Úrval - 01.08.1970, Side 24
22
ÚRVAL
TA.B.L. í Miami þakkar finn-
anda við móttöku bréfspjaldsins, og
sendir honum lítið kort er sýnir
hugsanlega leið flöskunnar, og þar
að auki matreiðslubók með upp-
skriftum á fiskréttum á spönsku
og ensku. Um 600 flöskur hafa þeg-
ar komið í leitirnar og verið send-
ar stofnuninni. Margir finnendur
láta einnig fylgja persónulegar til-
kynningar. Þannig barst tilkynning
frá konu nokkurri í Colombía.
Sendi hún kveðju frá litlum hafn-
arbæ þar sem seld er eldsneytisolía
til skipa. Greinir hún frá því, að
hún eigi marga vini í Norður-Am-
eríku, séu þeir allir „töfrandi heið-
ursmenn". — Annað bréf frá sendi-
ráðinu í Caracas, Venezuela, segir
frá flösku sem hafði fundist i Vest-
ur-Venezuela (206 mílur þar frá).
Fann hana 13 ára drengur, sem
hvorki kunni að lesa né skrifa. Vin-
ur fjölskyldu hans ferðaðist til
Caracas til þess að skila flösku-
skeytinu!
Þetta er nýjasti kapítulinn í hinni
gömlu og merkilegu sögu um þjón-
ustu rekaflöskunnar við mannkyn-
ið.
Tilgangurinn með þessari sér-
stöku framkvæmd, er að kanna yf-
irborðsstrauma á þessu hafsvæði,
rannsaka gróðurmagn og lífsskil-
yrði sjávardýra á þessum svæðum,
einkum að því er snertir túnfisk-
inn. Menn gera sér vonir um að í
senn megi auka veiði og tryggja
viðhald þessa nytjafisks, er sífellt
verður eftirsóttari.
Elztu og frægustu æfintýrin af
hafinu eru fregnir innsiglaðar í
flöskum, sem fleygt er í sjóinn, —
ákvörðunarstaður óþekktur. Flösku-
skeyti hafa verið notuð í meira en
2.200 ár. í sumum flöskunum hafa
verið kveðjur frá skipreika sjó-
mönnum. I öðrum ræður eða bréf,
sem ætlað var að koma í póst. Enn
aðrar eru sendar í vísindalegum til-
gangi, — og ein flutti jafnvel fregn-
ir á dulmáli.
Þessi áminnsta flaska fannst fyrir
350 árum, þegar Elísabet I. var
drottning á Englandi. Var það fiski-
maður sem fann flöskuna á strönd-
inni við Dover. Þegar hann opn-
aði flöskuna, varð hann heldur en
ekki undrandi. í vandræðum sín-
um sneri hann sér til yfirvaldanna
á staðnum með flöskuna, og hinn
merkilega boðskap sem hún hafði
að flytja. Yfirvöldin lásu sendiboð-
in í flýti, og hröðuðu sér sem mest
þau máttu á fund drottningar. Og
það fór vel á því! f flöskunni var
tilkynning frá brezkum njósnara,
send frá skipi er siglt hafði þar
fram hjá. Drottningin varð skelk-
uð. Henni skildist, að ekki væri
heppilegt, að hver og einn gæti opn-
að slíkar rekaflöskur, og kynnst
þannig leyndarmálum ríkisins. Gaf
drottningin út lög, sem bönnuðu
slíkt. Skapaður var sérstakur em-
bættismaður til þess að opna sjó-
reknar flöskur, (Uncorker of
Ocean Bottles). Það var hegningar-
vert, samkvæmt þeim lögum, ef
nokkur annar en lögskipaður em-
bættismaður las ,,flöskuskeyti“. En
lög þessi hafa síðar verið numin úr
gildi.
Sjómenn og rannsóknar-leiðang-
ursmenn, einangraðir frú umheim-
inum, hafa í nauðum sínum, látið