegagerðarinnar. Ég get ekki
skilið þessa kúvendingu öðruvísi
en annaðhvort er Vegagerðin orðin
eins og taglhnýttur trússhestur, í
taumi umhverfisöfgasinna, rúin
eigin stefnumörkun og verkfrelsi,
eða búið er að raða inn í hennar
stjórnunarstöður heilaþvegnu
ofstækisfólki, sem hefur önnur
markmið í heiðri heldur en þau
sem koma fram í stefnuskrá
Vegagerðarinnar.
Eða þá að Vegagerðin hafi ekki
lesið þessa ráðgjöf sem virðist vera
unnin fyrir hana af VSÓ ráðgjöf, og
hefur sjálfsagt kostað sitt. Eða þá að
hún er gengin til liðs með þeim sem
sjá sér hag í því að kynna og mæla
með svo snarvitlausum valkosti
að hvorki sveitarstjórn né nokkur
upplýstur íbúi getur fallist á þann
valkost og þar með sé málið dautt.
Ég segi bara að lokum:
„G uð hjálpi Vegagerðinni og leiði
hana á réttan veg.“
R ey nir R agn arsson
fyrrverandi umferðarfulltrúi,
lögregluvarðstjóri og
björgunarsveitarmaður.
Um umhverfismat:
Svo bregðast krosstré
sem önnur tré
R eynir
R agnarsson.
OG VINNUM ÚR ÞEIM
LAUSNIR
TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI
VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði
Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is
Lífræn hreinsistöð
•Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
mm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19