Úrval - 01.08.1970, Page 67
HJÓNABAND — HÆTTULEGT FYRlRTÆKl...
b) Guð minn góður, ekki einu sinni
enn!
c) Ef þú þarft að spyrja þessarar
spuringar, elskan, hlýtur sökin að
vera mín. Ástæðan hlýtur að vera
sú, að ég sýni þér ekki alla þá ást,
sem ég ber til þín.
Viltu skrúfa niður í þessum and-
skotans íþróttafréttaritara og knatt-
spyrnuleikslýsingunni hans?
a) Ef ég skrúfa niður í honum, heyri
ég ekki annað en öskrin í þér, þegar
þú ert að skamma krakkana.
b) Þegar þú ert að hlusta á fram-
haldsþættina, heyri ég í tækinu,
um leið og ég stíg úr lestinni á stöð-
inni.
c) Ó, fyrirgefðu. Ég ætti annars að
fara upp í svefnherbergið og horfa
á leikinn í ferðasjónvarpstækinu. Þú
kemur bráðum upp líka, er það
ekki?
Ilef ég nokkurn tíma orSið þér til
hjálpar í stœrfi þínu?
a) Elskan, hættu nú þessum fimm-
aurabröndurum.
b) Eflaust. Ef ég hefði ekki þig og
börnin, væri ég núna flækingur ...
og óskaplega hamingjusamur.
c) Elskan! Hefði ég nokkurn tíma
fengið að kenna í 10 ára bekk, ef
ég hefði ekki notið þinnar hjálpar?
Þú talar aldrei við mig.
a) Ég tala ekki við þig, vegna þess
að einu umræðuefnin, sem þú hefur
áhuga á, eru ómögulega einkunna-
bókin hans Billy, ómögulega upp-
þvottavélin þín og ómögulegi mjólk-
ursendillinn, sem sporar alltaf út
gólfin þín.
b) Auðvitað tala ég við þig. Hvað
er ég kannske að gera núna? Er ég
kannske í látbragðsleik?
65
c) Og ég, sem sat hérna einmitt og
var að hugsa um, hve falleg þú ert
og hve heppinn ég er og hversu frið-
sælt allt var.
FYRIR KONUR:
Hvert er rétta svarið, þegar ást-
kæri eiginmaðurinn gerir eftirfar-
andi athugasemdir:
Hvað verSur um alla hreinu vasa-
klútana mina?
a) Ég ét þá.
b) Þú átt ekki neina hreina vasa-
klúta, vegna þess að þú lætur þá
aldrei í óhreina þvottinn. Þú skilur
þá eftir samanvöðlaða í vösunum á
buxunum, sem liggja á gólfinu í
fataskápnum.
c) Hér er einn af mínum vasaklút-
um, alveg tárhreinn. Við skulum
brjóta hann þannig saman, að
blúndan sjáist ekki.
Finnst þér ekki nýja konan hans
Abe vera lagleg?
a) Allar nýjar eiginkonur eru lag-
legar. Vandamál þitt er bara það,
að þú situr uppi með þá gömlu.
b) Jú, en mér finnst samt, að hún
ætti að gera eitthvað við þessu litla
yfirskeggi.
c) Mér finnst allar nýju eiginkon-
urnar hans Abe vera laglegar.
I guðanna bœnum, viltu nú ekki
reyna að skrifa upphœðina einhvers
staðar, þegar þú fyllir út ávísun?
Hvar sem er!
a) Hvers vegna læturðu eins og vit-
firringur? Ég skrifa aldrei neina
gúmmítékka. Það er alltaf til inni
fyrir þeim.
b) Jæja þá ... þú ert milljónamær-