Úrval - 01.08.1970, Síða 110
108
ÚRVAL
lega: „Jæja, í hvaða kirkju ættum
við að fara?“
„Við skulum reyna Sankti Matt-
heusarkirkjuna," sagði Jack. „Það
ætti að vera óhætt fyrir okkur að
fara þangað saman." Jack klappaði
á öxlina á Tuomi, þegar þeir nálg-
uðust dómkirkjuna, sem er við
þvergötu við Connecticutbreið-
stræti. „Sjáðu, Kaarlo!“ sagði hann.
„Þarna er vinur þinn.“ Tuomi sneri
sér við og kom auga á myndarleg-
an, berhöfðaðan, ungan mann, sem
var að skálma upp kirkjuþrepin.
Hann var í dökkbláum yfirfrakka.
Þetta var John F. Kennedy.
„Er leyfilegt að taka mynd?“
hvíslaði Tuomi.
„Þetta er frjálst land,“ svaraði
Jack bara.
Forsetinn tók eftir því, að Tuomi
og fleiri langaði til þess að taka
mynd af honum. Og því stanzaði
hann sem snöggvast, brosti og veif-
aði til þeirra: „Hvað finnst ykkur
um betta?“ sagði Tuomi. „Já, hvað
finnst ykkur um þetta?“
N.TÓSNIR VIÐ HÖFNINA
Nokkrum mánuðum síðar komu
beir Kennedy forseti og Nikita
Khrushchev saman á fund í Vínar-
borg. Þar hótaði Khrushchev stríði,
nema Bandaríkin létu Vestur-
Berlín af hendi. Kennedy var þög-
ull og alvarlegur í bragði eftir
bennan fund. Hann flaug aftur til
Wasbington til þess að styrkja og
efla ■''aralið landsins og styrkja
Uandaríslrar varnir hvarvetna.
Khrushchev sneri aftur til Moskvu
til þess að hefia þar flóknar, leyni-
legar framkvæmdir, sem áttu eftir
að hrinda heiminum fram á nöf
kjarnorkugereyðingar, nær henni
en dæmi voru til. Meðan á þessu
leynimakki stóð; fengu sovézkir
njósnarar víðs vegar í Bandaríkj-
unum nýjar fyrirskipanir frá Mið-
stöðinni í Moskvu.
Fyrirskipanir þær, sem Tuomi
fékk, voru skrifaðar með leyni-
skrift. Textinn var svohljóðandi:
„Ástandið er að verða flóknara en
áður. Þú verður nú að vera virkari
í þínu starfi. Safnaðu sjálfur upp-
lýsingum með eigin athugunum og
skýrðu Miðstöðinni frá hvers konar
undirbúningi frekari vígbúnaðar í
landinu. Eyddu frístundum þínum
sem mest á stöðum, þar sem menn
úr her, flota eða flugliði koma sam-
an, til dæmis í hafnarhverfum, í
grennd við vörugeymsluhús her- og
flotabækistöðva í Brooklyn nálægt
Bay Ridgestöðinni og bryggjum nr.
11, 12 og 13 í Richmond. Reyndu
að komast að því hvers konar her-
gögnum er skipað út og hvert þau
eiga að fara. Útvegaðu einnig upp-
lýsingar um herliðsflutninga og
ferðir alls konar herskipa. Vertu
enn betur á varðbergi en áður. —
Eiginkonu og börnum líður vel.
Foringinn."
„Jæja, Kaarlo, Miðstöðin álítur,
að þú sért nú tilbúinn til þess að
ráða við meiri háttar verkefni,"
sagði Jack.
..En hvernis get ég haldið áfram
að vinna hjá Tiffany og flækzt
iafnframt því niðri við höfn?“
spurði Tuomi.
„Það geturðu alls ekki,“ svaraði
Steve. „Það verður að koma bví
þannig fyrir á einhvern hátt, að þú