Úrval - 01.08.1970, Síða 93
NJÓSNARINN SEM SKIPTI UM SKOÐUN
91
höggsmannabúðum við Fraserána í
Brezku-Kólumbíu. Síðan fór hann
að vinna í timburafgreiðslu fyrir
sama fyrirtæki í Vancouver. Árið
1949 fluttist hann til Milwaukee.
Konan hans hafði verið honum ó-
trú og hafði yfirgefið hann árið
1956. Þetta hafði verið mikið áfall
fyrir hann, og hann hafði því þjáðzt
af þunglyndi um hríð. Móðir hans
og amma voru báðar látnar. Bú-
garðurinn norður í Minnesotafylki
hafði verið lagður undir aðra bú-
earða fyrir löngu.
Þetta var mjög trúleg „ævisaga",
enda studdist hún við ýmsar stað-
revndir. Menn KGB höfðu eytt
mörgum mánuðum í að fullgera
hana. Þeir höfðu tengt raunveru-
leear staðreyndir fyrra lífs Tuomi
í Bandaríkjunum upplýsingum, sem
aðrir niósnarar þar höfðu útvegað
hrim. Og úr þessu öllu saman höfðu
beir svo spunnið trúlega „ævisögu".
K/ma nokkur, Helen Matson að
nafni, hafði í raun og veru haldið
burt frá smábænum í nyrðri hluta
Mi^higanfylkis til þess að gifta sig.
Síðan hafði ekkert til hennar spurzt
fvrr eða síðar. Heima- í Moskvu
hafði Tuomi margsinnis skoðað alls
konar ljósmyndir af ýmsum stöð-
um. sem hann var sagður hafa dval-
ið og unnið á. Og hann hafði oft
horft á kvikmvndir, sem höfðu ver-
ið teknar á þrem af þeim vinnu-
stöðum, sem hann var sagður hafa
urmið á. Tuomi gætti þess að bæta
vmsum slíkum upplýsingaratriðum
inn í frásögn sína til uppfyllingar
til þess að gera frásögnina enn trú-
legri.
B.annsóknarlögreglumennirnir
hlustuðu á hann af mikilli athygli.
Þetta hljómaði allt svo trúlega, að
nú fyrst dirfðist hann að gera sér
von um, að hann hefði kannske
möguleika á að sleppa. En síðdeg-
is kom fimmti rannsóknarlögreglu-
maðurinn út úr herberginu, sem
Tuomi hafði heyrt raddir úr áður.
Maður þessi gekk til Dons og hvísl-
aði einhverju að honum.
„Kaarlo, starfbræður okkar hafa
farið á stúfana og athugað ýmis-
legt fyrir okkur“, sagði Don. „Við
erum búnir að tala við afgreiðslu-
deild General Electric-verksmiðj-
unnar í Milwaukee, timbursölufyr-
irtækið í Bronx og tvo síðustu
framkvæmdastjórana, sem sjá um
að leigja út íbúðir í fjölbýlishúsinu
í Bronx, þar sem þú segist hafa bú-
ið. Þitt nafn fyrirfinnst. hvergi á
þessum stöðum. Hvaða skýringu
geturðu gefið á því“?
Tuomi yppti öxlum og svaraði:
„Þið hafið bara ekki talað við rétta
aðila“.
„É'g held, að það sé rökréttara
að gera ráð fyrir, að þú hafir logið
að okkur“, sagði Don. „Ijíttu á
.þessa mynd. Þekkirðu þennan
mann“?
„Já“, svaraði Tuomi steinhissa.
„Þet.ta er stjúpfaðir minn‘.
,.En þetta fólk“? spurði Don og
rétti honum aðra Ijósmynd.
„Móðir mín, stjúpfaðir minn, syst-
ir rhín og ég, þegar ég var dreng-
ur“.
..Manstu, hvenær myndin var
tekin“? spurði Don.
„Nei, ég hef aldrei séð hana fyrr“,
svaraði Tuomi.
„Hugsaðu þig nú vel um“, sagði