Úrval - 01.09.1972, Blaðsíða 38
36
ÚRVAL
lftilli sveif, sem þenur tæki þetta Ut
eins og bilalyftara. Hann stingur
hendinni i flýti inn i hið 8 þumlunga
breiða op, sem myndazt hefur, og sker
I gegnum gollurshúsið og þvingar
brúnir þess i sundur með þrem
sverum, svörtum þráðum.
Nú kemur hjarta frú Kelleys i ljós.
Það slær reglulega. Gullnar fituagnir
og marglitir bláir og rauðir vöðva-
þræðir glitra eins og hlýleg litbrigði
sólarupprásarinnar. „Fegursta sýn i
riki Móður Náttúru,” tautar DeBakey
lágt.
Dr. Mattox og Ellen Morris
hjúkrunarkona rétta honum sfðan
skurðtækin hvert af öðru án þess að
segja orð. Þau halda i lausu endana á
þvingunarþráðunum og soga burt
blóöið, sem vætlar i aðalæðarnar, sem
liggja frá hinu starfandi hjarta, og
annarri inn i slagæð i hægra læri frú
Kelleys. Slöngur þessar liggja siðan
fyrir aftan hann að hjarta-og
lungnavél, gijáandi tæki úr ryðfriu
stáli. Úr þvi hangir stór, sótt-
hreinsaður plastpoki. Þessi poki er
súrefnisgjafinn, sem blóðið mun
streyma um, meðan DeBakey stöðvar
starfsemi hjartans svolitla stund.
Fyrir neðan poka þennan eru stjórn-
og mælitæki, sem stjórna hinum þrem
dælum, sem DeBakey hefur fundið
upp, hinum snilldarlega „vélvöðva”,
sem mun koma i stað hjarta frú
Kelleys, þegar það verður að stöðva
meðan DeBakey sker i það með hnif
sinum.
DeBakey beinir ni hnif sinum að
þessu starfandi liffæri i fyrsta skipti.
Hann dregur örmjóa, grunna linu
þvert yfir yfirborð þess hægra megin,
þannig að sú fyrsta af þrem sjúkum
slagæðum i hjarta hennar kemur i ljós
þar sem hún bugðast eins og kræklótt
rót i gegnum hjartavöðvann. Mjög
fullkomnar röntgenmyndir, sem eru
kallaðar slagæðamyndir, hafa sýnt, að
allar þrjár af helztu hjarta-
slagæðunum hafa þrengzt hættulega
mikið, svo að um þær kemst aðeins
litill blóðstraumur i stað þess striða
straums, sem hjartavöðvinn þarfnast.
Frú Kelley hefur þess vegna oft fundið
til sárra verkja, hinnar svoköliuðu
hjartakveisu, siðustu niu árin.
DeBakey ætlar að taka þrjá búta úr
æðinni, sem dr. Mattox fjarlægði úr fót
frú Kelleys, og skeyta þeim við
slagæðarnar þrjár i hjarta hennar,
þannig að blóðið komist fram hjá
hinum sjúka hluta þeirra.
Það er ekki auðvelt að vinna við
aðgerð á kransslagæð meðan hjartað
slær. Það er likt og að kryfja iðandi
snák á borði, sem titrar i sifellu. En
hendur skurðlæknisins eru svo
styrkar. að betfa virðist auðvelt
37
I gjörgæzludeildinni.
viðfangsefni. Hann lokar fyrir
slagæðina með klemmu, ristir örfinan
skurð langsum og lengir siðan
skurðinn með fingerðum skærum,
þangað til opið er orðið svipað og litið
hnappagat. Næst gripur hann með
löngum töngum um bogna nál, sem er
ekki stærri en augnahár, og þræðir
polypropylenþráð á þykkt við klofið
hár i gegnum endann á litla
skurðinum.
Mattox heldur i lausa enda skurð-
þráðarins, meðan DeBakey tekur við
æðinni af Ellen Morris hjúkrunarkonu.
DeBakey sniður leiftursnöggt af enda
æðarinnar með skærum, svo að hún
hæfi „hnappagatinu” á kransslagæð
frú Kelleys. Siðan stingur hann i
gegnum æðina með örþunnu nálinni og
dregur hana að opinu með næfurþunna
þræðinum. Hann stingur 30 jöfn spor i
flýti allt i kringum æðina og gætir þess
að hafa alltaf sömu þensluna á
þræðinum. Það er likast þvi sem
þráðurinn hafi verið þræddur i æðina
með sérstaklega fingerðri vél, svo
fullkominni, að hún gæti saumað
saman tvo hola fiflaleggi.
Nú sker DeBakey afganginn af
æðinni og býr sig undir að græða
nýskorna endann við hina miklu
hjartaslagæð, sem flytur blóðið út til
likamans, eins og hann græddi hinn
enda æðarinnar við kransslagæðina.
Hann endurtekur hinn geysilega
vandasama „saumaskap”. Hann
hefur lokið honum að sjö minútum
liðnum. Hin hreina, nýja slagæð er nú
oröin þrútin af blóði og dælir þvi
hindrunarlaust frá miklu hjarta-
slagæðinni yfir i hægri hluta hjarta-
vöðva frú Kelleys.
Þegar DeBakey hefur gengiö úr
skugga um, að hjartadælurnar séu i