Úrval - 01.08.1970, Qupperneq 105
NJÓSNARINN SEM SKIPTI UM SKOÐUN
103
astan“ hátt í Bandaríkjunum. Þess
vegna varð Tuomi aS leita sér að
íbúð hjálparlaust. Eftir nokkurra
vikna leit valdi hann íbúð við 80.
stræti nálægt Roseveltbreiðgötu í
Jacksonhæðahverfinu í Queens-
borgarhverfinu. Hún var á sjöttu
hæð í gamalli byggingu, sem virt-
ist henta mjög vel til hvers kyns
leynimakks. Það voru fjórar inn-
göngudyr á húsinu, tvær á fram-
hliðinni og tvær á bakhliðinni.
Flestir íbúanna bjuggu þar aðeins
no'kkra daga eða vikur og enginn
langdvölum. Þeir, sem bjuggu þar
um hríð, voru mjög afskiptalausir
um hag sambýlismanna sinna. Það
var líka mjög þýðingarmikið atriði
í þessu sambandi, að Alríkislög-
reglunni tókst að finna íbúð þar í
grenndinni og taka hana á leigu.
Þar var um að ræða tryggan og
þægilegan felustað, þar sem Tuomi
gat hitt þá Jack og Steve og rætt
við þá í næði.
Þegar Jack var búinn að koma
sér fyrir í íbúðinni, hóf hann nám
á námskeiði einu við verzlunar-
skóla, en á því var kennd bókfærsla
og aðrar greinar skrifstofuhalds.
Hann lagði svo hart að sér við nám-
ið, að hann lauk námskeiðinu þrem
mánuðum fyrr en venja var, þ. e.
í september árið 1959. Og nú fór
hann að leita sér að atvinnu með
hjálp ráðningarskrifstofu á Man-
hattan. „Ég held, að við höfum
kannski starf, sem hentar yður vel,“
sagði afgreiðslustúlkan á ráðning-
arskrifstofunni við hann dag einn í
miðjum októbermánuði. „Það vant-
ar starfsmann hjá skartgripaverzl-
uninni Tiffany & Co. Það er nú ekki
Járnbrautarbrúin viö 69. straeti, þar
sem Jcomið var fyrir hólfi fyrir skila-
boð.
vinnustaður af verri endanum."
Tuomi hafði verið skógarhöggs-
maður í afskekktum skógarhéruð-
um Austur-Karelíu, áður en hann
var tekinn í Rauða herinn árið 1939.
Honum fannst það því allt að því
hlægilegt að leita sér vinnu í hinni
glitrandi óhófsveröld Tiffany & Co.,
þessu táknræna vígi kapítalismans.
En Jack hvatti hann til þess að taka
þetta starf. Hann sagði við Tuomi:
„Taktu starfið. Hverju hefurðu svo
sem að tapa?“
Ráðningarstjórinn hjá Tiffany &
Co. ræddi við Tuomi í um 50 mín-
útur. Hann spurði hann um nám