Goðasteinn - 01.03.1965, Side 10
Halldóra Bjarnadóttir segir Sigurð í Skarðshlíð hafa átt Þur-
íði að fyrri konu, en það mun ekki rétt. Þau munu ekki hafa
gifzt.
Jón (f. 17. febr. 1793, d. 16. maí 1850, 57 ára), Sigurðsson, var
húsa- og skipasmiður og hinn mesti hagleiksmaður bæði á tré
og járn. Eru hér á Keldum enn, 1903, (einnig 1933) til mjög
haglega gerðir hlutir eftir hann, t. d. skemma, „stóraskemma“
úr söguðum rekavið, með smíðuðum saum, flutt fyrst frá Skarðs-
hlíð að Hvoli. Þar var hún, hálf, brúkuð fyrir þinghús, meðan
þau bjuggu þar. Að Keldum var hún flutt 1852—‘53. Hún er
með haglega gerðri skrá, þjófaskrá, sem ókunnir ekki ljúka upp
að innan. Skápur málaður ýmsum litum, fallegur, einlagður
viður með kýldum listum og skorinn rósum með upphleyptum
stöfum ISS. Var smíðaskápur í skemmunni, nú bollaskápur, 1903,
(síðan hingað kom), með læsingu (nú fyrir tau '33). Kistur ein-
lagðar, strikaðar, reiðsla, klyfberi mjög smiðslegur (nú 1933 brot-
inn) c. fl. allt smekklegt.
Jón var starfsmaðut mikill, lesari annmæltur og las jafnan á
hádegi og sagði þá gestum, sem oft sóttu hann heim til smíða
o. s. frv.: „Ég fer að lesa, þið ráðið, hvort þið bíðið.“ Hann
var og söngmaður og tók sjaldan til. Því sagði Skúli læknir á
Móeiðarhvoli eitthvert sinn, er hann hafði heyrt söngrödd hans:
„Þú grefur pund þitt í jörðu“. Hneigður var hann fyrir vín og
bilaður öðrum megin (kviðslitinn). Jón á Ægissíðu hét eftir
honum.
Ingibjörg (f. 29. des. 1793, dó á Keldum 4. sept. 1871, 78 ára)
var einnig að sínu leyti handlagin hannyrðakona, sem hún
kenndi dætrum sínum, svo sem baldýring, knippl, glitvefnað o.
fl., en flos vildi hún ekki kenna þeim, þótti seinlegt verk og
ofmikil tímaeyðsla við það. Flutti að Keldum 1858, var nokkur
ár blind en kembdi og spann þó enn á rokkinn sinn og gerði
margt fleira. Ingibjörg Guðmundsdóttir hét í höfuðið á henni.
Guðrún systir á silfurkross eftir hana. Jón og Ingibjörg áttu 8
börn, fjögur dóu í æsku, hét eitt Sigurður, mesta efnisbarn, sem
þau sáu mjög eftir, en fjórar dætur komust upp: 1. Ingibjörg,
átti fyrr Einar son Einars hreppstjóra í Sigluvík. Þeirra dóttir,
8
Goðasteinn