Úrval - 01.08.1970, Qupperneq 103
NJÓSNARINN SEM SKIPTI UM SKOÐUN
101
vænt um, að þú gazt komið. Okkur
finnst alltaf svo gaman að hitta vini
Jacks,“ sagði hún.
Tuomi gat ekki gert sér ná-
kvæma grein fyrir því, hversu mik-
ið hún vissi um hann. En það varð
brátt augljóst, að hún vissi, að hann
var útlendingur og einn síns liðs í
New York. Eftir að þau höfðu rabb-
að saman svolitla stund, bauð hún
honum fram í eldhús. ,,Ég vona, að
þú afsakir, að það er allt á rúi og
stúi. Ég ætla að gefa þér ýmis góð
ráð, sem gætu komið sér vel, þeg-
ar þú ferð sjálfur að búa.“ Hún
lauk við að laga kvöldverðinn,
meðan hún gaf Tuomi upplýsingar
um ýmsan frystan mat, útskýrði
fyrir honum kosti ýmissa hreinsi-
og þvottaefna og lýsti ýmsum fljót-
löguðum réttum. Tuomi var alveg
furðulostinn yfir fjölbreytni og úr-
vali fæðutegundanna, en samt var
hann enn hrifnari af því, hversu
snilldarlega eldhúsið var skipulagt
og búið öllum hugsanlegum tækj-
um.
Tveir synir Jacks á unglingsaldri
komu inn í borðstofuna rétt fyrir
kvöldmat og kynntu sig. Jack bað
stutta borðbæn, þegar þau höfðu
öll setzt, og Tuomi minntist aðvör-
unar sovézks kennara síns um að
muna nú vel eftir að lúta höfði og
ioka augunum. Kvöldverðurinn var
alveg prýðilegur. Það var steikt
kálfakiöt í sósu og heitt kex með.
Samtal þeirra var algerlega óþving-
að og eðlilegt. Nærvera Tuomi
virt.ist ekki leggia neinar hömlur á
eðlilega framkomu þeirra, og þau
ræddu einkamál fjölskyldunnar,
eins og hann væri einn af fjöl-
skyldumeðlimunum. Hver átti að
fá að nota bílinn á laugardags-
kvöldið? Hver hafði notað hann
síðasta laugardagskvöld? Það þurfti
að gera við sjónvarpstækið, og samt
voru ekki liðnar fimm vikur, síð-
an hafði verið gert við það síðast.
Hvort ætli það væri betra að láta
gera við það aftur eða kaupa bara
nýtt og nota bara peningana til
þess að kaupa nýjan plötuspilara
með fullkomnum útbúnaði? Voru
allir reiðubúnir til þess að fara á
fætur klukkan sex næsta sunnu-
dagsmorgun og sækja messu
snemma, svo að Jack gæti farið að
leika golf klukkan níu, en honum
hafði einmitt verið boðið það?
Synirnir hjálpuðu til við að taka
af borðinu, og húsmóðirin bar fram
kaffi og ábæti. Tuomi lagðí frá sér
gaffalinn eftir fyrsta bitann og
sagði: ,,É'g hef aldrei bragðað neitt
svo dásamlegt fyrr!“
Hún brosti og svaraði: „Þetta er
bláberjaávaxtakaka. Ég bakaði
hana í dag.“
. Síðan afsökuðu drengirnir sig
með þeim orðum, að þeir yrðu að
ljúka við heimavinnuna fyrir skól-
ann. Og Jack stakk upp á því við
Tuomi, að þeir litu á húsið. Tuomi
var alveg steinhissa á því, að þau
höfðu sérstakt svefnherbergi, sem
var eingöngu notað handa gestum.
í leikherberginu sá hann nokkur
innrömmuð skjöl uppi á vegg fyrir
ofan skrifborð Jacks. Eitt var próf-
skírteini frá háskóla og sýndi, að
Jack hafði lokið þaðan B.A.-prófi.
Þar var einnig skírteini frá öðrum
háskóla, sem sýndi, að Jack hafði
lokið þaðan lögfræðiprófi. Einnig