Goðasteinn - 01.03.1965, Blaðsíða 20
að bera svo gamlan mann ráðum. Tók ég þá hesta mína og
snaraðist með hann að Mörk. Friðrik Kristófersson, bóndi þar,
var úti staddur, er við komum í hlað. Ekki heilsaði Gvendur
hcnum en segir þegar: „Hvort viltu heldur hafa mig í nótt eða
skjóta mér strax upp að Mörtungu til hans Skúla“?
Ekki treysti Gvendur sér til að leggja upp í langferð um
haustið cg hafði vetursetu í Hörgsdal á Síðu hjá þeim hjónum
Bjarna Bjarnasyni og Sigríði Kristófersdóttur. Hörgsdalur var
Gvendi kær og kunnur bær frá fornu fari, cr Helga Pálsdóttir
prófasts var þar húsfreyja. Hún var ágæt kona og stórgáfuð,
sem Gvendur kunni vel að meta.
Bjarni Bjarnason núverandi bóndi í Hörgsdal var unglingur
um veturinn, þegar Gvendur var þar. Segir Bjarni, að hann
hefði ferlivist allan veturinn og gengi oft til heyhlöðu, sem þar
var á heimastétt. Ræðinn hafði hann verið og hinn mesti sagna-
sjór, sem og vita mátti, en þrifnaðarháttum hans auðvitað mjög
áfátt.
Þegar hlýna tók í veðri, í maímánuði, lagði Gvendur upp til
suðurferðar. Bjarni bóndi í Hörgsdal fylgdi honum fyrsta áfang-
ann, að Steinsmýri til Halldórs Davíðssonar. Var Gvendur þá
enn vel hestfær, enda enginn smáspölur frá Hörgsdal að Steins-
mýri, en meinið í kinninni var þá orðið mjög kvalafullt. Var
það raunar orðið svo sumarið áður, því að þá fékk hann alltaf
arfa til að hafa við það á nóttunni. Þótti honum arfinn helzt
lina þrautirnar. Ekki er mér kunnugt um, hvernig ferð hans
gekk áfram suður, frá Steinsmýri, en í Reykjavík dó hann um
haustið, 14. okt. 1928.
Gvendur kíkir var ekki aðeins síðasti víðförli flakkarinn á
Suðurlandi, heldur einnig hinn merkasti þeirra fyrir margra hluta
sakir. Þó að oft vildi bregða nokkuð til hins verra umtali um
náungann, hygg ég það tíðast græskulaust. Hann var barngóður,
og krakkar undu sér vel hjá honum. Trygglyndur var hann mjög
og batt órofa vináttu við þær ættir og þá einstaklinga, sem hann
mat þess virði.
Trúmaður var Gvendur meiri en margur mundi ætla. Veit ég
dæmi þess, að hann bað fyrir fólki svo vel, að því gat orðið
18
Goðasteinn