Úrval - 01.08.1970, Qupperneq 27
BRJÓTTU EKKI SJÓREKNA FLÖSKU
25
heimtustúlka fór jafnvel fram á
það, að fá eiginmann að launum
og tók fram, að hann ætti að vera
i góðum holdum, þvi að feitir menn
eru skemmtilegri, örlátari og róm-
antískari, ságði hún.
Þó að flöskuskeyti bjóði finnanda
yfirleitt ekki til mikilla verðlauna,
þá eru þó dæmi um annað. Sveita-
drengur á Azoreyjum fann flösku
rekna á fjöru. I henni var seðill, er
á stóð, að ef seðlinum væri komið
skilvíslega til ákveðins staðar í
New York, þá mundi finnanda
greiddir $ 1.000. Þetta var ekkert
gabb. Fundarlaunin voru raunveru-
lega greidd. Var þetta meira reiðu-
fé en drengurinn gat unnið sér inn
á tíu árum. Ábyrgðar- eða umboðs-
maður nokkur að útvarpsdagskrá,
hafði fleygt flöskunni í sjóinn ná-
lægt innsiglingunni til New York,
og var þetta auglýsinga-brella hans,
og náði hún tilgangi sínum. Flösk-
una rak um 2.500 mílur um Norð-
ur-Atlantshaf, unz hún lauk ferð
sinni um- strönd Azoreyja.
Hvers vegna eru einkum notaðar
flöskur? Svo brothættar sem þær
virðast, eru þó flöskur með góðum
tappa einkar vel sjófærir hlutir.
Flöskur eru sterkar og endingar-
góðar, og öruggar í hvaða öldugangi
sem er. Þær standa sig með ólík-
indum vel, þó að þær lendi í brimi,
við landtöku á grýttri strönd.
Skeytaflöskur flýta sér ekki. Þær
lóna sínar krókaleiðir og komast ef
til vill um 10 mílur á dag. Þó eru
dæmi um það, að flöskur bornar
fram af miklum straumi og sterk-
um vindi, hafa komist um 80 míl-
ur á 24 klst. Sumar flöskurnar kom-
ast aðeins fáar mílur, og snúa við
á næsta aðfalli. Aðrar ferðast þús-
undir mílna. Vitað er um eina
flösku, sem ferðaðist um höfin 1
25 ár, og er hún í skopi nefnd
„Hollendingurinn fljúgandi“, var
henni fyrst fleygt í sjóinn frá tog-
ara í Norðursjónum. — Þessi virðu-
legi boðberi hefir margsinnis verið
tekinn upp og fleygt í sjóinn aftur.
Hann hefir farið umhverfis hnött-
inn nokkrum sinnum, og mjög lík-
legt er, að einmitt nú á þessari
stundu sé hann hoppandi einhvers
staðar á öldum úthafsins.
Árið 1874 sendu japanskir fiski-
menn, ásamt nokkrum félögum sín-
um, út skilaboð í flösku á leið sinni
í leit að földum fjársjóði. Rak flösk-
una á sömu sjávarströnd, er þeir
höfðu lagt frá árið 1935, þ.e. eftir
151 árs ferðalag.
Wisky-flöskuh, bjórflöskur, auk
allskonar annarra gerða af flöskum,
eru á, reki um heimshöfin. Hugs-
aðu þér flösku á hvíldarlausu reki,
sífellt knúða fram af vegarlausum
öldum, vindi og straumi, en hlýt-
ur þó oftast að lokum hvíld, á strönd
einhvers lands. Fjöruskoðari ein-
hver verður hennar var við fætur
sér, og af einskærri forvitni fer
hann að rannsaka, hvort hér sé um
nokkuð fémætt að ræða. Dæmi er
til um flösku, sem rak frá stað
suð-austur af Cap Horn til vestur-
strandar North Island, New Zea-
land, vegalengd um 10.250 sjómíl-
ur.
Fjögur til sex þúsund mílna rek
er ekki óvenjulegt. Fyrir ekki ýkja
löngu var flaska látin í sjóinn um
800 sjómílur austur af Nýfundna-