Úrval - 01.08.1970, Síða 33
ÓVINUR ÞJÓÐFÉLAGSINS NÚMER EITT
31
skýrðu embættismönnunum frá því,
hvað þeim bæri að greiða í skatta.
Þannig höfðu skapazt stórkostlegar
aðstæður til þess að raka saman fé
hindrunarlaust.
Árið 1960 tóku Lanskysamtökin
í notkun aðferð, sem gengur undir
nafninu „ofanaffleyting". Alríkis-
lögreglan uppgötvaði, hvað var
þarna á seyði, þegar menn hennar
komu fyrir hlerunartækjum í Fre-
montgistihúsinu árið 1962. í öllum
spilavítunum var ofboðslegum fjár-
fúlgum fleytt ofan af tekjum þeim,
sem komu inn, og afgangurinn einn
gefinn upp sem innkomnar tekjur.
Það var um að ræða um 280.000
dollara, sem dregnir voru undan í
hverju spilavíti mánaðarlega. Eng-
ir skattar voru því greiddir af þess-
um „fleytitekjum“, hvorki til fylk-
is né ríkis. Peningarnir hurfu bara
úr talningsherberginu. Hópar „pen-
ingapokamanna“ fluttu þá til Lan-
sky í Miami. Lansky hélt eftir
bróðurpartinum eða um 60%. Af-
gangurinn var svo afhentur Ger-
ardo (Jerry) Catena í New Jersey-
fylki, en hann var einn af „kaptein--
unum“ í Genovese-„fjölskyldunni“,
en ,,fjölskylda“ sú hefur lengi deilt
hagnaði af skipulagðri glæpastarf-
semi með Lanskysamtökunum.
Menn Alríkislögreglunnar héldu
áfram vikunum saman að tengja
hin ýmsu smáatriði í vef þessum
saman í eina heild. Þ. 6. janúar ár-
ið 1963 hleruðu þeir til dæmis sam-
tal milli tveggja meðlima Lansky-
samtakanna, þeirra Edwards Levin-
son og Eds Torres. Þeir ræddu um
það, hvernig koma skyldi 115.650
dollurum til húsbóndans. Þeir höfðu
áhyggjur af því, að menn Alríkis-
lögreglunnar væru líklega farnir að
veita Benjamin Sigelbaum eftirför,
en hann hafði lengi verið einn af
aðstoðarmönnum Lansky. Levinson
stakk þá upp á því, að einhver ann-
ar væri fenginn til þess að flytja
peningana. Stakk hann upp á Idu
Devine, húsmóðurlegri eiginkonu
Irvings (Niggy) Devine, annars fé-
laga Lansky, en hann var einn af
framámönnum hinnar skipulögðu
glæpastarfsemi í Las Vegas. Torres:
„Viltu afhenda Idu peningana?“
Levinson: „Hún fer þangað í lest-
inni.“ Torres: „Hún verður bara
kyrr í klefanum allan tímann. Það
er því alveg óhætt að afhenda henni
peningana.“ Levinson: „Ég hringi í
hana á morgun.“ Torres: „Já, eins
öruggt og það getur verið.“
Þ. 8. janúar stakk Ida Devine
pakkanum með seðlabúntunum í
svarta tösku og lagði af stað með
lest til Chicago. Þar skipti hún um
lest og hélt áfram til Miami. Hún
afhenti pakkann og sneri aftur til
Nevadafylkis. Árvökulir menn Al-
ríkislögreglunnar höfðu fylgzt með
henni allan tímann.
Þegar komið var fram á mitt ár
1963, hafði Robert Kennedy sak-
sóknari þegar sagt „fleytingar-
mönnunum" stríð á hendur. Fylgzt
var nákvæmlega með ferðum sendi-
boða og menn skattheimtunnar
rýndu í skattskýrslur og plögg
spilavítanna tímunum saman.
Mönnum Lanskysamtakanna fannst
nú sem jörðin væri farin að hitna
undir fótum þeirra. Því seldu Lan-
skysamtökin nú spilavítahótel sín í
Las Vegas og beindi athygli sinni