Úrval - 01.08.1970, Blaðsíða 113
NJÓSNARINN SEM SKIPTI UM SKOÐUN
111
starf og notaði þær aðferðir, sem
honum höfðu verið kenndar í
Moskvu. Alríkislögreglumennirnir
voru alveg stórhrifnir af því, hvaða
árangri hann náði upp á eigin spýt-
ur. Hann tók að venja komur sínar
í vínstúku eina í Brooklyn, sem var
beint á móti skipasmíðastöð Bethle-
hem-stálfélagsins. Hann vingaðist
við starfsmenn stöðvarinnar og
hvatti þá varfærnislega til þess að
tala um starf sitt. Þannig komst
hann að því, að verið var að búa
tvo tundurspilla, USS Callan og
USS Taylor, hinum fullkomnasta
rafeindatækjaútbúnaði, sem mikil
leynd hvíldi yfir. Hann hafði að
vísu ekki hlotið neina vísindalega
menntun, en samt samdi hann
tæknilega skýrslu um þetta, og
voru upplýsingar hennar mjög ýt-
arlegar, enda skildi hann minnst af
efninu.
Upplýsingarnar, sem. hann hafði
komizt yfir, voru svo fullkomnar,
að Jaek sagði við hann í trúnaði:
„Við verðum víst að laga þær heil-
mikið til. Við höfum ekki efni á
að senda þessar upplýsingar í ó-
breyttu formi“.
Tuomi kynntist einnig ýmsum
öðrum Bandaríkjamönnum í sam-
kvæmum og á heimilum, t.d. rat-
sjársérfræðingi í flotanum, herlið-
þjálfa, sem hafði lokið námi í her-
njósnaskóla og átti brátt að fara í
leynilega sendiför til Miðaustur-
landa, verkfræðingi, sem sá um sölu
allra nýrra tækja, sem fullkomnuð
voru og framleidd af þýðingar-
mestu hervarnaverktökum landsins,
og ungum manni, sem starfaði við
eina stöð CIA (Njósnamiðstöðvar-
Tuomi sem skrifstofumaður. Myndin
er tekin á jólum 1960.
innar bandarísku) nálægt Washing-
ton, en yfir þeirri stöð hvíldi óskap-
leg leynd. En þessir menn voru var-
ari um sig en starfsmenn skipa-
smíðastöðvarinnar. Þeir skýrðuhon-
um aldrei frá neinum mikilvægum
upplýsingum.
En samt áleit Miðstöðin í Moskvu
það mjög vel af sér vikið af Tuomi
að hafa tekizt að eignast þessa nýju
vini og kunningja. Af fyrri reynslu
vissu menn Miðstöðvarinnar vel, að
við nánari kunningsskap og vináttu
gæti Tuomi kannske tekizt að finna
einhvern leyndan þátt eða veik-
leika í fari einhverra hinna nýju
vina og kunningja, sem gerði það
að verkum, að auðveldara reyndist
en ella að fá þá til samstarfs um
njósnir. En jafnvel þótt svo reynd-
ist ekki, var það vel hugsanlegt, að
hinir nýju vinir og kunningjar