Úrval - 01.08.1970, Blaðsíða 34
32
að hinum sólríku Bahamaeyjum.
Þar voru svo opnuð lögleg spila-
víti árið 1964. Og síðan tóku sendi-
boðarnir til að ferðast mánaðarlega
yfir Floridasund með troðfullar
ferðatöskur af ólöglegu „fleytifé"
til Lansky og félaga hans.
Ríkisrannsókn á starfsemi og
eignum Lansky á Bahamaeyjum
gerði það að verkum, að yfirvöldin
komust að síðasta snilldarbragði
hans, þ. e. hvernig hann breytti
„svörtum peningum“ (peningum,
sem aflað hafði verið á ólöglegan
hátt) í löglegt fjármagn með því að
notfæra sér þjónustu svissneskra
banka. Benny Sigelbaum útskýrði
hróðugur í bragði, hvernig bragði
þessu væri beitt. „Við skulum
segja,“ sagði hann, „að herra X
leggi stóra upphæð inn á númerað-
an reikning í Sviss og vilji síðan
leggja féð í hlutabréf á frjálsum
hlutabréfamarkaði. Bankinn kaup-
ir bara hlutabréfin í sínu eigin
nafni. Og svo er reikningur herra
X eignfærður reglulega fyrir út-
borguðum hlutabréfaarði. Þannig á
herra X hlut í fyrirtækinu, en nafn
hans sem hluthafa kemur hvergi
fram í bókum þess eða plöggum.“
Sama fyrirkomulagið, sem er
fullkomlega löglegt í Sviss, varpaði
huliðshjálmi yfir meðlimi Lansky-
samtakanna, þegar inneignir þeirra
hafa verið notaðar sem trygging
fyrir svissneskum bankalánum til
handa fyrirtækjum hér í Banda-
ríkjunum. Bækur og plögg sýna að-
eins, að lánin voru veitt af sviss-
neskum banka. Það, sem hvergi
kemur fram, er ,,fleytifé“ Lansky-
ÚRVAL
samtakanna, sem gerði þessa lán-
veitingu mögulega.
HANN LÆTUR AÐRA VINNA
SKÍTVERKIN FYRIR SIG
Nú eru liðnir rúmir þrír áratug-
ir, síðan Lansky átti sinn þátt í að
skipuleggja glæpasamtök, er spanna
allt landið, og koma þeim á lagg-
irnar. Hann er sá eini af stofnend-
um glæpasamtakanna, sem enn
heldur velli. Hinir, allt frá þeim
Frank Costello og Joe Adonis til
þeirra Louis (Lepke) Buchalter og
Bugsy Siegel, hafa verið myrtir,
fangelsaðir, reknir úr landi eða
þeim hefur verið velt úr valdasessi.
Hvernig hefur þessum grannvaxa
og veikbyggða flóttamanni tekizt
að halda velli í átökum slíkra há-
karla? Hér á eftir skal reynt að
skýra það að nokkru:
Þótt Lansky hafi reynt að láta
það líta þannig út á yfirborðinu
sem hann sé löghlýðinn og frið-
samur borgari, þá er hann eins
mikill ofbeldisseggur í eðli sínu og
þeir verstu innan Cosa Nostra. En
honum lærðist það bara fljótt að
láta aðra vinna skítverkin fyrir sig.
Árið 1928 reyndi hann til dæmis að
ráða John Barrett af dögum, en
það var undirtylla ein, sem Lansky
áleit vera uppljóstrara, sem skýrði
lögreglunni frá hinu og þessu. Það
var farið með Barrett í svolitla bíl-
ferð, en hann grunaði ekki neitt.
Og Lansky skaut beint á hann.
Samt tókst honum aðeins að særa
Barrdtt svoliitlu yfirborðssári, en
hann gerði sér lítið fyrir og stakk
sér út úr bílnum. Síðan fann lög-
reglan hann. Lansky var ákærður,