Úrval - 01.09.1972, Blaðsíða 96
94
ÚRVAL
hinum óvéfengjanlegu fyrirbærum svo
og af manninum sjálfum, einlægni
hans og heiöarleika.
Oft heimsóttu Cayce menn, er sýndu
honum mikinn skilning og höföu
nokkra þekkingu á hæfileikum hans.
Veittu þeir honum margs kyns
stuöning i hinu erfiöa hlutverki hans.
Nokkrir þessara manna komu sér
saman um nauösyn þess aö koma á fót
spítala, þar sem hægt væri aö
meöhöndla sjúklinga Cayce, einkum
Þá, sem þurftu á óvenjulegri
meöhöndlun aö halda, eftir fyrir-
mælum hans.
Auöugur maöur aö nafni Morton
Blumenthal, er fengiö haföi lækningu
hjá Cayce, geröi þennan draum aö
veruleika. Ariö 1929 var Cayce-
spltalinn byggöur I Virginia Beach i
Kaliforniu. Spitalinn starfaöi þó
aöeins I 2 ár, og varö þá aö hætta
starfsemi vegna gjaldþrots
Blumenthals, er stafaöi af hruni á
veröbréfamarkaöinum.
Ævisaga Cayce eftir Thomas
Sugrue, er ber heitiö „There is a
river”, kom Ut áriö 1942, og um svipaö
leyti, eöa i september 1943, birtist
grein I timaritinu „Coronet” undir
heitinu „Kraftaverkamaöurinn i
Virginia Beach”. Viö útkomu
bókarinnar og fyrrnefndrar timarits-
greinar var Cayce þekktur um allan
heim, og eftir þaö barst honum
ótölulegur fjöldi bréfa viösvegar aö úr
heiminum. Varö þaö honum þungbær
raun aö iesa þessi bréf, þvi- aö mörg
þeirra lýstu svo átakanlegri neyö og
þörf fyrir skjóta hjálp og Cayce átti
erfitt meö aö synja slikum beiönum.
Hlóöust bréfin upp og náöi biölistinn
oft hátt á annaö ár fram I timann. Þó
fjölgaöi hann lækningafundum slnum
úr 2-3 á dag upp I 8, fjóra fyrripart
dags og fjóra seinnipartinn. Mörgum
kynni aö viröast þaö létt verk aö starfa
I svefni, en svo var þó ekki, þvi þessu
fylgdi geysilegt álag á taugakerfiö.
Þetta mikla álag sagöi brátt til sln, og
3. janúar 1945 andaöist Cayce 67 ára aö
aldri.
Þannig lauk sögu Edgar Cayce, en
minningin um ævistarf hans mun lifa.
Hann fórnaöi kröftum slnum óskiptum
alla ævi til hjálpar meöbræörum
slnum. Og framlag han til aukinnar
þékkingar og viöurkenningar á
dulskyggnihæfileikum mannsins er
athyglisvert. Hann geröi meira en aö
sjá þaö, sem aörir sáu ekki, þvl þaö
sem hann sá, gátu aörir séö og sann-
færzt um slöar, svo ekki varö um
villzt.
(Úr bókinni „Many Mansions”,
Leifur U. Ingimarsson þýddi).
Undur nýja undralyfsins, sem hei'ur engar aukaverkanir: Þaö er undriö.
Maöur nokkur ætiaöi að sjá hryllingsmynd, en hann hryllti nægilega við
veröinu.