Úrval - 01.09.1972, Blaðsíða 111
SLÖKKVILIÐSSVEIT NR. 82
109
móöur sina á eftir gljáfægðum,
rauðum slökkviliðsbíl, sem mjakast
áfram, en sitt hvorum megin eru raðir
skólafélaga þeirra og hundruð slökkvi-
liðsmanna. Þeir lita upp til
kistunnar sem er uppi á slökkviliðs-
bifreiðinni, sveipuð fána. Og þeir eru
stoltir af þvi að pabbi þeirra skuli vera
tilefni allrar þessarar viðhafnar. En
þeir eru lika óttaslegnir, vegna þess að
þeir eru nógu gamlir til þess að gera
sér grein fyrir þvi, að á eftir deginum i
dag kemur morgundagurinn, og þá
veröur lifið öðruvisi en áður án pabba
þeirra.
Ungi drengurinn á lögreglustöðinni
er lika hræddur, en samt á annan hátt.
Hann skilur ekkert i þvi, hvers vegna
allir eru svona æstir. Hann kom til
þessa lands frá Puerto Rico fyrir fimm
árum, og krakkarnir i götunni kenndu
honum, að maður verður að hafa ofan
fyrir sér sjálfur og sjá sér sjálfur fyrir
skemmtunum i Suður-Bronx. Maður
geturleikið sér i auðum og yfirgefaum
byggingum eða á ruslhaugum eða i
kjöllurum, þar sem allt er morandi i
rottum. Eða maður getu- togað i
handföng á brunaboðum. Hvers vegna
eru allir svona æstir?
Hvað er hægt að gera við 9 ára
dreng, sem hefur gabbað slökkviliðið
út með þeim afleiðingum, p5 maður
biður bana? Þessi d? agur var
afhentur Félagsráðgja: >jónustunni
og átti að gera tilraun til þess að veita
honum einhverja leiðsögn. Ég skil og
skynja vel hinar ömurlegu aðstæður,
sem þetta barn hefur neyðzt til þess að
lifa við. En ég hef misst alla samúð
með þeirri kenningu, að fátæktin hafi
valdið glæpnum, en ekki drengurinn.
Hver sá, sem togar i brunaboða-
handfang i þeim tilgangi að gabba
slökkviliðið á vettvang, ætti að verða
sendur i l'ange'si og dúsa þar i heilt ár,
en i betrunarskóla, ef hann er undir 16
ára aldri. En þau niu ár, sem ég hef
starfað sem slökkviliðsmaður, hefur
aðeins einn maður verið settur i
fangelsi af þessum sökum. Og ég hef
svarað þúsundum útkalla, sem hafa
reynzt vera gabbútköll að yfirlögðu
ráði. I fyrra sinntu slökkviliðsmenn i
New Yorkborg samtals 104.690 gabb-
útköllum eða að meðaltali 287 á dag
eða einu gabbútkalli tólftu hverja
minútu.
Það eru ekki aðeins slökkviliðs-
mennirnir, sem eru fórnardýr gabb-
útkallanna. Það kemur oft fyrir, að
þegar slökkviliðsmennirnir eru að
sinna gabbútkalli i einum enda