Úrval - 01.08.1970, Side 31
ÓVINUR ÞJÓÐFÉLAGSINS NÚMER EITT
29
róstusama þriðja áratug aldarinn-
ar.“ í augum fjármálatímaritsins
„The Wall Street Journal" er hann
fjármálasnillingur, sem „hefur mót-
að hin skipulögðu glæpasamtök og
gert þau að velöguðu fjármálaafli."
Og í augum eins helzta Mafiusér-
fræðings ríkisstjórnarinnar er hann
versti óvinur þjóðfélagisins . . .
óvinur númer eitt.
Ríkisstofnanir álíta auðæfi Lan-
sky nema yfir 100 milljónum doll-
ara og sé næstum ekkert af þeim
á hans eigin nafni. Meðal eigna
hans má telja fjölda spilavíta, sem
dreifð eru úti um allt, allt frá eyj-
um í Mexíkóflóa til Miðaustur-
landa, fatagerðarfyrirtæki og
saumastofur í New York, veðreiða-
brautir í Nýja Englandsfylkjunum,
gistihús í Miami og milljónir á
milljónir ofan í innistæðum í er-
lendum bönkum og í bandarískum
hlutabréfum.
BUGS OG MEYER
Lansky bar ættarnafnið Suchow-
ljansky við fæðingu í bænum Crod-
no í Póllandi og var skírður Maier.
Hann fluttist til Brooklynhverfisins
í New York 9 ára að aldri. Hann
hætti í skóla eftir að hafa lokið
námi 2. bekkjar gagnfræðaskóla, en
þar hlaut hann alltaf ágætis- og
fyrstu einkunnir. Hann gekk í
þjófafélag í Neðri-Austurbæ á
Manhattan. Hann „vann sig fljótt
upp“ og tók til við meiri háttar
framkvæmdir. Og á árunum rétt
fyrir 1930, þ. e. á bannárunum,
gekk hann í félag við annan ungan
glæpamann. Bugs Siegel að nafni.
Stofnuðu þeir þá „Bugs og Meyer
glæpaflokkinn". Byssubófar í þjón-
ustu þeirra héldu vörð yfir ólög-
legum áfengissendingum, er sendar
voru milli Chicago og Austur-
strandarinnar. Þeir voru meðeig-
endur að a. m. k. þrem ólöglegum
brugghúsum, ásamt þeim Joe Ad-
onis og Frank Costello. Glæpastarf-
semi þeirra jókst og tók til sífellt
fleiri sviða, svo sem spilavíta, eit-
urlyfja og veðmangarastarfsemi, er
spennti greipar sínar um gervallt
landið.
Á árunum upp úr 1930 stofnaði
La Cosa Nostra (LCN), eða með
öðrum orðum ameríska Mafian,
„Nefnd“, sem skyldi vinna að því
að sætta hina stríðandi glæpaflokka
og koma þeim undir eina allsherj-
ar yfirstjórn, nokkurs konar
„Æðsta ráð“. Lansky var ekki af
ítölskum ættum, og hann var Gyð-
ingur, og því var hann ekki tækur
sem félagi í Cosa Nostra. En vald
hans var slíkt, að hann varð eins
konar „óopinber" meðlimur nefnd-
arinnar. Helztu framámenn Cosa
Nostra kepptust um að leita ráða
hjá þessum fjármálasnillingi. Þess
í stað leyfðu þeir honum að færa
út ríki sitt.
Eitt er að vinna með „utanveltu-
besefa". Annað er að treysta hon-
um. Cosa Nostra lét alltaf einn
varðmanna sinna hafa eftirlit með
Lansky til þess að fullvissa sig um,
að hann drægi ekkert undan, þeg-
ar skipt var. Þessi varðmaður, sem
Cosa Nostra setti Lansky til höf-
uðs, var lengi vel Joe Adonis,
„Capo“ (kapteinn) í „Cosa Nostra-
fjölskyldu" Vito Genovese í New
York. Þegar Adonis var rekinn úr