Úrval - 01.08.1970, Síða 86
84
ÚRVAL
Búktalarinn hafði ekkert að gera
og var félaus að kalla. En hann var
slunginn og sniðugur. Hann notaði
síðasta tíukrónuseðilinn til þess að
kaupa sér hund. Og með hundinn
undir hendinni fór hgnn inn á næsta
veitingahús. Hann kippti þjóninum
út i horn og sagði:
— Ég á ekkert þessa studina ann-
að en þennan hund, sem talar. Vild-
uð þér kaupa hann fyrir 100 krón-
ur?
—• Hvað eigið þér við, — hund,
sem talar? spurði þjónninn forviða.
Búktalarinn sýndi nú íþrótt sína
og svo virtist, sem hundurinn talaði:
— Víst get ég talað. Ég get sagt
eitt og annað um matinn hér. Hann
er hræðilegur. Ég hef sosum verið
hérna fyrr.
Þjónninn klóraði sér í hnakkan-
um alveg forviða. Búktalarinn brosti
til hundsins, en sagði síðan við
þjóninn:
— Mér þykir leitt að þurfa að
skilja við þennan hund. En ég þarf
að fá peningana. Hvað segið þér?
— Ja, 100 krónur er of mikið fyr-
ir hann, jafnvel þótt hann tali. Hér
eru 50 krónur. Og þjónninn fór of-
an í veskið sitt.
Búktalarinn þjarkaði ekkert.
Hann tók við peningunum og
muldraði:
— Þakka yður fyrir. Að svo
mæltu, skundaði hann til dyra.
Þegar búktalarinn tók í hurðarhún-
inn, hrópaði hundurinn á eftir hon-
um:
— Nújá, svo ég er aðeins 50 króna
virði eða hvað. Eftir þetta segi ég
ekki orð framar, svo lengi sem ég
dreg andann.
—o—
í New York fylki í Bandaríkjun-
um hefur verið ákveðið að hefja
gagngera endurskoðun á gömlum
lögum og afnema ýmiss lagaákvæði,
sem enn þá standa óhögguð í laga-
safninu. Hér eru nokkur sýnishorn
af þessum lögum:
•fe Það er bannað að selja límon-
aði í mj ólkurflöskum.
úr Það er bannað að láta asna
sofa í baðkarinu sínu.
Það er bannað að hafa með sér
eða reyna að selja spil í grennd við
herbúðir.
•fc Það er bannað að skjóta héra
úr sporvögnum eða öðrum opinber-
um farartækjum.
Það er bannað að ganga með
matskeið í vasanum á götum úti.
—o—
Sjálfur Konfúsíus er höfundur
eftirfarandi spakmæla:
• Sæll er sá maður, sem ekkert
skilur, því að hann mun aldrei mis-
skilja.
• Sæll er sá maður, sem engu
trúir, því að hann verður ekki fyr-
ir vonbrigðum.