Úrval - 01.08.1970, Side 117
NJÓSNARINN SEM SKIPTI UM SKOÐUN
115
ég að segja þér frá því, að það á
að koma þér heim næsta ár. Held-
urðu, að þú gætir komið því þann-
ig fyrir, að þú gætir fengið 2—3
mánaða sumarfrí, þ.e. nægilega
langt til þess að koma til Rúss-
lands“?
„En hvers vegna bara „sumar-
frí“?“ spurði Tuomi. „Á ég þá ekki
að verða kyrr í Sovétríkjunum“?
Galkin hló. „Nei, vinur minn“,
svaraði hann. „Þú ferð hingað aft-
ur. . . . og verður hér langdvölum“.
Þessi tilkynning Galkins var Tu-
omi fyrsta sönnun þess, að hann
var enn í góðu áliti hjá Miðstöð-
inni í Moskvu. Því tók að slaka á
spennunni innra með honum, og
hann reyndi sitt ýtrasta til þess
að leyna því, hversu innilega hon-
um létti.
„Þetta er góð byrjun hjá þér“,
sagði Galkin.
„Við ætlum að láta þig sjá um
þrjár upplýsingauppsprettur okkar
hérna vestra, þrjár af okkar allra
beztu. Þar er um bandaríska njósn-
ara að ræða, og þeir útvega okkur
heilmikið af þýðingarmiklum skjöl-
um og teikningum. Við viljum, að
þú byrjir að leita að tveim mjög
góðum felustöðum fyrir utan New
Yorkborg, nógu stórum til þess, að
hægt sé að skilja þar eftir skjala-
pakka. Svo mun smám saman verða
gengið nánar frá öllu fyrirkomu-
lagi, þegar Miðstöðin hefur sam-
þykkt þessa felustaði".
Galkin þagnaði, dró síðan djúpt
andann og hóf máls að nýju.
„Taktu óskaplega vel eftir því, sem
ég hef nú að segja. Þú verður líka
að fara eins oft til kafbátastöðv-
arinnar í New London og hættu-
laust má teljast. Þú ferð þangað
sem skemmtiferðamaður. Teldu
kafbátana, sem þar eru hverju
sinni, einkum kjarnorkukafbátana.
Hafðu líka auga með öllum óvenju-
lega miklum umsvifum í kafbáta-
stöðinni og nágrenninu. Það er sér-
staklega mikilvægt, að þú gætir að
því, hvort varðmönnum hefur verið
fjölgað eða hvort þar er óvenjulega
mikill fjöldi vörubíla. Tilkynntu
okkur einnig tafarlaust, ef allir kaf-
bátar hafa yfirgefið stöðina. Hafðu
líka gætur á höfninni í New York.
Gættu vel að því, hvort nokkur
merki sjást um, að verið sé að hefja
undirbúning að því að taka gömlu
bryggjurnar, sem notaðar voru í
síðari heimsstyrjöldinni, í notkun
að nýju, eða hvort það hefur þegar
verið gert. Reyndu að komast að
því á hverjum morgni, hvort verið
hefur óvenjulega mikið um flutn-
inga liðs eða stórra vörubíla um
borð í skip í New Yorkhöfn um
nóttina“.
Nú var Galkin farinn að tala mjög
hratt, en það var ómeðvitaður vani
hans, þegar hann varð æstur og
vildi leggja sérstaka áherzlu á orð
sín. „Hafðu vakandi auga með því
með hjálp Franks og annarra vina,
hvort byrjað er að kalla einstaka
varaliðsmenn til þjónustu með
leynd. Hlustaðu vel eftir hvers kyns
orðrómi um, að það sé hafinn und-
irbúningur að brottflutningi íbúa
eða starfsliðs þýðingarmikilla stofn-
ana frá helztu stórborgunum. Næstu
vikurnar verðurðu að skýra okkur
frá öllu því, sem kann að virðast
óvenjulegt. Það gæti verið mjög