Úrval - 01.08.1970, Síða 4
2
ÚRVAL
/ A
SÓLSETUR
Enn hefur álfaröðull
endað daggöngu;
kveður ihann grund
-með geislakossi;
mót konungi dags,
er til hvíldar gengur,
breiðir biáan faðm
brosandi Rán.
Veiku mér í ihjarta
í válegan mar
vonarst.iörnur
til viðar renna,
hlæja hrollkaldar
hrannir tíðar
heljEirglotti
við h.uga minum.
Nú er sólsett
í sollnu brjósti,
grátþögul gríma
grúfir yfir hjarta;
aldrei mun oftar
ylgeisli nokkur
á rústir þess
roða bregða.
Kristján Jónsson (Fjallaskáld).
(184£—1869).
^________________________^
endurskodaöar. Reynt hefur veriö
aö fá ráðamenn svissnesku bank-
anna til aö gefa upplýsingar uni
leynireikninga Lanskys, en það hef-
ur ekki tekizt enn. Kannski mun
einhver hinna þöglu félaga óvinar-
ins ákveða að leysa frá skjóðunni.
Þess er skemmst að minnast, þegar
Valashi Ijóstraöi upp um samtökin
Cosa Nostra, en frá því sagði eins
og lesendur muna vafalaust í einni
af bókum Úrvals á síðasta ári. Og
kannski mun Lansky sjálfur gera
einhverja skyssu.
AÐRAR PERSÓNUR, sem sagt er
frá að þessu sinni, eru flestar geð-
felldari, svo sem íþróttamaðurinn
frœgi og frábæri, Jesse Owens, sem
segir í stuttu máli ævisögu sína með
sérstakri hliösjón af því, hvernig
þaö er að vera blökkumaður í
Bandaríkjunum. Þá mœtti einnig
nefna frœgasta tenórsöngvara okk-
ar tíma, Corelli, en í ágætri grein
um, hann vekur meðal annars at-
hygli, að snillingurinn þjáist af
taugaóstyrk í hvert einasta skipti,
sem hann þarf að koma fram. Og
ekki má gleyma Ribbenirop, iitan-
ríkisráðherra Hitlers, en myndin
sem dregin er upp af honum í grein
rússneska blaðamannsins Valentín
Bjerezhkoff, er miklu geðfelldari en
við eigum að venjast. Frásögnin er
mjög trúverðug, en samkvœmt
henni verður ekki annað séð en
Ribbentrop hafi skynjað óljósan for-
boða á hinni örlagariku stundu, þeg-
ar hann varð að tilkynna rússneska
sendiherranum um ákvörðun, sem
loks leiddi til hruns Þriðja ríkisins.