Úrval - 01.08.1970, Side 129
Þróunaráætluninni (UNDP), var að
tilhlutan FAO falið einkafjrrirtæki,
Harza Engineering Company í Chi-
cago, sem sendi hóp sérfræðinga til
Guíneu. Bandaríski hópurinn vann
að mestu í kviksyndi og bauð byrg-
in regntimanum frá júlí til nóvem-
ber, en þá verður allt vatnssósa.
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður,
höfðu sérfræðingarnir lokið fyrsta
áfanga verkefnisins í árslok 1969.
Þeir höfðu þá endurheimt um 2.000
hektara lands og auk þess unnið að
rannsóknum á vatni, jarðvegi og
staðháttum. Jafnframt höfðu þeir
gert tilraunir með ýmsar rístegund-
ir sem báru mikinn árangur. Sé
flogið yfir þessi svæði nú, verður
fyrir augum einkennileg sjón, þar
sem skiptast á tiltölulega þurr svæði
þakin rísgróðri og stór svæði sem
liggja undir vatni.
Þeir 1.154.500 dollarar, sem UNDP
hefur iagt fram, og þeir 825.00 doll-
arar, sem Guíneustjórn leggur fram,
eiga að tryggja áframhaldandi
vinnu að þessu verkefni næstu þrjú
árin. Þúsundir hektara eru þurrk-
aðar af Guíneu-stjórn með hjálp
sérfræðinga frá FAO. Jafnframt
nota sérfræðingarnir tækifærið til
að gera ýmiss konar tilraunir í því
skyni að leggja grundvöll að land-
búnaði framtíðarinnar: hvaða rís-
tegundir séu bezt fallnar til rækt-
unar, hvaða áburðartegundir henti
bezt, hvaða skordýraeitur eigi bezt
við, og hvaða nýtízku landbúnað-
araðferðir séu hentugastar. Þeir
leitast einnig við að koma til liðs
við eldri landbúnað með því að
kenna bændum betri aðferðir en
þeir beita nú.
Auk alls þessa eiga sérfræðing-
arnir að vera ríkisstjórninni til
ráðuneytis um hentugustu aðferðir
til að koma hrísgrjónunum í verð,
setja á stofn samvinnufélög og lána-
kerfi. Sjö FAO-sérfræðingar eiga
ennfremur að kenna landsmönnum
landbúnaðartækni og hrísgrjóna-
rækt. FAO útvegar vélar, áburð,
skordýraeitur og verkfæri, en rík-
isstjórnin útvegar öll tæki til fram-
ræslu og þurrkunar landsins.
Innan þriggja ára gera sérfræðing-
ar FAO sér vonir um að geta —
á grunvelli reynslunnar sem þeir
hafa aflað sér af þessu verkefni —
veitt Guíneubúum hollráð um,
hvernig landið fái endurbætt hrís-
grónaræktina á stórum svæðum
hinna votlendu stranda, þannig að
unnt verði að fæða alla íbúa lands-
ins og laða jafnframt fjárfestingar-
aðila frá öðrum löndum til að efla
efnahagsþróun landsins.
☆
Yfirmenn umferðamála í New Jersey.fylki vilja endilega losna við aug-
lýsingaskilti, sem hafa víða verið sett upp rétt hanidan við leyfileg mörk
meðfram þjóðvegum fylkisins. Þeir hafa hótað auglýsendum því, að þeir
muni koma fyrir trjám og runnum, sem sikyggi á skiltin, og gróður
þessi verði á vögnum, svo að hægt sé að flytja hann til, jafnóðum og
skiltin yrðu flutt til. The Insider’s Newsletter.
127