Úrval - 01.08.1970, Blaðsíða 107
NJÓSNARINN SEM SKIPTI UM SKOÐUN
105
reglumanna, sem voru á leið upp
stigana til þess að ná honum. Hann
sá fyrir sér fréttatilkynningar á
sjónvarpsskermi, þar sem tilkynnt
var, að hann yrði bráðlega hand-
tekinn. Hann sá sjálfan sig, þar sem
hann var að lesa fyrirsögn í Daily
News: SOVÉZKUR NJÓSNARI
STELUR ARMBANDI FRÁ TIFF-
ANY.
Tuomi varð ekki svefnsamt um
nóttina. Hann beið fölur úti fyrir
aðaldyrum Tiffany & Co., þangað
til næturvörðurinn opnaði hurðina.
Hann flýtti sér til yfirmanns skrá-
setningardeildarinnar, rétti honum
rrmbandið og sagði: „Hérna er arm-
band, sem verðmiðann vantar á.
Viltu gjöra svo vel að útbúa verð-
miða á það, svo að við getum bók-
að það á vörutalningarskrána."
Deildarstjórinn tók upp stækkun-
argler sitt og rýndi rólegur í verð-
númerið, sem rispað var innan á
armbandið. „Átján þúsund dollar-
ar,“ sagði hann. „Finnst þér það
ekki fallegt?" Tuomi létti svo
óskaplega, að hann gaf ekkert svar
við þessari spurningu.
AUGNABLTKSMYND AF
FORSETANUM
Alla þessa mánuði leit Tuomi enn
á sig sem ósveigjanlegan kommún-
ist.a í hlekkjum. Hann hélt áfram
að rökræða þjóðfélagsmál við þá
Jack og Steve. gerði lítið úr Banda-
ríkjunum og hrósaði Sovétríkjun-
um á hvert reipi. í upphafi forseta-
kosningabaráttunnar árið 1960
nefndu þeir Setve og Jack aðsteðj-
andi kosninpar oft sem ágætt dæmi
um frelsi einstaklingsins í Banda-
ríkjunum og ein þýðingarmestu
mannréttindi hans.
„Þetta hefur ekki minnstu þýð-
ingu,“ svaraði Tuomi. „Báðir flokk-
arnir stefna að því að arðræna al-
þýðina. Það skiptir engu máli, hvor
þeirra vinnur."
En viðhorf Tuomi fór að brevt-
ast eftir útnefningu Johns F.
Kennedy sem forsetaefnis. Meðan
á kosningabaráttunni stóð, fór hann
alltaf snemma á fætur til þess að
lesa kosningafréttirnar, áður en
hann hélt af stað í vinnu. Og svo
flýtti hann sér heim úr vinnunni
til þess að hlusta á fyrstu sjón-
varpsfréttir kvöldsins. Kennedy
varð í augum Tuomi persónugerv-
ingur þess glæsileika, sem stjórn-
málalífið í Sovétríkjunum var ger-
sneytt. Þegar nokkrar skoðana-
kannanir bentu til þess í septem-
ber, að Richard Nixon væri að ná
yfirhöndinni, varð Tuomi alveg
miður sín af ótta, líkt og hann
horfðist í augu við persónulega
ógæfu.
Dag einn spurði hann Jack:
„Finnst þér ekki, að ég ætti að láta
setja mig á kjörskrá?"
,.JÚ, sérhver góður þegn ætti að
kiósa,“ samþykkti Jack. ,,0g bað
er okkar starf að sjá um, að þú
sért, góður þegn.“
Áhugi hans hélt áfram að magn-
ast. Hann kynnti sér, hvað gera
byrfti til þess að öðlast rétt til þess
að vera skráður sem kjósandi. Og
hann var tekinn á kjörskrá í New
Vork. Á kosninsadaginn hélt hann
á kiörstað með öðrum Bandaríkja-
mönnum, og þannig hefur hann
Hklega orðið eini maðurinn, sem