Úrval - 01.03.1971, Blaðsíða 23
HIN ÓGLEYMANLEGA LEIKKONA TALLULAH
21
athöfn! En svo hugsaði ég: þetta er
eins og það á að vera. Tallulah, sem
hafði komið svo mörgum til að
hlæja, hefði brosað samsinnandi.
Og þegar ég leit yfir þennan sund-
urlausa hóp, sem samanstóð af vin-
um hennar, fannst mér næstum ég
heyra hana hvísla með sinni hásu
röddu, sem ekkert okkar myndi
nokkru sinni gleyma: „Anita, segðu
þeim, þegar ég. . . .“
☆
Lítill strákur var aS borða þar sem ihann var gestkomandi. Honum
varð á að ropa. Þegar hann kom iheim, sagði hann:
„Ég vissi ekki, hvort ég átti að segja: Guð hjálpi mér eða verði Þér
að góðu!“
Níu tiundu hlutar vizkunnar eru fólgnir i þvi að vera vitur nógu
snemma.
Theodore Roosevelt.
Ef þér fellur ekki tíðarfarið þar sem iþú ert, Þá geturðu alltaf flutt
þig og verið óánægður með veðrið á nýja staðnum líka.
Irish Digest.
Það varð uppi fótur og fit fyrir nokkrum árum í New Yorik, þegar
predikarinn Billy Graiham hélt ræðu i Madison Square Garden salnum.
Reiðióp heyrðust um allan salinn og þögnuðu ekki, þótt predikarinn
byrjaði að tala. Það var sama hvað Billy reyndi til að fá hljóð. Allt
kom fyrir ekki. Þegar fyrirlestrinum var lokið kom iþað í ljós, að á-horf-
endur höfðu búizt við hnefaleikakeppni en ekki predikun. Áttu að leiða
saman hesta sína þar hnefaleikarinn Chico Vejar og alnafni predikarans
Billy Gra'ham.
Það er ljúft að lokka sem sjálfur vill brokka.
Islenzkur málsháttur.
Margur kyssir á þá hönd, er hann vildi gjarnan að af færi.
Islenzkur málsháttur.
Sá ríður seint úr hlaðinu, sem snemma bindur sporana.
tslenzkur málsháttur.
Sá sem hefur reykinn fær oft litið af réttunum.
íslenzkur málsháttur.