Úrval - 01.08.1970, Blaðsíða 16
14
ÚRVAL
yfirgefið heimili sín, vegna þess að
foreldrar þeirra væru svo hræsnis-
fullir eða drykkfelldir, þrætu-
gjarnir eða væru höfðingjasleikjur,
sem væru alltaf að reyna að fikra
sig upp á við í metorðastiganum.
Lynch yfirlögregluvarðstjóri hefur
þetta að segja: „Unglingastrokið er
í næstum eins ríkum mæli tákn um
afbrot fullorðinna eða fullorðið
vandræðafólk og um unglingaafbrot
eða vandræðaunglinga."
Hverjar svo sem ástæðurnar eru,
geta athugulir foreldrar venjulega
komið auga á þær fyrir fram. Um
þetta atriði farast lögregluþjóni
einum í Boston svo'orð: „Oft er það
svo, að þegar foreldrar og stroku-
unglingar ná saman að nýju, þá
tekur það báða þessa aðilja aðeins
nokkrar mínútur að gera sér grein
fyrir því, að þeir hefðu getað fyrir-
byggt þetta allt saman, ef þeir
hefðu rætt misklíðarefni sín í stað
þess að láta slíkt dankast með þeim
afleiðingum, að upp úr sauð einn
góðan veðurdagirin.“
Nú hefur verið komið á laggirn-
ar ýmiss konar utanheimilishjálp-
arstarfsemi til þess að hjálpa þess-
um unglingum. í Omaha í Ne-
braskafylki geta börn og unglingar,
sem erfitt eiga, hringt í tvo ráð-
gjafahópa, sem bera heitin „Guide-
line“ (Ráðleggingar) og „Personal
Crisis Service" (Þjónusta persónu-
legra vandamála) og rætt þar ýms-
ar hugsanlegar aðferðir til þess að
útkljá misklíðarefnin við foreldr-
ana án þess að þurfa að segja til
nafns síns. í a. m. k. 28 borgum
hafa kirkjuleg og félagsleg samtök
opnað „björgunarmiðstöðvar", sem
eru hliðstæðar „Stikilsberjahúsi
fyrir strokuunglinga“, sem starf-
rækt er í San Francisco.
„Stikilsberjahúsið" er starfrækt
með hjálp styrkja og fjárframlaga
úr ýmsum áttum. Allt frá stofnun
þess árið 1967 hefur það veitt 1750
þreyttum og oft hungruðum stroku-
unglingum mat, húsaskjól og góð
ráð. En sérhver strokuunglingur,
sem nýtur þar hjálpar, fær hana
eingöngu með einu skilyrði: Hann
verður að hringja til foreldra sinna
og biðja um leyfi til þess að dvelja
í Stikilsberjahúsinu, jafnvel þótt
hann ætli aðeins að dvelja þar næt-
urlangt. Fyrst í stað ergir þetta skil-
yrði unglingana eða gerir þá vand-
ræðalega, en samt ganga flestir
þeirra að símanum og hringja. Um
leið hafa þeir í rauninni hafið sátta-
umleitanir. Séra Larry Beggs, fram-
kvæmdastj óri „ Stikilsberj ahússins",
hefur þetta að segja um þetta atr-
iði: „Unglingarnir forðast það eins
og heitan eldinn að verða hirtir af
lögreglunni og læstir inni í 36
klukkutíma, en það getúr gerzt, ef
lögreglan hirðir þá. Flestir þeirra
eru hér aðeins stutta stund, þ. e.
þangað til næsti langferðabíll eða
flugvél leggur af stað heim til
þeirra.“
Aðrir hópar sjálfboðaliða taka
virkan þátt í leit að týndum ungl-
ingum. í Greenwich Village-hverf-
inu í New Yorkborg eru 25 ungir
meðlimir Sankti Jóhannesar Evan-
gelisku Lútherskirkjunnar orðnir
þekktir sem „leitarmenn". Strax og
foreldrar týnds barns eða unglings
biðja Fred P. Eckhardt, sóknarprest
kirkjunnar, um að hefja leit, út-