Úrval - 01.08.1970, Page 80
78
þjóðhöfðíngja og þó að smekkur og
tízka breytist í skartgripum, þá eru
margir þeirra slík listasmíði, að
kynslóð eftir kynslóð ber þá
óbreytta. Sumir munu ef til vill
minnast þess, þegar dönsku kon-
ungshjónin komu hingað, að drottn-
ingin bar þá skartgripasamstæður
tvær, sem að jafnaði eru til sýnis
í Rósenborgarhöll, aðra skreytta
perlum, hina með safírum, en báð-
ar munu vera erfðagóss. Brezka
konungsfjölskyldan á líka sitthvað
til skiptanna og hafa blaðamenn
stundum fundið að því, að Elísabet
drottning bæri alltof marga skart-
gripi í einu, en allt eru það þó smá-
munir á móti því, sem Mary amma
hennar gat stundum komið fyrir
utan á sér. Fæstar okkar munu
þurfa lengi að leita í skartgripa-
skríninu sínu til þess að ákveða,
hvaða gimsteina við notum þann
og þann daginn, en sumar okkar
eiga gullhringa með fallegum stein-
um, nælu eða eyrnalokka, þó að
eftirlíkingar á eðalsteinum og ódýr-
ari málmar séu hið venjulega skart
nútíma kvenna, eða gripir úr allt
öðrum efnum. Samt er gaman að
heyra svolitla lýsingu á helztu eð-
alsteinum, sem felldir eru í skart-
gripi og sagnir, sem fylgja þeim.
Þeirra dýrastir eru að jafnaði de-
mant, smaragður, safír, rúbín og
svo perlur.
Ametyst: Purpurarauður steinn,
heillasteinn febrúarbarna. Ver eig-
andann fyrir ofdrykkju, veitir hon-
um stillingu og hreinlífi.
Aquamarine: Bláleitur eða gulur
og eru dekkstu steinarnir dýrmæt-
IJRVAL
astir. Heillasteinn marzbarna. Tákn
eilífrar æsku.
Cornelian eða Carnelian: Rauð-
leitur steinn, en stundum líka
brúnn, gulur eða hvítur. Þótti góð
vernd fyrir svartadauða.
Demantur: Vinsælastur og verð-
mætastur gimsteina, metinn til
verðs eftir þyngd og tærleika. —
Heillasteinn aprílbarna.
Smaragður: Sterk grænn og ljóm-
andi steinn, en brothættur og þarf
að fara mjög gætilega með hann.
Heillasteinn maíbarna. Eflir ástir
og veraldargengi og verndar sjó-
menn fyrir drukknun.
Fálkaauga: Dregur nafn af því,
að hann líkist fuglsauga með grá-
bláum blæ. Skyldur kvarsi, notaðux
í ódýra skrautgripi.
Garnet: Er til í dumbrauðum lit
og hunangsgulum. Heillasteinn jan-
úarbarna. Á að vernda gegn eld-
ingum og eitri, styrkir vináttu og
stefnufestu.
Hiddenite: Hálfeðalsteinn frá
Brazilíu. Venjulega er hann ekki
slípaður, aðeins skorinn til og not-
aður í nýtízku skartgripi, dauf-
grænn og geislandi.
Iolite: Hálfeðalsteinn frá Ástra-
líu, svipaður safír.
Jaði: Getur verið í ótal grænum
litbrigðum. Þarm stein á að gefa á
35 ára hjúskaparafmælum.
Kunzite: Mjög fallegur en ódýr
steinn frá Brazilíu, bleikur með
mjúkum gljáa. Notaður í hringa og
nælur.
Kvars: Hálfeðalsteinn, gulur,
rauður eða bleikur.
Lapis-Lazuli: Einn af þeim gim-
steinum, sem mönnum hafa lengst