Úrval - 01.08.1970, Síða 32
30
TJRVAL
landi í Bandaríkjunum 1956, tók
Vincent (Bláeygði Jimmy) Alo við
þessu starfi, en hann var einnig
„capo“ hjá Genovese. Alo er enn
einn af helztu félögum Lansky.
„SVARTIR PENINGAR“
Lansky var orðinn stórauðugur
maður í lok síðari heimsstyrjaldar-
innar. Ásamt Jake bróður sínum
rak hann spilavíti í Browardhreppi,
fyrir norðan Miami, en þar var lög-
gæzla öll mjög léleg, enda voru
spilavíti 'þessi opin allan sólarhring-
inn. Spilavíti hans og happdrætti
efldust og blómguðust í fylkjunum
New York, New Jersey og Louisi-
ana. í spilavítaborginni Las Vegas
í Nevadafylki var Lansky að reisa
spilavítið „Flamingó“, sem kosta
átti margar milljónir dollara. Bugsy
Siegel átti að stjórna því.
Á árunum rétt eftir 1950 varð
tímabundinn afturkippur í allri
þessari miklu velgengni. Nokkrir
þingmenn öldungadeildarinnar, er
unnu að því að klekkja á stórglæpa-
mönnunum, ljóstruðu upp um hina
ofboðslegu spillingu, er viðgekkst
í Flórida og New York í skjóli
fjármagns Lanskys. Helzti forvígis-
maður þingmanna þessara var Est-
es Kefauver, þingmaður frá Ten-
nesseefylki. Spilavítunum í Bro-
wardhreppi var lokað, og Lansky
fékk eina fangelsisdóminn, sem
hann hefur fengið á sínum langa
glæpaferli. Hann fékk þriggja mán-
aða dóm fyrir að reka hið íburðar-
mikla Arrowhead Inn í Saratoga í
New Yorkfylki, en þar var um að
ræða risavaxið, ólöglegt spilavíti.
En árið 1952 komst einræðisherr-
ann Fulgencio Batista aftur til
valda á Kúbu eftir að hafa verið
landflótta í Florida í nokkur ár.
Hann lét óðar setja ný lög, sem
veittu Lansky og félögum hans al-
gert einkaleyfi á rekstri spilavíta
á Kúbu. Tilgangur hans var sá að
breyta Havana í glæstan segul, sem
drægi að sér bandaríska skemmti-
ferðamenn. Glæpaflokkur Lansky
reyndi að komast að „samkomu-
lagi“ við Castro, eftir að Batista
var velt úr sessi árið 1959. Einn af
trúnaðarvinum Lansky hefur skýrt
frá því, að á slíku hafi orðið bráð-
ur endir, þegar Che Guevara sendi
skotmenn sína inn í talningsher-
bergi spilavítanna til þess að full-
vissa sig um, að ríkið fengi álögð
gjöld greidd skilvíslega og ekkert
væri undan dregið. Lansky og fé-
lagar hans fluttu sig þá um set.
Þeir einbeittu sér nú að spilavít-
um í Nevadafylki. En einn starfs-
manna spilavítanna hefur skýrt frá
því, að talningaherbergin þar hafi
verið „heilagur og friðhelgur“
staður, þar sem skattheimtumönn-
um og stjórnarerindrekum var
stranglega bannaður aðgangur.
í Las Vegas réðu Lansky-samtök-
in, þ. e. Lansky og nokkrir félagar
hans og leppar, yfir að minnsta
kosti fjórum af stærstu spilavítun-
um. Þar var um að ræða Flamingó,
Fremont, Hestaskeifuna og Sands.
Þrisvar á sólarhring, eða með öðr-
um orðum í lok hverrar 8 stunda
vinnuvaktar, töldu spilavítaeigend-
urnir saman gróða sinn. Opinberir
embættismenn ríkisins voru svo
elskulegir að treysta þeim Lansky
og félögum algerlega, er þeir